Sunnudagsblaðið - 22.11.1964, Blaðsíða 15
Það er horft á þig
úr skugganum
KVÖLÐ eitt hringdi síminn á
skrifborði leyniþjónustunnar hjá
Scotland Yard. Lögreglumaður
lyíti tólinu, reiðubúinn til starfa.
í símanum heyrðist kvenmanns
rödd, mjúk, róleg og skýr. •
— Halló, G. H. sextíu og
tveir taíar, sagði hun, og þegar
hún heyrði, að á sig var hlustað,
bætti hún við. — Ráðizt verður
á skrifstofumann, sem borgar út
laun, og hann rændur, Mare-stræti
Haekney, á morgun.
Meira var það ekki. Leynilög-
l’Pglumaðurinn reyndi að hlusta
betur, en heyrði ekki annað en
smellinn, sem kom, þegar konan
við hinn endann hengdi á.
Scotland Yard hafði fengið
fyrstu skilaboðin frá þeim liðs-
flokki sínum, sem starfar í imdir-
heimmjj glæpamannanna, .drauga^
liðinu’ svopefnda.
Lítum um öxl smástund.
Um það bil ári eftir að síðustu
heimsstyrjöld lauk, átti glæpa-
deild Seotland Yards i miklum
erfiðleikum, með því að ný glæpa-
alda reið yfir.
Reyndar kom þetta mönnum
ekki á óvart. Hryðjuverk fylgja
ævinlega í kjölfar styrjalda og
starfsmenn Scotland Yards vissu,
hvers var von. En í þetta sinn
voru óbótamennirnir óhugnanlega
Wagnaðir.
Þess vegna var það, að einn af
forystumönnum lögreglumálanna,
Ronald Howe, fékk þá hugmynd,
að Scotland Yard hefði sína eig-
in leyniþjónustu, útvegaði sér
örugga karla og konur, sem hefðu
æfingu í lögreglustörfum og
væru gædd kjarki og framtaks-
semi, sem dygði þeim til að kom-
ast á slóðir glæpamanna bak við
tjöldin. Með því móti hlytu ýms-
ar. mikilvægar upplýsingar að
fást.
Liðsmenn þessir yrðu að vera
vel dulbúnir, gersamlega óþekkj-
anlegir, svo að enginn þeirra yrði
nokkru sinni settur í samband við
lögregluna.
I>etta er djörf húgmynd, sem
aldrei fyrr hafði verið framkvæmd
hjá brezkri lögreglu. En Rowc
féll hugmyndin því betur, sem
liann hugsaði meira um hana. Og
bann gekk rösklega til verks við
framkvæmdina, þvi að eftir viku-
tíma var hið fræga „Draugalið”
Scotland Yard komið á dagskrá.
Eftir vandlega athugun valdi
Howe þrjátíu nöfn karla og kvenna
og skrifaði þau niður á lista, —>
en læsti hann síðan niður í skrif-
borði sínu. Aðeins þetta eina ein-
tak var til.
Að svo búnu ræddi Howe eins
lega við hvern og einn af þessu
fólki og sagði ákýrt og skorinort,
að starf það, sem hann ætlaðist
til af þeim, gæti orðið mjög
hættulegt.
Howe hafði valið rétt: Hver af
öðrum af þessum þrjátíu manna
hópi kvaðst fús til að prófa þessa
nýju' tegund lögreglustarfa. Og
hverjum og einum gaf hann eftir-
farandi leiðbeiningar:
— Starfið liggur í því, að tengj-
ast á einhvérn hátt lífi undir-
heimalýðsijis. Eg kippi mér ekki
upp við að jafnvel hinn minnsti
árangur taki langan tima. Fyrst
og fremst ætlast ég til, að þið
komið upp um glæpi áffur en þeir
eru drýgðir. Og þegar þið hafið
samband við okkur, notið þið dul-
mál. ....
Eftir þetta lögðu þeir fyrstu úr
.draugaliðinu’ smátt og smátt út
á hina liættulcgu en ærdntýra-
legu leið. Mánuðum saman heyrð-
ist ekki orð frá þeim. Unz þetta
kvöld, að síminn hringdi.
Undir eins og símkall G. ít. 62
hafði verið móttekið, var hafizt
handa. Deildarforinginn kallaði á
undirmenn sína, og ráðgazt var
um, hvernig mæta skyldi hinni
boðuðu árás.
Mare-stræti í Hackney er lÖng
og mikið notuð umferðaræð, og
engin vísbending hafði verið gef-
in um, hjá hvaða fyrirtæki hann
vann, gjaldkerinn, sem ræna átti;
og ekki var heldur neitt minnzt
á tímann. Leynilögreglan þurfti
því í mörg horn að líta við undir-
búninginn.
Daginn eftir höfðu leynilögreglu
menn komið sér fyrir á ýmsum
stöðum í götunni. Sumir þeirra
voru dulbúnir sem gluggahreins*
arar með tæki sín. Aðrir voru
önnum kafnir við að mála, gera
við götuna, líta eftir gasvélum
ellegar selja einhverjar vörur. Að
baki glugganna í sumum húsun-
um voru leynilögreglumenn með
faídar talstöðvar, og höfðu þeir
samband við félaga sína í sérstök-
um bllum, sem tllbúnir vorv tit
að' élta hugsanlegan flótta.
Frásögn Stanley Firmin ctf
hinu dularfulla skuggaUúi
ScotJand Yard í London
— — . ■ ■■»——■■■H.iy.l. ■■!■■■ ■■ ■■■'■ ' I ' ' 1 ■■
ALÞÝÐUBLAÐIÐ m 6UNNUDAGSBLAQ g3J
' .... "* *'* •• t>