24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 13

24 stundir - 02.07.2008, Blaðsíða 13
24stundir MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 13 Mörður Árnason, semlengi sat í útvarpsráði,skrifar hugleiðingar um uppsagnir hjá RÚV á heimsíðu Sam- fylkingarinnar. „Í sjálfu sér er lofsvert að yfirmenn Rík- isútvarpsins leiti leiða til að bregðast við, þótt sumum kunni að þykja undarlegt að fyrirtæki og stofnanir ríkisvaldsins skuli hefja fjöldauppsagnir eftir þær spár sem dunið hafa yfir um dökkar horfur á vinnumarkaði,“ segir Mörður og bætir síðar við. „Þessi stjórnvöld hljóta ásamt yfirmönn- um Ríkisútvarpsins – sem voru mjög áfram um breytingarnar og hafa sumir hagnast verulega á þeim í launum – að skýra út fyrir almenningi hvort heldur hér eru á ferð brigð á fyrirheitum eða frammúrkeyrsla í stofnuninni. Eða er ástæðan ósætti um mark- mið og leiðir?“ GuðniÁgústsson,formaður Framsóknarflokks- ins, rifjar upp á heimasíðu flokksins hverjir hefðu verið höfundar þjóðarsáttarinnar á sínum tíma og gluggar þar í bók Steingríms Hermannssonar en þar segir: „Þjóðarsáttarsamningar voru þríhliða samkomulag verka- lýðshreyfingar, vinnuveitenda og ríkisvalds, að ógleymdum hlut bænda og banka.“ Og síðar bætir hann því við um þá Ásmund Stefánsson og Þórarinn V. Þór- arinsson að þeir hafi verið fag- menn samninganna. „Einar Odd- ur [Kristjánsson] og Guðmundur J. [Guðmundsson] gegndu annars konar hlutverki. Þeir voru predikarar hvor með sínu nefi. Engir voru betri banda- menn þegar sann- færa þurfti fólk um skynsemi samning- anna. Stuðningur þeirra og eldmóður var ómissandi til að þjóðarsáttin yrði.“ Steingrímur nefnir fleiri til, m.a. þá Hauk Halldórsson og Hákon Sigurgrímsson og telur samtök bænda guðfeður þjóð- arsáttar. Hann nefnir Ögmund Jónasson, formann BSRB, einnig sem lykilmann í þessu.“ Ástæða þessarar upprifjunar er sú að Guðna finnst Moggi tileinka sátt- ina Sjálfstæðisflokknum og sér- staklega einum manni. elin@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Seinni hluta 19. aldar fór breski stjórnmálamaðurinn og námueig- andinn Cecil Rhodes til Suður-Afr- íku. Hann stofnaði De Beers sem selur um 60% af óunnum demönt- um en markaðshlutdeild fyrirtæk- isins var um tíma um 90%. Landið Ródesía var nefnt eftir honum. Ródesíu var skipt í Norður- og Suður-Ródesíu. Þegar löndin fengu sjálfstæði frá Bretum tók Norður-Ródesía nafnið Sambía og Suður-Ródesía nafnið Simbabve. Suður-Ródesía er frjósamt land. Um 300 þúsund hvítir landnemar settust þar að. Mikill meirihluti landsmanna var innfætt svart fólk. Minnihluti hvítra manna tók völd- in með því að hvítir íbúar höfðu margfaldan atkvæðisrétt á við svarta. Lýðræði var bundið við kynþátt en ekki einstaklinga. Þessu mótmælti nýlenduveldið Bretland. Hvítu landnemarnir ákváðu að andæfa. Það gekk ekki. Bretar og önnur Vesturlönd settu viðskipta- bann á Suður-Ródesíu auk annarra þvingana. Ian Smith, leiðtogi hvítra, var hrakinn frá völdum. Í hans stað varð presturinn Mugabe forseti árið 1980. Stjórn hvíta minnihlutans var ekki ógnarstjórn þótt vafalaust hafi margt miður fallegt gerst í upp- reisninni gegn hvíta minni hlutan- um. Lífskjör voru með því besta í Afríku. Lýðræðið var þó ekki virt. Það var sjálfsögð krafa að allir íbú- ar landsins hefðu jöfn áhrif á stjórn landsins. Með sama hætti og það er krafa lýðræðissinna hvarvetna, að einstaklingarnir hafi jafnan at- kvæðisrétt. Margir bjuggust við miklu af uppreisnarleiðtoganum Mugabe. Hann var upphafinn á Vesturlönd- um sem frelsishetja. Helsti keppi- nautur hans um hylli svartra íbúa landsins, Joshua Nkomo, fékk þó fljótlega að kenna á því að vera andstæðingur hans sem og aðrir síðar. Stjórn Mugabe hefur aldrei verið fullkomin lýðræðisstjórn. Fyrir nokkrum árum byrjaði Mugabe að ofsækja hvíta íbúa landsins og flæmdi hvíta bændur af jörðum sínum. Margt hvítt fólk var drepið eða rekið úr landi eigna- laust. Fólki var mismunað eftir kynþætti, en Vesturlönd gerðu ekki miklar athugasemdir, það voru jú hvítir sem urðu fyrir ofsóknum. Síðar beindust ofsóknirnar gegn fleirum og nú eru 3,5 milljónir íbúa landsins eða fjórðungur flú- inn úr landi. Verðbólga mælist í hundruðum prósenta. Matvæla- forðabúið gamla brauðfæðir sig ekki eftir að hirðsveinar Mugabe tóku við búum hvítu bændanna. Mugabe gat farið sínu fram og fékk jafnan stuðning forsætisráðherra Suður-Afríku hvaða hryðjuverk sem hann svo gerðist sekur um. Fyrir nokkrum dögum fóru fram forsetakosningar í landinu. Mótframbjóðandi Mugabe gafst upp nokkrum dögum fyrir kosn- ingar. Þá höfðu dauðasveitir Mu- gabe drepið hundruð virkra stuðn- ingsmanna hans. Stjórnmálakona, andstæðingur Mugabe, mátti þola að börnum hennar var misþyrmt á hroðalegan hátt. Henni var nauðg- að af 10 hermönnum og heimilið brennt upp til agna. Margar sam- bærilegar hryllingssögur hafa verið staðfestar. Þrátt fyrir þetta grípur samfélag þjóðanna ekki inn í. Versti harðstjórinn sem nú ríkir, Mugabe, fer sínu fram. Mannrétt- indabrot sem beinast gegn svörtu fólki eru jafn alvarleg og mannrétt- indabrot sem beinast gegn öðrum kynþáttum. Það gildir jafnvel þó að engin olía finnist í viðkomandi löndum. Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við og beita harðstjórann í Simbabve því harðræði að hann hrökklist frá völdum, sem og ógn- arstjórnina í Súdan sem fer með morðum, ránum og nauðgunum um Darfúr-hérað. Þegar ríkisstjórnir virða ekki þau grundvallarmannréttindi borgara sinna sem er forsenda allra annarra mannréttinda, réttinn til lífs, þá á og verður alþjóðasamfélagið að grípa inn í og koma á nýrri löglegri stjórn. Engin stjórn nokkurs ríkis getur talist lögleg meðan hún myrðir eigin þegna. Stjórn ríkis sem myrðir eigin borgara eða meinar þeim um lífsbjörg í neyð breytist úr stjórn lands eða ríkis í hryðjuverkasamtök. Það er skylda þeirra sem unna mannréttindum og lýðræði að berjast gegn öllum slíkum harðstjórnum Höfundur er alþingismaður Mugabe verður að fara VIÐHORF aJón Magnússon Versti harð- stjórinn sem nú ríkir, Mu- gabe, fer sínu fram. Mann- réttindabrot sem beinast gegn svörtu fólki eru jafn alvarleg og mannréttindabrot sem beinast gegn öðrum kyn- þáttum. ATVINNUBLAÐIÐ atvinna@24stundir.is alltaf á laugardö gum Pantið gott pláss t ímanlega Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Miðvikudagur 2. júlí 2008 Vopnaglamur verður alls- ráðandi hjá víkingunum á Miklatúni í sumar. » Meira í Morgunblaðinu Víkingaherinn Katrín Þóra Víðisdóttir og Erla Björk Pálmadóttir verða fyrsta samkynhneigða parið sem er vígt í staðfesta sam- vist í íslenskri kirkju. Vígsl- an fer fram í Miðfirði. »Meira í Morgunblaðinu Vígðar í hjónaband RottenTomatoes.com hefur valið 25 mestu hörkukvendi bíómyndanna. »Meira í Morgunblaðinu Harðhausa fljóð Fasteignafélagið Landic Properties breiðir úr sér. » Meira í Morgunblaðinu Hver á Kvosina?

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.