24 stundir - 04.07.2008, Síða 27
24stundir FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 27
„Við gerum okkur alltaf daga-
mun á afmælisdegi Sólheima en
sérstaklega núna vegna þess að
þessi höfuðbygging er loksins
tilbúin og hún skiptir okkur af-
skaplega miklu máli. Því verður
öllu tjaldað til,“ segir Guðmundur
Ármann, framkvæmdastjóri Sól-
heima, en svonefnt Vigdísarhús
verður formlega opnað þar kl.
15:30 á morgun. Í húsinu verður
mötuneyti, bakarí, matvinnsla og
skrifstofur.
„Húsið er búið að vera í bygg-
ingu síðan 2004 en það mun ger-
breyta allri okkar aðstöðu og verða
til mikilla bóta.“
Er það nefnt eftir Vigdísi Finn-
bogadóttur, fyrrverandi forseta Ís-
lands og vildarmanni Sólheima, en
hún gaf meðal annars eftirstöðvar
kosningasjóðs síns til samfélagsins
á sínum tíma. Mun Vigdís sjálf
opna húsið formlega og Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur blessun.
Ólöf Arnalds heldur tónleika
Meðal þeirra sem fagna með
íbúum Sólheima er Ólöf Arnalds
en hún heldur tónleika í Sólheima-
kirkju kl. 14 á laugardag. Á sunnu-
dag mun Garðar Cortes einnig
syngja einsöng í guðsþjónustu sem
hefst í kirkjunni kl 14. hj
Tónleikar og fleira á 78 ára afmæli Sólheima
Vigdísarhús opnað
Gerbreytir aðstöðunni
Vigdísarhús er 840 fm og
mun bæta aðstöðuna á
Sólheimum til muna.
19. eða 26. júlí frá kr. 54.990
Bjóðum nú frábært sértilboð til Rhodos í viku eða 2 vikur 19. eða
26. júlí á tvo okkar vinsælu gististaði. Hotel Rhodos Palace ****+
með hálfu fæði eða íbúðahótelið Sun Beach ****. Hótelin eru frábær
valkostur sem býður góðan aðbúnað fyrir hótelgesti. Þau eiga það
sameiginlegt að vera með góða sundlaugagarða, sólbaðsaðstöðu og
úrval veitingastaða. Skemmtidagskrá er í boði og mikið lagt upp úr
leik og skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna. Tryggðu þér þetta
einstaka tilboð og njóttu lífsins með fjölskyldunni við góðan
aðbúnað á eyju sólarinnar.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Sun Beach
Verð kr. 54.990
Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, í íbúð á Sun Beach
Resort í viku, sértilboð 19. eða 26. júlí.
Aukavika kr. 17.000.
Verð kr. 69.990
Netverð á mann , m.v. 2 saman í íbúð á
Sun Beach Resort í viku, sértilboð 19.
eða 26. júlí. Aukavika kr. 17.000.
Rhodos Palace
Verð kr. 74.990
- hálft fæði
Netverð á mann , m.v. gistingu í tvíbýli
með hálfu fæði í hótelherbergi á
Rhodos Palace Hotel ****+ í viku.
Aukavika kr. 35.000. Brottför 26. júlí kr.
10.000 aukalega. Aukavika í brottför 26.
júlí kr. 45.000
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Síðustu sætin!
Rhodos Palace ****+
með hálfu fæði
Aparthotel Sun Beach **** Rhodos
Auglýsingasíminn er 510 3744