24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 24

24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir Járnsmiðja Óðins Persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöfjsó Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Við gerð myndarinnar var ég stöð- ugt að vinna, skrifa og uppfæra handritið, skipuleggja tökur, tengj- ast samstarfsaðilum innanlands og erlendis og svo var eftirvinnslan endalaus,“ segir Ragnhildur sem er aðeins farin að slaka á eftir frum- sýningu myndarinnar. En síðustu mánuði hefur heimili hennar verið undirlagt vegna vinnu við myndina. Mynd Ragnhildar fjallar um plötusnúðinn DJ Platurn, öðru nafni Illugi Magnússon, bróður Ragnhildar, sem hefur búið í Oakl- and í Kaliforníu frá barnsaldri. Ragnhildur fylgir bróður sínum eft- ir á 3 vikna tónleikaferðalagi um Ís- land þar sem hann sýndi hæfni sína sem plötusnúður og skoðar ís- lensku hip-hop senuna með augum gests eða aðkomumanns. Myndinni er leikstýrt af Ragnhildi og fram- leidd af henni sjálfri og SPARK ehf. „Tökur hófust í október 2006,“ segir Ragnhildur aðspurð um vinnsluferli myndarinnar sem var tilbúin til sýningar í maí síðast- liðnum. Að vinnslu myndarinnar komu 10 manns að sögn Ragnhildar, „95% af vinnunni gerði ég sjálf ásamt klipparanum, sátum hlið við hlið einn vetur og klipptum hverja einustu sekúndu saman.“ En hvernig skyldi samband þeirra systkina vera eftir þetta nána samstarf? „Frábært,“ segir Ragnhildur. „Við erum mjög náin. Ég ber mikla virðingu fyrir honum og því hversu mikið hann leggur í að vaxa stöðugt í því sem hann tekur sé fyrir hend- ur. Þessi bransi er ekkert grín í Am- eríku. Svo eru hann einfaldlega al- mennilegur og gefandi náungi.“ Kvikmyndagerðakonan Ragnhildur er alltaf að Heimilið undirlagt Ragnhildur Magnúsdóttir fjölmiðla- og kvikmynda- gerðarkona vinnur mikið heima hjá sér. „Ég er ótrúlega tölvusjúk,“ segir hún. „Enda starfa ég sem dagskrárgerðarmaður og allt mitt nánasta fólk býr í útlöndum.“ Ragnhildur hefur nýlega frumsýnt nýja íslenska heimildarmynd, „From Oakland to Iceland: A Hip-Hop Homecoming.“ Matargestir gætu haldið að gest- gjafinn hafi misst vitið þegar þeim virðist sem hann ætli að bera pottaplöntu á borð fyrir þá. En þar hafa þeir rangt fyrir sér því hér er einfaldlega um að ræða salatskál og áhöld sem setja má saman á þenn- an skemmtilega hátt og vökva svo með dressingu. Hönnunin kemur frá fyrirtækinu black+blum sem er svissneskt/ensk fyrirtæki staðsett í London. Hönnuðir þess sérhæfa sig í ýmiss konar nytjahlutahönn- un fyrir heimilið í öðruvísi út- færslum svo og ráðgjöf til fyr- irtækja varðandi hönnun. Vörur frá fyrirtækinu má kaupa í versl- unum víða um Evrópu. maria@24stundir.is Dulbúin salatskál Breski hönnuðurinn Michelle Mason útskrifaðist með BA-gráðu í teikningu frá Chelsea College of Art og síðar með meistaragráðu frá Central St Martin’s í London. Hönnun Mason er litrík og form- föst en hún hannar allt frá lamp- askermum og púðum til taskna. Við hönnun þessarar fallegu mottu sem sést hér til hliðar taka blúndur á sig nútímalegt form en hönnunin kallast Stella og er búin til í Eng- landi úr hreinni ull. Mottan er því hlý og mjúk viðkomu og getur sett hlýjan tón á steingólf eða tónað vel við parket eða gamaldags viðargólf. Hönnun Mason fæst meðal annars í versluninni Lifestyle Bazaar í London. maria@24stundir.is Hlý og þægileg motta Bandaríska húsgagnafyrirtækið TRUCK er meðal þeirra sem hanna húsgögn og selja á vefsíð- unni www.modernnursery.com. Þar má meðal annars sjá falleg húsgögn, leikföng og skraut í barnaherbergi eftir fjölda hönn- uða. Hönnuðir TRUCK hanna húsgögn að nútímalegri fyrirmynd sem hlotið hefur fjölda viðurkenn- inga. Meðal þeirra eru barnarúm sem henta vel í lítil herbergi en það sameinar, rúm, skiptiborð og geymslupláss. Á hliðinni er skipti- borð sem taka má upp og niður á auðveldan hátt. Þegar barnið stækkar má síðan taka grindina niður og breyta skiptiborðinu í skrifborð en undir því er skápur. maria@24stundir.is Falleg húsgögn og hlutir í barnaherbergi Skemmtileg vefsíða Þeim sem finnst gaman að hrista sér og drekka kokteila vilja geta gert svo hvar sem er. Í þessari handhægu tösku sem heitir því heimsborg- aralega nafni New York Mini Travel Bar má finna tvö skotglös, vasapela, trekt, ístöng og upptakara, allt saman úr ryðfríu stáli. Kemur barinn í þægilega lokaðri tösku sem kippa má með sér á fjöll, í garðpartíið eða í ferðalagið. maria@24stundir.is Kokteill hvar og hvenær sem er Handhægur bar á ferð Listamaðurinn Michael Zimber fer ný- stárlegar leiðir í baðherbergishönnun og færir undur náttúrunnar inn í baðher- bergið. Zimber heggur baðkör úr heilum náttúrulegum grjóthnullungum og útkom- an er skemmtileg eins og má sjá á með- fylgjandi mynd. Að utan er áferðin hrjúf og gróf en að innan er baðkarið fínpússað þannig að það er slétt og þægilegt við- komu, sem er að sjálfsögðu nauðsynlegt til að tilganginum með því að fara í heitt slökunarbað sé náð. Auk þess að höggva baðkör hefur Zimber einnig unnið með vaska úr náttúrulegum steini með góðum árangri. Ef þú vilt ná tengingu við náttúr- una á eigin heimili eru baðkörin frá Zim- ber málið. hh Baðherbergi með náttúrulegu yfirbragði Baðkar höggvið í stein úr stórum grjóthnullungum Í Habitat má finna skemmtilegt leikfang með fræðslugildi sem fer einstaklega vel í barnaherbergjum. Hnattlíkan úr plasti og tússliti sem börnin nota til að fylla inn í lönd með litum. Flott í barna- herbergið

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.