24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 34
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Lohan-systurnar Lindsay og Ali
koma úr einni alræmdustu fjöl-
skyldu Hollywood. Fjölmiðlar hafa
næstum gleymt því að Lindsay hafi
nokkurn tímann starfað sem leik-
kona því núna er Lohan nafnið
nær eingöngu tengt eitur-
lyfjanotkun, fang-
elsisvist, fjöl-
skylduerjum og
annarri hegðun
sem ekki telst
mönnum sæm-
andi.
Nú hefur kom-
ið í ljós að auk
þess að vera fyrr-
verandi eitur-
lyfjasjúklingur og tugthúslimur er
Michael Lohan, faðir Lindsay,
einnig sekur um að hafa eignast
dóttur með annarri konu á meðan
á hjónabandi hans og Dina Lohan
stóð.
Dóttirin heitir Ashley og er 13
ára gömul sem þýðir að Michael
hefur barnað móður hennar þegar
Ali var tiltölulega nýfædd en hún
er 14 ára gömul í dag.
Viðurkennir sambandið
Móðir Ashley, Kristi Kaufmann,
heldur því fram að þegar í ljós kom
að eiginmaður hennar (já, hún var
líka gift) var ekki faðir Ashley hafi
hún strax vitað að Michael ætti
hana því hún hafi ekki verið með
öðrum en þeim tveim. Kristi segir
að samband hennar við Michael
hafi hafist þegar hann var tíma-
bundið skilinn við Dina en þau
hafi haldið áfram að hittast eftir að
hjónin tóku saman aftur.
Michael viðurkennir að hafa átt
í sambandi við Kristi á meðan
hann og Dina voru í sundur. Hann
segir að það samband hafi aðeins
staðið yfir í eina viku. Hún mun
svo hafa haft samband við hann
þegar hann var í fangelsi fyrir
stuttu og sagt honum að hann væri
faðir stelpunnar. Þau höfðu þá ekki
talað saman í fjölda ára.
Lindsay Lohan vissi ekkert um
þetta fyrr en hún las fréttirnar á
netinu þrátt fyrir að faðir hennar
hafi víst verið í bréfasambandi við
Ashley síðan Kristi hafði samband
við hann. Hann hefur þó aldrei
hitt hana.
Michael bíður nú eftir nið-
urstöðum úr faðernisprófi til að
komast að því hvort hann sé í raun
og veru faðir Ashley.
Systurnar Ali og
Lindsay eru nánar
systur.
Michael Lohan bíður eftir niðurstöðum faðernisprófs
Launsystir
Lindsay Lohan
Lindsay Lohan á 13 ára
hálfsystur ef eitthvað er
að marka orð konu sem
segist hafa haldið við
föður hennar. Lindsay
vissi ekki af systur sinni
fyrr en hún las um hana í
fjölmiðlum.
Ashley Lohan
34 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
fyrri leikjum nema nú hefur leik-
urinn verið færður upp í háskerpu.
Þessi betri grafík bætir nákvæmlega
engu við spilun leiksins enda hafa
leikirnir aldrei snúist um grafík
heldur gott skemmtanagildi. Á
þeim vígstöðvum veldur Buzz eng-
um vonbrigðum frekar en fyrri dag-
inn. Leikurinn er einstaklega góður
í fjölspilun en leikjarýnir 24 Stunda
ber enga ábyrgð á því þegar
bernskuvinir eru komnir í hár sam-
an yfir meintu einelti í stigaþjófs-
hluta leiksins.
Tölvuleikir viggo@24stundir.is
Buzz-spurningaleikirnir hafa und-
anfarin ár notið gríðarlegra vin-
sælda. Með tilkomu nýjasta Buzz-
leiksins, Buzz! Quiz TV, hefur leik-
urinn stigið skref fram á við í
þróunarsögu sinni og fyrir vikið er
hér kominn heilsteyptari leikur sem
getur bæði verið skemmtilegur í
góðra vina hópi og einnig þegar
maður situr einn heima í stofu á
einmanalegu laugardagskvöldi.
Fyrirkomulag Buzz-leikjanna er
ætíð það sama. Spurningar dynja á
keppendum og sá sem svarar flest-
um rétt stendur uppi sem sigurveg-
ari. Ein breyting á spilun leiksins, til
hins betra, er sú að í upphafi hverr-
ar lotu þá fær sá sem er með fæst
stig að velja spurningaflokk og því
ætti að vera hægt að jafna leikvöll-
inn nokkuð.
Akkilesarhæll Buzz-leikjanna
hefur hingað til verið sú staðreynd
að þegar einungis einn leikmaður er
að spila leikinn þá verður hann
álíka skemmtilegur og maraþonsýn-
ing á Lindsay Lohan-myndum.
Framleiðendur leiksins hafa því gert
hið rökrétta í stöðunni og bætt inn
fjölspilun í gegnum netið, sem kem-
ur sér afskaplega vel fyrir fingrafima
ofvita. Nethluta leiksins er einnig
hægt að nota til að sækja nýjar
spurningar á netið en fólk getur líka
búið til sínar eigin spurningar á vef-
síðunni www.mybuzzquiz.com.
Grafík leiksins er í sama stíl og í
Nördinn á botninum velur Nú fá stigalægstu leikmennirnir að velja þema spurning-
anna í næsta hluta leiksins.
Hringir þetta einhverjum bjöllum?
Grafík: 76%
Hljóð: 78%
Spilun: 94%
Ending: 87%
NIÐURSTAÐA: 84%
Buzz! Quiz Tv
PS3 | 12+
FÓLK
24@24stundir.is a
Lindsay Lohan vissi ekkert um þetta fyrr en
hún las fréttirnar á netinu þrátt fyrir að
faðir hennar hafi víst verið í bréfasambandi við
Ashley síðan Kristi hafði samband við hann. fréttir
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Montreal
í júlí
frá kr. 17.000
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal
4., 11. og 25. júlí í viku. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta
lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem er önnur
stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík
sagan og iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það
er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal;
fallegar byggingar, skemmtigarðar, spennandi söfn, endalaust
úrval verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu
tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem
þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Mjög takmarkað framboð flugsæta og gistingar í boði á þessu
verði.
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, sértilboð 4., 11. og 25. júlí.
Verð kr. 39.990 flug og
gisting í viku
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára á Hotel Les Suites Labelle
*** með morgunverði í viku, sértilboð 4.,
11. og 25. júlí.
Örfá sæti í boði!
Verð kr. 17.000aðra leið
24.990 báðar leiðir. Glænýjar myndir af hjónunumAshley og Cheryl Cole sem teknar
voru í 25 ára afmæli hennar á
mánudag sýna svo ekki verður
um villst að þau hafa ákveðið að
gefa hjónabandinu annað tæki-
færi. Á myndunum sést Cheryl
skælbrosandi leiða Ashley út af
hóteli en þetta er í fyrsta sinn sem
þau leiðast opinberlega síðan í
janúar. Veislan var skipulögð af
Ashley sem birtist óvænt með
blóm og gjafir á hótel í Manchest-
er þar sem hún var við upptökur
á X-Factor en hún er nýjasti dóm-
arinn í þættinum. iav
Cheryl fagnar með Ashley Cole
Franskir fjöl-
miðlar halda því
fram að Angelina
Jolie sé búin að
eiga tvíburana.
Hún mun hafa
fengið hríðir 30.
júní og átt börnin
þriðjudaginn 1.
júlí. Tvíburnar verða Jolie-Pitt
börn númer 5 og 6. Jolie ákvað að
eiga börnin í Frakklandi vegna
þess að mamma hennar var af
frönskum ættum en hún lést á
síðasta ári. iav
Angelina búin
að eiga börnin