24 stundir - 06.06.2008, Side 32

24 stundir - 06.06.2008, Side 32
Eftir Kristjönu Guðbrandsd. dista@24stundir.is „Börnum er eðlilegt að vera glöð og hlæja, það er þegar við erum orðin fullorðin sem við missum þennan hæfileika,“ segir Ásta Valdimarsdóttir, jógakennari og hláturambassador. „Þegar við er- um orðin fullorðin þá finnst okkur að við megum ekki hlæja því þá sé ekki hægt að taka mark á okkur,“ bætir hún við og vill meina að höftin sem fullorðið fólk byrjar að setja sér í hegðun eigi sér rætur í viðurkenndum gildum samfélags- ins. Aðspurð um fyrirbærið hlátur segist Ásta hafa lært að hlæja í sig orku. Fyrir um tuttugu árum hafi hún glímt við þreytu en hlátra- sköllin hafi hreinlega rekið slenið á brott. „Mér fannst ég alltaf vera þreytt, nú er það breytt og ég finn sjaldan fyrir þreytu. Hlátur er fyr- irbæri sem kallar fram magnaða orku í líkamanum. Náttúrleg, kvalastillandi endorfín. Með hlátr- inum verður blóðrásin betri, hjart- að styrkist og lungun taka upp aukið súrefni.“ Bjart viðmót er galdur „Ég hef kynnst mörgu fólki sem hefur gengið í gegnum erfiða hluti í lífinu. Ég tek alltaf eftir því að því fólki sem einbeitir sér að því að vera jákvætt gengur betur í lífinu og því að takast á við áföll. Bjart viðmót og jákvæðni fleytir fólki lengra,“ segir Ásta. Ásta segir hláturjóga vera aðferð sem þróuð var af indverska lækn- inum dr. Madan Kataria. „Í hlát- urjóga er oftast hlegið í hópi, alltaf án tilefnis, án þess að brandarar séu sagðir. Hláturinn er vakinn með skemmtilegum leikrænum æfingum, látbragði og með leik. Jógað er sambland æfinga og jóga- öndunar og byggist á þeirri vís- indalegu staðreynd að hvort sem hlegið er vegna ytra áreitis eða af innri hvötum þá bregst líkaminn eins við og jákvæð áhrif á hann verða þau sömu. Að stunda hlát- urjóga er því hollt fyrir líkama og sál og hin besta skemmtun um leið. Kærkomið tækifæri til að hlaða sig af orku fyrir sumarið,“ segir Ásta og segist hlakka til að hlæja með þeim sem koma til hennar á laugardaginn. Hláturambassadorinn Ásta breiðir út hláturjóga á Íslandi Hlátrasköllin æfð fyrir betri líðan „Hláturjóga byggist á æf- ingum sem bæta andlega og líkamlega líðan,“ segir Ásta Valdimarsdóttir, hláturambassador á Ís- landi. Opinn hláturjóga- tími Hláturkætiklúbbsins fer fram á laugardaginn og Ásta lofar hlátrasköll- um er lengja og létta lífið. Hláturjóga Felst í því að fólk nýtir sér jákvæð áhrif hlátursins á líkama og sál. 32 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir „Viðeyjarkirkja er afskaplega fal- leg kirkja og ég hlakka til að spila í henni,“ segir Guðfinnur Sveinsson, gítarleikari hljómsveitarinnar For a Minor Reflection, sem næsta sunnudag, 8. júní, heldur tónleika í Viðeyjarkirkju. Banda- ríska hljómsveitin Northern Val- entine (www.myspace.com/nort- hernvalentine) spilar ásamt strákunum í For a Minor Reflec- tion í Viðey. „Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem rokktónleikar eru haldnir í Viðeyjarkirkju.“ Áætlað er að tón- leikarnir byrji upp úr 18.30. Við- eyjarferjan fer kl. 18.15 frá Sunda- höfn. Fólk verður að skrá sig á tónleikana í gegnum foraminorref- lection@gmail.com. Þetta kostar allt saman 1.000 kr, bætir Guðfinn- ur við. Fólk er beðið að senda nafn og símanúmer á netfangið. dista@24stundir.is Hljómsveitin For a Minor Refection spilar í Viðey Rokkað í Viðeyjarkirkju Næstkomandi sunnudag, 8. júní, mun Pétur H. Ármannsson arki- tekt annast leiðsögn um sýningu Listasafns Íslands, List mót bygg- ingarlist. Leiðsögnin sem hefst kl. 14.00 verður í formi persónulegrar hugleiðingar hans um efni sýning- arinnar og yfirskrift, samband myndlistar og byggingarlistar og þróun hugmynda um sýningar- rýmið. „Það er ekki ætlun mín að brjóta verkin á sýningunni til mergjar,“ segir Pétur. „Ég fjalla um yfirskrif þessarar sýningar, list and- spænis arkitektúr, þessa tvo póla. Ég ætla að hugleiða muninn á þessu tvennu; byggingarlist og myndlist og síðan að skoða hvernig þessar tvær greinar listarinnar mætast í sýningarrýminu.“ List mót byggingarlist á Listasafni Íslands Hugleiðingar Péturs Andstæðir pólar? Pétur ræðir við gesti sýningar á Listasafni Íslands. Sunnudaginn 8. júní verður flutt messa nr. 7 í b-dúr, „Kleine Org- elmesse,“ eftir Joseph Haydn í Hafnarfjarðarkirkju. Hefst mess- an klukkan 11. Flytjendur mess- unnar eru Barbörukórinn í Hafn- arfirði auk Kammersveitar Hafnarfjarðarkirkju sem Júlíana Elín Kjartansdóttir fiðluleikari leiðir. Einsöngvari er Þóra Björnsdóttir. Stjórnandi tónlistarflutnings og orgelleikari er Guðmundur Sig- urðsson, kantor Hafnarfjarð- arkirkju. Joseph Haydn samdi messuna um 1770 fyrir kapelluna í Eisenstadt í Austurríki og hefur hún ávallt notið mikilla vinsælda. Haydn í Hafn- arfjarðarkirkju LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Ég hlæ í mig orku þegar ég þarf á því að halda. helgin                                     

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.