24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
„Við höfum talað við alla veðhafa og fengið munn-
legt samþykki og á föstudaginn fáum við það skriflegt.
Þá færast eignirnar yfir á Hag ehf.,“ segir Sigtryggur A.
Magnússon eigandi Hags ehf. sem gefið hefur Heilsu-
verndarstöðinni ehf. vilyrði um að leigja henni hús-
næði við Hólavað 1 til 11 í Reykjavík. Heilsuvernd-
arstöðin ehf. hefur gengið til samninga við
Reykjavíkurborg um að reka þar meðferðarheimili fyr-
ir áfengissjúka.
Eigandi húsanna við Hólavað 1 til 11 er hins vegar
þrotabú Í skilum ehf. sem einnig er í eigu Sigtryggs.
Bústjóri þess, Guðmundur Kristjánsson hæstaréttar-
lögmaður, segir útilokað að annað félag ráðstafi eign-
um þrotabúsins en bendir á það að „Að nafninu til eru
þetta eignir þrotabúsins, en það eru raunverulega veð-
hafarnir sem eiga þær og þeir ráða ferðinni.“
Sigtryggur segir að unnið sé á fullu að byggingu
húsanna og að allar tímáætlanir muni standast.
Samningur Reykjavíkurborgar við Heilsuverndar-
stöðina hefur farið hátt í borgarmálunum á undan-
förnu og fór minnihlutinn fram á að honum yrði frest-
að þar til Heilsuverndarstöðin ehf. gæti sýnt að
húsnæði undir starfsemina væri tryggt. elias@24stundir.is
Sigtryggur A. Magnússon eigandi Í skilum ehf. og Hags ehf.
Ganga til samninga á föstudag
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands, hefur
verið kjörin formaður heildar-
samtaka á sviði almannaheilla
sem stofnuð voru nú í júnílok.
„Svona heildarsamtök hafa starf-
að í öllum nágrannalöndunum
með mjög góðum árangri og
njóta ýmissa skattaívilnana og
undanþágna sem við gerum ekki
hér,“ segir Guðrún.
Ný hagsmunasamtök stofnuð
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
Skurðlæknar hafa nú tekið boði
ríkissáttasemjara um krónutölu-
hækkun og skrifað undir samn-
inga.
„Við læknar sættum okkur hins-
vegar ekki við boðna krónutölu-
hækkun,“segir Gunnar Ármanns-
son, formaður samninganefndar,
og bætir við að m.a. sé það meg-
inmarkmið lækna að ræða vakta-
fyrirkomulag lækna og að það
verði sá viðræðuflötur sem hugs-
anlega gæti leitt til undirritunar
samninga.
„Við munum grípa til aðgerða ef
ríkið hvikar ekki til í viðræðunum,
en það er staða sem læknar vilja að
sjálfsögðu forðast,“ segir hann og
bætir við að næsti fundur við
samninganefnd ríkisins verði á
morgun.
Uppsagnir ljósmæðra
„Ljósmæður eru búnar að fá
nóg, það ætti að meta störf okkar
að verðleikum og leiðrétta launin í
samræmi við náms- og hæfniskröf-
ur,“ segir María Egilsdóttir, ljós-
móðir og hjúkrunarfræðingur á
Akureyri. Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hefur nú borist uppsagn-
arbréf frá tæplega helmingi starf-
andi ljósmæðra á stofnuninni.
„Við bundum vonir við Sam-
fylkinguna í stjórnarsamstarfi og
vonumst því til að fá leiðréttingu á
laununum,“ segir María og bætir
við að fjöldauppsagnir ljósmæðra á
landinu öllu skapi grafalvarlegt
ástand.
Yfirvinnubann í vændum
Elsa Friðfinnsdóttir, formaður
félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
segir að síðasti fundur með samn-
inganefnd ríkisins hafi ekki borið
árangur.
„Það er mikil samstaða og bar-
áttuhugur hjá hjúkrunarfræðing-
um,“ segir hún og bætir við að
markmiðið með samningunum sé
að bæta grunnlaun hjúkrunarfræð-
inga. „Það er t.d. óásættanlegt að
reyndur hjúkrunarfræðingur með
fjögurra ára háskólanám á bakinu
og tuttugu ára starfsreynslu sé með
lág laun,“ segir hún og nefnir að
fólk innan stéttarinnar þurfi að
vinna yfirvinnu til að hækka tekjur.
Neyðarástand
á spítölunum
Skurðlæknar hafa samið en ljósmæður segja upp
Heilbrigðisstéttir
semja nú um kjör sín
➤ Ljósmæður krefjast launa-leiðréttingar, en fjölda-
uppsagnir þeirra munu hafa
ófyrirséðar afleiðingar ef ekki
tekst að semja.
➤ Hjúkrunarfræðingar munustanda við boðað
yfirvinnubann þann 10. júlí ef
samningaviðræður stranda.
VIÐRÆÐUR VIÐ RÍKIÐ
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Verð á bensíni og dísilolíu
hækkar enn og er algengt verð
á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu
177,40 krónur. Lítrinn af dísil-
olíu kostar víða nærri 94
krónur í sjálfsafgreiðslu. Verð
lækkaði í síðustu viku, en
hækkunin í þessari viku nem-
ur hærri upphæð en lækkunin
þá og hefur eldsneyti náð áður
óþekktum hæðum í verði.
Umferð bíla um þjóðvegi
landsins mælist nær allstaðar
minni en á sama tíma í fyrra.
Olía og bensín
hækka áfram
Bílaumferðin minnkar
„Við sömdum á
sömu nótum og
flugmenn Ice-
landair en samn-
ingurinn heldur
ekki í við verð-
bólgu. Það segir
sig sjálft,“ segir
Jakob Ólafsson,
formaður samninganefndar flug-
manna Landhelgisgæslunnar.
Samningurinn, sem undirritaður
var hjá ríkissáttasemjara í fyrra-
dag, gildir til 31. janúar 2009.
Hann er á svipuðum nótum og
almennu samningarnir sem gerð-
ir voru fyrr í vetur, að sögn Jak-
obs sem tekur það fram að menn
séu jafnáægðir og hægt sé að vera
miðað við ástandið.
ibs
Samið við
gæsluflugmenn
Fasteignafélagið Landic Property, sem er kjölfestufjárfestir í FL Group,
hefur keypt húsnæði Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) við Aðalstræti 6
og 8. Samtals er um að ræða um 4.000 fermetra af húsnæði. TM er í
eigu FL Group en samkvæmt upplýsingum frá FL Group eru kaupin
alfarið mál Landic Property og ótengt stefnu FL Group.
Í tilkynningu frá Landic Property kemur fram að eignir félagsins í
kvosinni í miðborg Reykjavíkur séu orðnar umtalsvert miklar. Félagið
á meðal annars Aðalstræti 2, gamla Geysishúsið, Aðalstræti 12, gamla
Ísafoldarhúsið sem hýsir Fiskmarkaðinn og Aðalstræti 16. mh
Landic Property kaupir hús TM
Félag fréttamanna og RÚV hafa
undirritað nýjan kjarasamning til
3 ára. Var samið um 21 þús. upp-
hafshækkun 1. ágúst nk. auk 40
þús. eingreiðslu og nýtt grunn-
launakerfi sem tekur gildi 1. mars
nk. Að auki hafa verið teknir upp
einstaklingsbundnir launasamn-
ingar sem endurskoðaðir eru ár-
lega, að sögn Aðalbjarnar Sig-
urðssonar formanns félagsins. þkþ
Fréttamenn RÚV
í launaviðtöl
„Þetta eru tvö félög sem hafa sýna
styrkleika. Kaupþing er stór og
sterkur alþjóðlegur banki og
SPRON hefur gengið mjög vel á
sínu markaðssvæði á höfuðborgar-
svæðinu. Samruninn á að efla starf-
semi félaganna,“ segir Ingólfur
Helgason, forstjóri Kaupþings á Ís-
landi.
Stjórnir Kauþings og SPRON
hafa samþykkt samrunaáætlun um
að Kaupþing yfirtaki eignir og
skuldir SPRON. Við samrunann fá
hluthafar í SPRON sem endurgjald
það sem svaraði til markaðsvirðis
félagsins í lok dags 30. júní, að við-
bættu fimmtán prósenta álagi. Þetta
samsvarar 3,83 krónum á hlut, að
því er fram kemur í tilkynningu til
NasdaqOMX-kauphallar Íslands.
Sextíu prósent af endurgjaldinu
verða í formi hluta í Exista hf. og
fjörutíu prósent í fomi hluta í Kaup-
þingi. magnush@24stundir.is
Kaupþing og SPRON að sameinast
Á að efla starfsemi
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu verð á S3 Sportþrennu
frá Lýsi, þetta eru 16 dagskammtar eða 48 stykki.
Verðmunur er töluverður eða 94% sem er 776 króna
munur á lægsta og hæsta verði, þar sem Bónus kom
ódýrust út en 11-11 var dýrust. Vert er að taka það
fram að könnunin er ekki tæmandi.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
94% munur á Sportþrennu
Ingibjörg
Magnúsdóttir
Neytendavaktin
Verslun verð verðmunur
Bónus 823
Melabúðin 1125 36,7%
Fjarðarkaup 1249 51,8%
Nóatún 1499 82,1%
Skagfirðingabúð 1499 82,1%
11-11 1599 94,3%
25% AFSLÁTTUR
SUMARTILBOÐ
®
- Lifið heil