24 stundir - 04.07.2008, Blaðsíða 19

24 stundir - 04.07.2008, Blaðsíða 19
Írskir dagar á Akranesi Taktu helgina frá og kíktu á Skagann! Góða skemmtun á Írskum dögum! Írskir dagar verða haldnir hátíðlegir á Akranesi dagana 4. - 6. júlí n.k.. Þessi magnaða hátíð er ein stærsta fjölskylduhátíð sem haldin er á Íslandi og laðar til sín þúsundir gesta í heimsókn á Skagann á hverju ári. Íbúar bæjarins leggja mikinn metnað í hátíðina og skreyta bæinn hátt og lágt með fánum, blöðrum og veifum í írsku fánalitunum - að sjálfsögðu! Brottfluttir Skagamenn flykkjast á fornar slóðir til að taka þátt í gleðinni - en auðvitað eru allir boðnir velkomnir á Írska daga! Ekki missa af þessari frábæru helgi á Akranesi! Verið velkomin á Írska daga 2008! www.irskirdagar.is 4.-6. júlí 2008 Tjaldsvæðið við Kalmansvík á Akranesi er opið á Írskum dögum en aðgangur að svæðinu er takmark- aður við einstaklinga 23 ára og eldri og fjölskyldufólk. Þessum reglum og almennum reglum um umgengni á tjaldsvæðum verður fylgt fast eftir. Fimmtudagur 3. júlí Gamli vitinn á Breið - Ljósmyndasýning Friðþjófs Helgasonar Á sýningunni, sem haldin er inni í gamla vitanum á Breiðinni eru myndir sem Friðþjófur hefur tekið á Breiðinni á undanförnum árum. 15:00 - 17:00 Húsasmiðjan býður Skagamönnum í grill og gleði Kíktu á svæðið og fáðu þér eina með öllu! 20:00 Írsk kráarstemning á Safnasvæðinu Ekta írsk kráarstemning og írskir réttir á boðstólum. Sýndur verður ekta "Riverdance" en annars verður míkrafónninn opinn hverjum þeim sem vill stíga á svið og láta ljós sitt skína. 21:00 Írskir tónleikar í Skrúðgarðinum! Blues- og rocktónlist eftir írska og írskættaða tónlistarmenn og hljómsveitir. Föstudagur 4. júlí Bylgjan í beinni allan daginn frá Skrúðgarðinum! Jet Ski leiga á Langasandi alla helgina Hefurðu prófað þotuskíði? Ef ekki - er þá ekki kominn tími til? Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Skrúðgarðinum - Ljósmyndasýning Ljósmyndasafns Akraness. Á sýningunni eru ljósmyndir frá Írskum dögum 2007. Írsk stemning á Safnasvæðinu Fjölbreytt dagskrá í Safnaskálanum frá kl. 14:00. 10:00 Opnunarhátíð Írskra daga á Akratorgi Tæplega 350 börn frá öllum leikskólum bæjarins koma saman á Akratorgi, syngja saman og skemmta sér til að skapa réttu stemninguna. 14:00-18:00 Tívolí á Jaðarsbökkum Frábært tívolí fyrir börn á öllum aldri! 20 metra fallturn, hringekjur klessubilar og hopp- kastalar. 14:00-18:00 Írskir dagar í miðbænum! Fjölbreytt dagskrá, dans og tónlist. 14:00-18:00 Markaðsstemning í Íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum Götugrillin vinsælu um allan bæ um kvöldið 20:30 "Ceilidh" ball í Þorpinu við Þjóðbraut (gamla tónlistarskólanum). Hljómsveitin "The Reel Thing" heldur uppi ekta írsku stuði. Dagskráin er opin öllum og aðgangur er ókeypis. 22:00 - 24:00 Kvöldvaka á Kirkjubraut í boði Norðuráls! - Hljómsveitirnar Í svörtum fötum og Ný dönsk. Ballstemning í miðbænum fram eftir kvöldi! Norðurál býður Skagamönnum, gestum og gangandi til kvöldvökunnar og óskar öllum góðrar skemmtunar á Írskum dögum! Tískusýning frá Ozone um kl. 23:00 Laugardagur 5. júlí Írsk stemning á Safnasvæðinu Fjölbreytt dagskrá í Safnaskálanum frá kl. 14:00. 08:00 - 16:00 Opna Guinnes golfmótið á Garðavelli Ræst verður út frá kl. 08:00 - 16:00. Glæsilegir vinningar í boði. Akraneshlaupið Ræst verður frá Akratorgi. Kl. 10:30 - 21 km hlaup, kl. 11:00 - 10 km hjólreiðar og kl. 11:30 - 10 hlaup, 3.5 km skemmtiskokk, 2 og 3.5 km ganga. Skráning á Jaðarsbökkum og á Akratorgi áður en hlaup hefjast. 10:00-12:00 Sandkastalakeppni á Langasandi Glæsilegir vinningar í boði - láttu sköpunarþörfina fá útrás! Taktu fram skóflu og fötu og mættu á Langasand! 11:00-13:00 Dorgveiðikeppni á "Stóru bryggjunni" (Aðalhafnargarði) í boði verslunar- innar Módel á Akranesi. Glæsilegir vinningar í boði! 11:00-18:00 Tívolístemning á Jaðarsbökkum allan daginn Frábært tívolí fyrir börn á öllum aldri! 20 metra fallturn, hringekjur klessubilar og hopp- kastalar. 10:00 -18:00 Markaðsstemning í Íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum 12:00 "Bylgjan í beinni" frá Jaðarsbökkum Hemmi Gunn og Svansí í hörkustuði ásamt fjölda góðra gesta. 13:00 Bikarmót í bekkpressu í Akraneshöllinni 13:00 - 16:00 Mótorcross á Langasandi Glæsileg sýning, spól og læti frá félögum í Vélhjólaíþróttafélagi Akraness. 14:00-16:00 "Hittnasta amman" í körfu á Jaðarsbakkasvæðinu! Áfram amma! Skráning á staðnum. Glæsilegir vinningar! Í fyrra mættu um 60 ömmur á vítapunktinn - hvaða amma rústar þessu í ár? 14:00-17:00 Amerískir eðalkaggar á Akranesi! Glæsilegir amerískir eðalkaggar frá bílaklúbbnum Krúser heimsækja Skagann og verða til sýnis við Akraneshöll. 15:00 Rauðhærðasti Íslendingurinn á Jaðarsbökkum! Hin árvissa keppni um Rauðhærðasta Íslendinginn fer fram á Jaðarsbökkum - hver verður rauðhærðastur í ár! Glæsilegur ferðavinningur í boði 15:00-17:00 Íþróttahúsið að Jaðarsbökkum Danssýning - "Riverdance" - 4 stúlkur frá Skotlandi sýna þennan magnaða dans. Dansflokkurinn "Le Rose" sýnir Tribal magadans. Sönghópurinn "Oran Mór" syngur írsk þjóðlög. Þjóðlagasveitin BiBeó, sem kemur frá Hebredeseyjum við Skotland, flytur nokkur lög, sem öll eru sungin á keltnesku. Hljómsveitin kemur til Íslands eingöngu til að taka þátt í Írskum dögum. Minnum á tónleika með sveitinni í Skrúðgarðinum um kvöldið. Götuleikhúsið setur skemmtilegan svip á bæjarlífið á meðan á hátíðinni stendur. 20:00 - 23:00 Unglingaball í "Þorpinu" Ballið er fyrir 13 - 16 ára (unglingar fæddir ´92 - ´94). DJ Þórður Daníel frá FM 95.7. 20:30-23:30 Café Mörk - Oran Mór Keltnesk söngveisla þar sem sönghópurinn Oran Mór flytur írskættaðar söngperlur. 21:00 Tónleikar í Skrúðgarðinum. Þjóðlagasveitin BiBeó, sem kemur frá Hebredeseyjum við Skotland. Ekki missa af þessu! Ekta þjóðlagatónlist í anda Írskra daga. Lopapeysan 2008 Stærsta og magnaðasta ball ársins á Íslandi! Raggi Bjarna, Jet Black Joe og Sálin hans Jóns míns. Miðaverð í forsölu í verslun Eymundsson kr. 3000 en kr. 4000 á staðnum um kvöldið. Sunnudagur 7. júlí 14:00 - 17:00 Fjölskyldudagur í Skógræktinni - Lokahátíð Írskra daga 2008! Skemmtilegur dagur fyrir alla fjölskylduna. Grill og Svali fyrir alla! Hoppkastalar og önnur frábær leiktæki. Danssýning - Danshópur frá FIMA - Fimleikafélagi Akraness. 15:00 Barnaskemmtun Söngvaborgar! Söngavkeppni Akraness - Allir krakkar á aldrinum 7 - 14 ára geta tekið þátt í þessari fráb æru keppni. 16:00 Skemmtidagskrá Söngvaborgar. Frábær dagskrá með leiknum atriðum og söng af Söngvaborgunum. Fram koma Sigga Beinteins, María Björk, Lóa Ókurteisa, Masi og Subbi sjóræningi. Aðgangur að dagskrá Írskra daga er ókeypis nema annað sé tekið fram! b r o t ú r d a g s k r á b r o t ú r d a g s k r á b r o t ú r d a g s k r á b r o t ú r d a g s k r á b r o t ú r d a g s k r á b r o t ú r d a g s k r á b r o t ú

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.