24 stundir - 28.08.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 24stundir
flugfelag.is
Gríptu augnablikið!
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Flugvallarskattar innifaldir, takmarkað sætaframboð, einungis bókanlegt á netinu.
Akureyri frá 3.990 kr.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 28
Amsterdam 18
Alicante 28
Barcelona 27
Berlín 22
Las Palmas 25
Dublin 17
Frankfurt 24
Glasgow 15
Brussel 18
Hamborg 17
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 18
London 19
Madrid 31
Mílanó 24
Montreal 17
Lúxemborg 17
New York 18
Nuuk 4
Orlando 26
Osló 14
Genf 24
París 22
Mallorca 31
Stokkhólmur 21
Þórshöfn 12
Vaxandi austlæg átt er líður á daginn, einkum
við suðurströndina og á Vestfjörðum.
Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
VEÐRIÐ Í DAG
12
12
14
10
14
Vaxandi austlæg átt
Austan og síðan suðaustan 10-18 m/s,
hvassast S-til, en norðaustan 15-20 á Vest-
fjörðum og talsverð rigning um allt land. Úr-
komuminna og mun hægari norðaustanlands
seinni partinn. Hiti 8 til 13 stig.
VEÐRIÐ Á MORGUN
11
11
11
9
11
Talsverð rigning
Árni Mathiesen fjármálaráðherra hefur lýst
sig vanhæfan til þess að skipa í stöðu for-
manns sjálfseignarstofnunarinnar Byr-sjóður
ses. Þetta staðfesti Böðvar Jónsson, aðstoð-
armaður Árna, og segir ástæðuna þá að Árni
sé einn stofnfjáreigenda í Byr.
Á fundi stofnfjáreiganda í Byr sem haldinn
var á Hótel Nordica í gær var samþykkt að
breyta sparisjóðnum í hlutafélag. Byr-sjóður
ses. verður eigandi 6,5 prósenta af heildar-
hlutafé bankans en megintilgangur sjóðsins
er samkvæmt samþykktum „að stuðla að
vexti og viðgangi í rekstri Byrs sparisjóðs hf.“
Hlutafélagsvæðing Byrs er þó háð samþykki
Fjármálaeftirlitsins.
Ætluð svik með stofnfjárbréf
Karli Georg Sigurbjörnssyni hæstaréttar-
lögmanni hefur verið birt ákæra fyrir fjársvik
vegna milligöngu hans á sölu tíu stofn-
fjárbréfa í Sparisjóði Hafnarfjarðar (SH)
snemma árs 2006. SH sameinaðist síðar
Sparisjóði vélstjóra og tók upp nafnið Byr. Í
ákæru ríkislögreglustjóra er Karli gefið að
sök að hafa „hagnýtt sér ranga hugmynd“
Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda,
sem átti hluta bréfanna, og fjögurra annarra
eigenda bréfa með því að greiða þeim 25
milljónir fyrir hvert stofnbréf á sama tíma og
hann hafði samið við kaupendur bréfanna
um að greiða 45 milljónir fyrir hvert þeirra.
Þannig á Karl að hafa haft af fimmmenning-
unum 200 milljónir. Meðal þeirra sem
keyptu bréfin voru Fons, Vatnaskil ehf. og
Fjárfestingarfélagið Klettur.
thordur@24stundir.is
Stofnfjáreigendur samþykktu í gær að hlutafélagavæða Sparisjóðinn Byr
Fjármálaráðherra vanhæfur við skipun
Fjármálaráðherra van-
hæfur til að skipa formann.
Kostnaður vegna ferða Þorgerðar Katr-
ínar Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra og fylgdarliðs hennar til Kína
nemur alls um 5 milljónum króna sem
greiddar eru af menntamálaráðuneyt-
inu. Þorgerður fór tvær ferðir á Ól-
ympíuleikana sem ráðherra íþrótta-
mála.
Í fyrri ferðinni, 5. til 14. ágúst, voru
með í för eiginmaður ráðherra auk
ráðuneytisstjóra og maka hans. Flogið
var um Kaupmannahöfn með Flugleiðum til Kína og var fargjald á
mann 446.320 kr. eða tæpar 1,8 milljónir fyrir öll fjögur. Gistikostn-
aður liggur ekki fyrir þar sem reikningur frá ÍSÍ hefur ekki borist en
með dagpeningum ráðherra og ráðuneytisstjóra, sem eru 30 þúsund
og 12 þúsund á dag, er heildarkostnaður fyrri ferðarinnar rúmar 2,2
milljónir. Í seinni ferðinni til Kína voru eiginmaður ráðherra og ráðu-
neytisstjóri með í för. Seinni ferðin kostaði um 2 milljónir króna að
undanskildum gistikostnaði. mbl.is
Kínaferðir upp á 5 milljónir
Verðbólgan var 14,5 prósent í
ágúst og hefur hún ekki verið
meiri í 18 ár, en í júlí árið 1990
var hún 15,5 prósent samkvæmt
upplýsingum á vef Hagstofunnar.
Verð á mat og drykkjarvörum
hækkaði um 1,8 prósent en verð á
fötum og skóm um 4,7 prósent.
ejg
Verðbólga ekki
meiri í 18 ár
„Ástandið er mjög alvarlegt. Mikið
offramboð og bankarnir hættir að
lána,“ segir Magnús Árni Skúla-
son, hagfræðingur hjá Reykjavík
Economics, um íslenska fast-
eignamarkaðinn en fyrirtækið
vinnur nú að rannsókn á honum.
Hún hefur meðal annars leitt í ljós
að framboð á íbúðum er nú 50%
meira en á sama tíma í fyrra. „Það
hefur þegar orðið 10% raunlækk-
un frá því í fyrir rúmu ári því
verðbólgan er 14%. Það þýðir að
eigið fé þeirra sem keyptu sér íbúð
þá með 90% láni er uppurið.
Þannig að þau eiga ekkert í íbúð-
inni,“ segir Magnús. ejg
Ástand fasteignamarkaðar slæmt
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Síðastliðinn laugardag var ég látin
vita að drengurinn minn kæmist
ekki strax inn,“ segir Halla Rut
Bjarnadóttir en tekur fram að vegna
einhverfu sonar síns sé hann fyrstur
í röð þeirra barna sem eru á for-
gangslista.
„Fyrir einhverf börn er pró-
gramm allan daginn mikilvægt, við
höfuðum líka lent í hremmingum
með leikskóla, því margítrekaði ég í
þetta skipti hvort það væri ekki
pottþétt að hann kæmist inn,“ segir
Halla og bætir við að stjórnendur
frístundaheimila hjá borginni hafi
greinilega slegið mönnunarvanda-
málinu á frest fram á síðustu stund.
Gagnrýnir stjórnunarhætti
„Það er furðulegt að stjórnar-
fundur í íþrótta- og tómstundaráði
hafi verið haldinn daginn sem þjón-
usta frístundaheimilanna átti að
hefjast,“ segir Halla og gagnrýnir
vinnubrögðin harðlega.
„Stjórnendur málaflokksins
hljóta að hafa gert sér grein fyrir
hvert stefndi,“ segir hún og bætir
við að fólk hafi fengið að vita um
plássleysið með engum fyrirvara.
„Vandinn snýr ekki að starfsfólkinu,
sem vinnur gott verk, heldur að
borgarstjórn sem sér um að reka
þjónustuna,“ segir hún og bætir við
að ekki sé boðið upp á úrræði fyrir
foreldra sem ekki komast að. „Þetta
bitnar væntanlega á vinnu fólks, ég
hef sérstaklega áhyggjur af þeim for-
eldrum sem eru verr staddir en ég.“
Andlegt álag
„Yfirmenn frístundaheimilanna
þurfa að hringja í tugi foreldra til að
tilkynna þeim að ekki sé pláss og á
sama tíma fá foreldrarnir kalda
tusku í andlitið,“ segir Halla.
Forgang um dvöl hafa sex ára
börn, börn með sérþarfir og börn
sem búa við sérstakar aðstæður svo
fremi sem sótt hefur verið um fyrir
1. apríl. Um 1.700 börn bíða eftir að
komast að en Kjartan Magnússon,
formaður ÍTR, segist vongóður um
að leysa mönnunarvandann.
„Starfsmenn sem vinna með námi
munu væntanlega geta skipulagt
veturinn þegar þeir fá stundaskrár
sínar í hendurnar,“ segir Kjartan.
Einhverft barn
kemst ekki að
Móðir sex ára einhverfs drengs gagnrýnir vinnubrögð ÍTR harð-
lega Um 1.700 börn bíða eftir að komast að á frístundaheimilum
Halla Rut Með sex ára
drengnum sínum.
➤ Alls hafa borist 2.895 um-sóknir um vistun fyrir 6 til 9
ára börn á frístundaheimilum
ÍTR. Enn vantar um 200
starfsmenn til starfa.
➤ Í skólabyrjun hafa 1.200 börnhafið dvöl á frístundaheim-
ilum ÍTR en enn bíða tæplega
1.700 börn eftir að komast
að.
FRÍSTUNDAHEIMILI
STUTT
● Sameining Prentfyrirtækin
Oddi, Gutenberg og Kassagerð-
in verða sameinuð undir nafni
Odda 1. október. Jóni Jósafat
Björnssyni var í gær sagt upp
störfum sem framkvæmda-
stjóra og tekur Jón Ómar Erl-
ingsson við af honum. Jón Óm-
ar var áður framkvæmdastjóri
Kassagerðarinnar.
● Viðræðuslit Velferðarráð
Reykjavíkur sleit í gær samn-
ingaviðræðum við Heilsu-
verndarstöðina um rekstur
áfangaheimilis í Hólavaði í
Norðlingaholti. Sviðsstjóra
velferðarsviðs var falið að
skoða málið frá grunni og
ræða á ný við þá fjóra sem
sóttust eftir samstarfi.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Taívanskur sjómaður kom ný-
verið fjölskyldu sinni mjög á
óvart með því að snúa aftur
heim eftir að hafa verið fastur
á eyju í 27 ár. Hu Wenhu fór í
veiðiferð í Indlandshafi 1981,
en varð eftir á Reunion eftir
að hafa misst af bátnum heim.
Neyddist hann þá til að betla
peninga og opnaði að lokum
kínverskan veitingastað á eyj-
unni frönsku. aí
Nýr Róbinson Krúsó
Sneri aftur
SKONDIÐ