Morgunblaðið - 27.08.2003, Page 10
hugmyndir
lifun
H – hirslur
Það er hægt að skrifa heilan
greinaflokk um hirslur og góðar
lausnir því sífellt er verið að
falast eftir rétta skipulaginu.
Ógrynni af dóti fylgir börnum
og ef þau sem og þeir sem
ganga um dótið vilja hafa
umhverfið þægilegt og friðsælt
borgar sig að nýta plássið á
hagkvæman hátt og skapa
skipulögð skilyrði.
K – körfur
Körfur eru haganlegar hirslur og til í
óteljandi útgáfum. Þær eru gjarnan
sniðnar með það í huga að koma þeim
fyrir á erfiðum stöðum en geta líka
komið vel út einar og sér. Það er víst
aldrei til nóg af körfunum á heimilinu.
L – litir
Það er algengur misskilningur að þegar
börn vilja hafa herbergin sín litrík þá
þurfi að mála þau í áberandi litum.
Litirnir í herbergið koma með öllu dót-
inu sem þau eiga og fallegt dót nýtur
sín betur þegar umgjörðin er hlutlaus.
Ef vilji er til er ekki vitlaust að mála einn
vegg í lit því auðveldara er að mála yfir
hann síðar en heilt herbergi. Með ljósa
umgjörð er einnig auðveldara að breyta
herberginu og bæta það án þess að fara
í miklar endurbætur.
M – myndir
Myndir eru listaverk og skrautmunir
sem hvað reglulegast er skipt út í
barnaherbergjum. Gott er að geta
komið þeim vel og auðveldlega
fyrir án þess að alltaf sé verið að
negla eða líma á veggina.
N – nýburar
Það er ekki margt sem nýburi
þarfnast í upphafi ævi sinnar.
Friðsæld og ró er þó sennilega
eitt það mikilvægasta og þar
leikur umhverfið stórt hlutverk.
Það er mat foreldranna hvernig
fallegt umhverfi fyrir nýburann
lítur út en það er gott að hafa í
huga, áður en undirbúningur fer
úr böndunum, að þarfir barn-
anna á þessum mánuðum breyt-
ast ótrúlega hratt og þ.a.l. getur
umhverfi nýbura, t.d. ef um
sérherbergi er að ræða, orðið
hálfúrelt á skömmum tíma.