24 stundir - 28.08.2008, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2008 24stundir
Vegna útúrsnúninga og rang-
túlkana á skrifum mínum varðandi
útboð á litlum hluta sorphirðu í
Reykjavík vil ég koma eftirfarandi á
framfæri.
Ég var beðin um að segja álit
mitt á því að fyrir lægi tillaga um
að bjóða út um 1/5 hluta sorphirðu
í Reykjavík og lýsti ég skoðun
minni í litlum pistli sem birtist í 24
stundum síðastliðinn fimmtudag.
Pistillinn mátti einungis vera
ákveðið mörg orð og því lítið pláss
til mikilla útskýringa. Í áliti mínu
tala ég um að borgin hafi nýverið
farið af stað með grænu tunnuna
og þar hafi hún fylgt eftir frum-
kvæði einkaaðila. Þarna átti ég að
sjálfsögðu við bláu tunnuna
(blaðatunnuna) og vil ég biðjast
velvirðingar á þessum mistökum
mínum.
Það þýðir þó ekki að ég hafi ekk-
ert vit á þessum málum eins og
hermt er í greinaskrifum í 24
stundum síðastliðinn laugardag.
Það er merkilegt hvað þeim sem
þar skrifuðu tókst að lesa mikið út
úr þessum fáu orðum mínum.
Ég læt hér fylgja pistil minn aftur
þar sem ég hef leiðrétt þetta með
grænu og bláu tunnuna.
Útboð sorphirðu
„Sorphirða í Reykjavík hefur
verið rekin um árabil með svipuð-
um hætti og lítilla nýjunga gætt í
því. Bláa tunnan kom nýverið til
sögunnar, en þar var borgin að elta
einkaaðila. Nú stendur til að bjóða
út 20 prósent sorphirðu í Reykjavík
og tel ég það vera mikið framfara-
skref. Ég hef löngum undrast það
að ekki séu settar ákveðnari reglur
varðandi sorphirðu, þar sem gler,
pappír, plast og fleira er sótt heim
og fólki gert að flokka ruslið sitt
betur en gert er í dag. Þegar ég var í
Þýskalandi fyrir 17 árum síðan var
þegar byrjað að flokka rusl og öll
heimili voru með þrískiptar rusla-
fötur í eldhússkápnum. Þegar rusl-
ið var hirt var kíkt í pokana og ef
þú hafðir ekki flokkað var ruslið
einfaldlega ekki tekið. Við þurfum
að vera miklu meðvitaðri um það
hverju við hendum frá okkur. Það
er flókið að þurfa að koma ruslinu
frá sér og tel ég einu raunhæfu leið-
ina vera að sækja flokkaða ruslið
heim. Það er ekki nóg að flokka
pappír, við getum gert betur en
það, gler og plast er til að mynda
alveg tilvalið að sækja líka. Ég tel
afar jákvætt að leitað sé nýrra leiða
við sorphirðu og vil gjarnan sjá
meiri nýbreytni í þeim málaflokki.
Það er jákvætt að farið sé í tilraun
sem þessa sem gefur mikilvægar
upplýsingar um möguleika fyrir-
tækja til að veita þessa þjónustu.
Með útboði má reyna að fá fram
nýja hugsun hvað varðar sorp-
hirðu. Það er mikilvægt að þau fyr-
irtæki sem bjóða í þjónustuna fái
svigrúm til þess að bjóða upp á nýj-
ungar tengdar sorphirðunni.
Í þessari tillögu er talað um út-
boð á 20 prósentum sorphirðu í
Reykjavík til þriggja ára. Með þessu
verkefni fæst dýrmæt reynsla og
þekking til þess að byggja á til
frambúðar.“
Á eftir öðrum þjóðum
Með þessu er ég í engu að kasta
rýrð á það frábæra starfsfólk sem
starfar hjá sorphirðu Reykjavíkur.
Tilraun sem þessi þarf ekki að segja
okkur að það sé skynsamlegt að
bjóða út alla sorphirðu, niðurstaða
tilraunar sem þessarar getur allt
eins sagt okkur að engin skynsemi
sé í að bjóða sorphirðuna út og
miklu skynsamlegra að halda
áfram að reka sorphirðuna með
þeim hætti sem við hingað til höf-
um gert.
Hvað sem öðru líður þá tel ég
okkur vera á eftir öðrum þjóðum
hvað varðar sorphirðumál og vona
að við förum að sjá stór skref stigin
í því að flokka og endurvinna það
sem frá okkur fer. Það er dýrt að
sækja flokkaðan úrgang, en það er
líka dýrt að sækja hann ekki.
Fjölmargar hugmyndir
Ég sat í nefnd sem yfirfór sorp-
hirðumál í Reykjavík þegar ég sat í
umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur á síðasta kjörtímabili
2002-2006. Ég hafði mikinn áhuga
á því að taka stór skref í átt til frek-
ari flokkunar og endurvinnslu. Það
var hins vegar ekki pólitískur vilji
til þess á þeim tíma og græna tunn-
an í raun það eina sem kom út úr
þeirri vinnu. Ég ætla ekki að tíunda
hér þær fjölmörgu hugmyndir sem
þar komu fram eða þær tilraunir
sem gerðar hafa verið þar á undan,
en margt hefur verið skoðað. Sumt
hefur virkað og gengið vel, en ann-
að ekki. Ég fagna öllum hugmynd-
um sem geta orðið til þess að sorp-
hirða okkar þróist áfram til meiri
flokkunar og meiri endurvinnslu,
von mín er sú að þessi litla tilraun
geti verið liður í því.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sorphirða í Reykjavík
UMRÆÐAN aJórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen
Hvað sem
öðru líður þá
tel ég okkur
vera á eftir
öðrum þjóð-
um hvað
varðar sorp-
hirðumál og vona að við
förum að sjá stór skref
stigin í því að flokka og
endurvinna það sem frá
okkur fer.
Sorphirða Tilraun sem
þessi þarf ekki að segja
okkur að það sé skyn-
samlegt að bjóða út alla
sorphirðu.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
51
72
Í Núllinu þarf fjölskyldan ekki að borga krónu þegar hún hringir
úllSkráðu fjöl-skylduna í síma800 7000eða ásiminn.isán tafar!