24 stundir - 04.07.2008, Blaðsíða 27

24 stundir - 04.07.2008, Blaðsíða 27
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 27 „Við gerum okkur alltaf daga- mun á afmælisdegi Sólheima en sérstaklega núna vegna þess að þessi höfuðbygging er loksins tilbúin og hún skiptir okkur af- skaplega miklu máli. Því verður öllu tjaldað til,“ segir Guðmundur Ármann, framkvæmdastjóri Sól- heima, en svonefnt Vigdísarhús verður formlega opnað þar kl. 15:30 á morgun. Í húsinu verður mötuneyti, bakarí, matvinnsla og skrifstofur. „Húsið er búið að vera í bygg- ingu síðan 2004 en það mun ger- breyta allri okkar aðstöðu og verða til mikilla bóta.“ Er það nefnt eftir Vigdísi Finn- bogadóttur, fyrrverandi forseta Ís- lands og vildarmanni Sólheima, en hún gaf meðal annars eftirstöðvar kosningasjóðs síns til samfélagsins á sínum tíma. Mun Vigdís sjálf opna húsið formlega og Sigurbjörn Einarsson biskup flytur blessun. Ólöf Arnalds heldur tónleika Meðal þeirra sem fagna með íbúum Sólheima er Ólöf Arnalds en hún heldur tónleika í Sólheima- kirkju kl. 14 á laugardag. Á sunnu- dag mun Garðar Cortes einnig syngja einsöng í guðsþjónustu sem hefst í kirkjunni kl 14. hj Tónleikar og fleira á 78 ára afmæli Sólheima Vigdísarhús opnað Gerbreytir aðstöðunni Vigdísarhús er 840 fm og mun bæta aðstöðuna á Sólheimum til muna. 19. eða 26. júlí frá kr. 54.990 Bjóðum nú frábært sértilboð til Rhodos í viku eða 2 vikur 19. eða 26. júlí á tvo okkar vinsælu gististaði. Hotel Rhodos Palace ****+ með hálfu fæði eða íbúðahótelið Sun Beach ****. Hótelin eru frábær valkostur sem býður góðan aðbúnað fyrir hótelgesti. Þau eiga það sameiginlegt að vera með góða sundlaugagarða, sólbaðsaðstöðu og úrval veitingastaða. Skemmtidagskrá er í boði og mikið lagt upp úr leik og skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna. Tryggðu þér þetta einstaka tilboð og njóttu lífsins með fjölskyldunni við góðan aðbúnað á eyju sólarinnar. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Sun Beach Verð kr. 54.990 Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Sun Beach Resort í viku, sértilboð 19. eða 26. júlí. Aukavika kr. 17.000. Verð kr. 69.990 Netverð á mann , m.v. 2 saman í íbúð á Sun Beach Resort í viku, sértilboð 19. eða 26. júlí. Aukavika kr. 17.000. Rhodos Palace Verð kr. 74.990 - hálft fæði Netverð á mann , m.v. gistingu í tvíbýli með hálfu fæði í hótelherbergi á Rhodos Palace Hotel ****+ í viku. Aukavika kr. 35.000. Brottför 26. júlí kr. 10.000 aukalega. Aukavika í brottför 26. júlí kr. 45.000 Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Síðustu sætin! Rhodos Palace ****+ með hálfu fæði Aparthotel Sun Beach **** Rhodos Auglýsingasíminn er 510 3744

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.