24 stundir - 06.06.2008, Síða 46
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
Það fer að verða spurning hvort
Björk Guðmundsdóttir fari ekki að
hljóta heiðursnafnbótina móðir
náttúra en barátta hennar til að
vernda íslenska náttúru nær hæstu
hæðum í Grasagarðinum í lok
mánaðarins þegar hún heldur fría
útitónleika ásamt Sigur Rós.
Reiknað er með að svæðið taki
rúmlega 20 þúsund manns.
„Við reyndum eins og við gátum
að hafa þessa tónleika úti í nátt-
úrunni,“ segir Björk um tón-
leikana er hafa yfirskriftina Nátt-
úra. „Fyrst var hugmyndin að setja
þá upp á Þingvöllum. Svo í gíg á
Vestamannaeyjum, því næst úti í
Viðey. Það hefði kostað auka 15
milljónir að halda þetta á stað þar
sem við hefðum þurft að flytja raf-
magn, klósett og annað þannig að
við stukkum á tækifærið þegar
borgin bauðst til að sjá um það.“
Náttúruvefurinn
Á blaðamannafundi í Norræna
húsinu í gær var einnig tilkynnt að
sett yrði upp fjáröflun viku fyrir
tónleika til þess að safna peningum
fyrir gerð netsíðunnar Natturuvef-
urinn.is. Þar verður m.a. hægt að
finna upplýsingar um mikilvæg
svæði á Íslandi ásamt alls kyns
upplýsinga- og dægursefnis tengt
náttúrunni.
„Mig langar að geta farið á vef-
síðu og fá svör við spurningum
eins og hvað gerist ef þetta svæði
verður virkjað? Hvað sé í húfi? Og
líka bara leiðbeiningar um svæði
sem hægt sé að ganga um eða bara
fá að heyra hvernig hljóðið í him-
brimi er. Okkur langar að þessi
síða sé fræðilegur gagnabanki. Við
viljum líka einfalda hluti, eins og
að fólk geti sótt fuglahljóð sem
hringitóna. Að þetta séu ekki bara
síða frá fúlum náttúruvernd-
arskæruliðum, heldur að þarna sé
skemmtun og fræðsla.“
Á fundinum benti Björk á að Ís-
land hefði sérstöðu í heiminum og
að í augum útlendinga stæðum við
fyrir hina tæru og ósnertu náttúru.
„Ef við missum þá væri það eins
og París myndi missa tískuna, New
York skýjakljúfana eða Los Angeles
myndi missa Hollywood. Stjórn-
endur landsins mega ekki komast
upp með að vinna gegn nátt-
úrunni. Við verðum að sýna þeim
aðhald,“ sagði Björk við mikinn
fögnuð viðstaddra.
Björk, Sigur Rós og fleiri undirbúa heimsviðburð í lok júní
Móðir náttúra í
Grasagarðinum
Ókeypis útitónleikar
Bjarkar og Sigur Rósar
verða í Grasagarðinum
þann 28. júní. Viku áður
fer í gang söfnun fyrir
sköpun netsíðunnar Natt-
uruvefurinn.is.
Sigur Rós Einu tónleikarnir hér í sumar.
Mynd/Sverrir Vilhelmsson
Björk Vonast til að tón-
leikarnir og vefsíðan
hrindi af stað umræðu
um íslenska náttúru.
46 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 24stundir
„Já, ég fór að skæla á McCartney.
Kannski var það vegna návist-
arinnar við stjörnublaðamann
sem tók undir með mér í Wings-
lögunum? Kannski var það vegna
rokkstjörnunnar sem endaði með
mér á hótelherberginu nóttina
áður? Það verður aldrei full-
vitað.“
Grímur Atlason
eyjan.is/grimuratlason
„Ég mætti Toyota HiAce bíl, hann
var árgerð 1990, merkilega óryðg-
aður og á honum stóð: Tannhirða
og bindingar.
Sá litli hestamaður sem ég er, datt
ekki í hug að hér væri hestamað-
ur á ferð og velti fyrir mér hvort
komin væri kreppa í tannlækn-
ingarnar.“
Tómas Hafliðason
www.potturinn.com
„Magnús Þór Hafsteinsson er
foxillur út í Þórunni Sveinbjarn-
ardóttur fyrir að láta skjóta
bjarndýrið. Hvers vegna er Magn-
ús svona reiður yfir að ráðist sé
gegn skepnu sem er ólöglegur
innflytjandi og ólíklegur til að
samlagast háttum íslenskrar nátt-
úru? Jú, þetta var hvíta-björn!“
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Einhver fótur var víst fyrir því að hljómsveitin Ra-
diohead ætti að spila á útitónleikum Bjarkar og Sig-
ur Rósar í lok mánaðarins. Björk var í góðu sam-
bandi við Thom Yorke en ekki fannst dagsetning er
hentaði bæði Sigur Rós og Radiohead, enda báðar
sveitir fullbókaðar fram eftir sumri. Björk var því í
þeirri erfiðu aðstöðu að þurfa að velja og valdi Sigur
Rós. bös
Og meira um tónleikana í Grasagarðinum. Sigur
Rós náði 30 þúsund manns á tónleika sína á Mikla-
túni í hittifyrra og því er spurning um hvort svæðið
sé nógu stórt? Sérstaklega í ljósi þess að hvergi verð-
ur til sparað og bæði Björk og Sigur Rós ætla að
spila í 90 mínútur hvor. Veðurguðirnir munu ef-
laust hafa einhver áhrif á mætinguna og ef til vill
Ólöf Arnalds líka sem kemur einnig fram. bös
Bubbi Morthens á afmæli í dag en auk þess að
fagna því að hafa farið 52 hringi í kringum sólina
heldur hann útgáfutónleika í kvöld í Borgarleikhús-
inu. Seinkun var þó á nýju plötunni, Fjórir naglar,
en hún ætti að skila sér í búðir um miðja næstu
viku. Stærsti viðburður vikunnar er þó á morgun,
þegar hann gengur að eiga ástkonu sína Hrafnhildi
Hafsteinsdóttur á Reynivöllum í Kjós. vij
„Ég er búinn að vera pung-
sveittur hérna út um allan bæ síð-
ustu tvo daga að ná í einhverjar
helvítis snúrur hér og þar. Þetta var
bara að skella á fyrir tíu mín-
útum,“ segir hinn galvaski út-
varpsmaður Andri Freyr Viðarsson
en í kvöld, nánar tiltekið klukkan
19.30, mun fyrsti þátturinn af Litlu
hafmeyjunni fara í loftið á Rás 2.
Þátturinn verður undir stjórn
Andra og Dodda litla en þátturinn
verður sendur út beint bæði frá
Reykjavík og Kaupmannahöfn þar
sem Andri er búsettur.
Bæði Andri og Doddi hafa mikla
reynslu af útvarpinu og því er ekki
við öðru að búast en að þátturinn
muni fá góðar undirtektir hjá
landsmönnum til sjávar og sveita.
„Við erum báðir búnir að vera
að gera þetta í tíu ár. Þetta verður
mikið líf og fjör, svona aðeins
öðruvísi en maður hefur alltaf ver-
ið að gera því maður hefur alltaf
verið í morgunútvarpi.“
Andri segir að sú reynsla að hafa
starfað í morgunútvarpi muni sitja
í sér um ókomna tíð. „Það situr
ennþá í manni, maður vaknar allt-
af klukkan sjö á morgnana eins og
eitthvert fífl. Þetta er alveg óþol-
andi.“
Andri bætir við að hvorki hann
né Doddi hafi áður sent út þátt
sem nær eyrum allra landsmanna
og því sé það sérstaklega spenn-
andi að fá að vera með þátt í út-
varpi allra landsmanna, Rás 2.
„Hugsaðu þér, loksins getur
pabbi á Reyðarfirði hlustað á mig
líka. Ekki hringir hann í mann
þannig að það er eins gott að hann
hlusti á mig.“ viggo@24stundir.is
Litla hafmeyjan á Rás 2
Andri nær loksins
eyrum föður síns
Sáttur í Köben Andri er sáttur við lífið í
Danmörku en finnst samt heldur heitt.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
9 4 6 5 2 8 1 7 3
5 7 8 3 4 1 6 9 2
1 2 3 9 7 6 4 5 8
3 5 9 7 1 2 8 4 6
2 6 7 4 8 5 3 1 9
4 8 1 6 3 9 7 2 5
6 1 2 8 9 4 5 3 7
7 9 5 1 6 3 2 8 4
8 3 4 2 5 7 9 6 1
Ég gaf þér þetta bindi og fyrst núna,
40 árum seinna setur þú það á þig?
a
Það þurfa allir að herða sult-
arólina á þessum síðustu og
verstu krepputímum
Er sparnaður í veðurfréttunum?
Sigurður Þ. Ragnarsson er veðurfræðingur á Stöð 2, en
eftirtekt hefur vakið að á myndum sem notaðar eru til að
segja krökkum hvernig skal klæða sig hafa börnin
grennst umtalsvert.
Sumartilboð Betri svefns
Nýtt á Íslandi, 100% ofnæmisfríar hágæða,
Aloe-Vera sængur, ungbarna, barna og
fullorðins.
Kynningartilboð gildir til 12. júni.
Dæmi: 140*200 sæng, verð áður 24.900 kr.
40% afsláttur, verð nú 14.940 kr.
Bjóðum 12 mánaða, vaxtalausa
raðgreiðslusamninga af öllum rúmum.
M
bl
1
01
11
59
Opið mán.-föst. frá 10.00-18.00, laugard. frá 11-16.00
Reykjavíkurvegur 64 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565-4747
Auglýsingasíminn er 510 3744
FÓLK
lifsstill@24stundir.is f́réttir