24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
„Stormurinn snýst um að hafa það betra en náunginn í lífsgæðakapp-
hlaupinu,“ sagði Þórunn Lárusdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá
Ferðafélagi Íslands. Undir það tók fyrrum alþingismaðurinn Helgi Seljan í
frétt 24 stunda í gær.
„Núna snýst þetta um að hafa allt til alls, alltaf og alls staðar,“ segir
hann. Þau hafa lifað tímana tvenna og segir Helgi ekki hægt að bera saman
lífsmáta nútíma Íslendinga við kreppu fyrri tíma. „Þetta gengur bara guð-
lasti næst að tala um ástandið í dag sem kreppu.“
Velti menn þessum orðum þeirra fyrir sér er ekki erfitt að taka undir
þau og segja erfitt að tala um kreppu. Henni er í orðabókum lýst sem
verulegum örðugleikum í efnahagslífinu, með atvinnuleysi og sölutregðu.
Atvinnuleysið í maí var eitt prósent, sem þýðir að 1.739 voru atvinnu-
lausir. Kaupmáttur launa hefur dregist saman um 3,9 prósent á einu ári,
vegna verðbólgu umfram launahækkanir. Matvara hækkaði um tæpar
þrjár krónur fyrir hverjar hundrað milli vikna í Bónus og hækkaði hlut-
fallslega mest þar, samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ.
En svo er það gengi krónunnar. Það er svo rokkandi að þrátt fyrir að nú
megi kaupa fyrir 65 þúsund krónur í stað 46 þúsund áður í útlöndum, er
ekki hægt að kaupa sömu hlutina og fyrr í evrulöndunum vegna geng-
ishækkana. Ferlegt, en ferðalög eru lífsstíll. Þeim má fresta.
Þá er heldur ekki hægt að fá fyrirgreiðslu í bönkum landsins og selja
heimili sitt í skiptum fyrir annað. Leiðinlegt, en ásættanlegt meðan við
höfum þak yfir höfuðið. Fáir bílar seljast og lánin á
þeim í einhverjum tilvikum orðin hærri en andvirði
þeirra. Slæmt, en ökum þeim þrátt fyrir bensínverðið.
Svona er hugsanlega staða margra en alls ekki allra.
Við höfum jú frétt af nokkur hundruð manns, sem
hafa misst vinnuna síðustu vikurnar. Fleiri uppsagnir
í atvinnulífinu eru boðaðar. Einhverjir þeirra sem nú
hafa misst vinnuna höfðu ekki reiknað með tekju-
missinum og skuldsett sig fyrir húsi, bílum og öðru.
Fái þeir ekki aðra vinnu fljótt munu þeir upplifa
kreppu, ekki aðeins lífsstíls- og sálarkreppu, heldur
gjaldþrot og það bítur engu síður nú en í den.
En almennt er engin kreppa, heldur þrengingar. Og
þeim er erfitt að kyngja þegar við viljum áfram allt,
alltaf og alls staðar.
Allt til alls, alltaf
og alls staðar?
Í dag tekur gildi nýtt frí-
tekjumark vegna atvinnutekna
aldraðra og öryrkja. Aldraðir
mega hafa 100
þús. kr. atvinnu-
tekjur á mánuði
án þess að það
skerði lífeyri
þeirra frá al-
mannatrygg-
ingum. Hið sama
gildir um öryrkja
til næstu ára-
móta. Með þessu batna kjör aldr-
aðra og öryrkja sem eru á vinnu-
markaði. En kjör þeirra aldraðra
sem ekki treysta sér til þess að
vinna eftir 67 ára aldur af heilsu-
farsástæðum eða öðrum ástæð-
um batna ekki við þetta. Rík-
isstjórnin hefur látið þá sem ekki
geta unnið bíða.
Björgvin Guðmundsson
gudmundsson.blog.is
BLOGGARINN
Ekki fyrir alla
Fréttir af rýmkuðum heimildum
ferðamanna til að taka með sér
áfengi inn í landið eru góðar.
Ég velti því samt
fyrir mér ef mað-
ur sleppir sterku
þá má taka meira
magn léttvíns en
ekki bjórs? Og að
sama skapi af
hverju má ekki
snúa þessu við og
ef maður sleppir
léttu þá mátti taka meira af
sterku?
Er þetta eitthvað rauðvínssnobb?
Þessar breytingar eru samt af
hinu góða.
Ef Árni einbeitir sér að því að
koma með nógu mörg lítil mál
sem eru til frelsissáttar þá breytir
hann stöðu sinni.
Friðjón R. Friðjónsson
eyjan.is/fridjon
Rauðvínssnobb
Það er dálítið súrrealískt að heyra
í Siv Friðleifsdóttur, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, tala um
stöðu Guðlaugs
Þórs innan rík-
isstjórnarinnar.
Guðlaugur hefur
verið eini heil-
brigðisráðherr-
ann á und-
anförnum árum
sem hefur farið
og tekið til. Sú til-
tekt var löngu tímabær, eftir
kyrrstöðu Framsóknarmanna.
Það væri gaman að heyra hvað
fyrrverandi ráðherra gerði fyrir
sömu ummönnunarstéttir? Það
er nú ekki langt síðan hún lét af
störfum, þannig að það ættu að
vera hæg heimatökin að benda á
stórvirkin.
Tómas Hafliðason
potturinn.com
Hefur tekið til
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@24stundir.is
Ég var mjög ánægður að heyra í fréttum
að fjármálaráðherra skuli hafa aukið svig-
rúm neytenda til að flytja vörur inn í landið, tollfrjálst.
Fréttin var sú að nú mega ferðamenn hafa með sér
vörur hingað til lands að verðgildi 65 þúsund íslenskra
króna án þess að greiða toll af þeim en áður mátti ein-
ungis flytja inn fyrir 46 þúsund. Ég hugsaði með mér
að nú væri ríkisstjórnin loksins að taka sér tak og
standa við stóru orðin um bættan hag neytenda.
En þegar horft er til hækkunarinnar út frá gengi krón-
unnar horfir málið ekki eins við. Gengi íslensku krón-
unnar hefur verið í frjálsu falli síðustu misserin þannig
að verðgildið hefur fallið um 35-40% gagnvart öðrum
gjaldmiðlum. Þegar öllu er á botninn hvolft er því ekki
um eins mikla hagsbót að ræða og ætla mætti.
Reyndar vekur það upp ákveðnar spurningar um
framtakssemi ráðherrans að upphæð ótollskyldrar
vöru skuli ekki hafa verið breytt á síðustu sex árum.
Ég tel að ráðherrann hefði mátt ganga lengra og
hækka þá upphæð sem ferðmenn mega koma með
tollfrjálsa til landsins enn meir. Þannig fengi íslenska
verslunin meira aðhald og þannig myndi samkeppnin
aukast sem yrði okkur öllum til hagsbóta. Ég vona
þess vegna að fjármálaráðherrann taki sér ekki önnur
sex ár til að ákvarða næstu hækkun.
Annars eru sex ár í því samhengi ekki langur tími hjá
Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn hefur haldið utan
um fjármálaráðuneytið frá því ég var tólf ára gamall, í
17 ár samfellt, og mér sýnist hann ekkert á förum það-
an. Árangurinn í efnahagsstjórnuninni síðustu 12
mánuði, frá því Framsóknarflokkurinn gekk úr rík-
isstjórn, er þó vægast sagt einstakur og vekur bjartsýni
um að landsmenn sjái að þörf er á breytingum á
landsstjórninni. Svo er bara að sjá hvernig þingflokkur
Samfylkingarinnar bregst við í næstu
fréttatilkynningu sinni en eins og
menn vita þá vill viðskiptaráðherra
rýmka reglur um tollfrjálsan inn-
flutning mjög. Skref fjármálaráðherr-
ans hlýtur að vera hænufet á mæli-
kvarða samráðherra hans í
ríkisstjórninni.
Höfundur er alþingismaður
Tollfrjáls innflutningur
ÁLIT
Birkir Jón
Jónsson
Allt til rafhitunar
Olíufylltir
rafmagnsofnar
Norskir hitakútar
Fyrir sumarhús og heimili.
Yfir 30 ára reynsla hérlendis.
Brenna ekki rykagnir•
Auðveld uppsetning á vegg•
250 - 400 - 750 - 800 - 1000•
- 1600 - 2000 wött