24 stundir - 05.09.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Tveir menn sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við
rannsókn lögreglu á andláti 68 ára gamals manns sem
fannst látinn á heimili sínu við Skúlagötu síðasta
mánudag. Maðurinn lést af völdum höfuðáverka en að
sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns
hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins er ekki hægt að
segja neitt um með hvaða hætti maðurinn hlaut þá
áverka. Karlmennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 8. september og segir Friðrik Smári hugsanlegt
að þeir hafi átt aðild að láti mannsins. Þegar lögregla
kom í íbúð hans voru þar ummerki um átök og talsvert
blóð á vettvangi. Málið er rannsakað sem ofbeldisbrot.
Mennirnir tveir sem sitja í haldi hafa verið yfir-
heyrðir en að sögn Friðriks Smára hafa aðrir ekki verið
yfirheyrðir og aðrir eru ekki grunaðir um aðkomu að
málinu að svo komnu máli. Báðir mennirnir hafa
komið við sögu lögreglunnar áður fyrir minniháttar
brot.
Friðrik Smári segir að rannsókn málsins sé í eðlileg-
um farvegi. Ljóst sé að nú þurfi að bíða lokaniður-
stöðu krufningar en ekki sé hægt að útiloka að rann-
sóknargögn verði send utan til rannsókna. fr
Tveir á haldi grunaðir um aðild að láti manns á sjötugsaldri
Lést af völdum höfuðáverka
Skúlagata Tveir menn sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Yfirborðsrannsóknir með aðkomu
Reykjavik Energy Invest (REI) í
Indónesíu og á Filippseyjum eru
hafnar. Fulltrúar REI voru staddir
í löndunum tveimur seinni hluta
ágústmánaðar til að hitta sam-
starfsaðila sína og fara yfir stöðu
mála. Meðal þeirra sem fóru í
ferðina var Sigrún Elsa Smára-
dóttir, sem situr í stjórn REI.
Á Filippseyjum eiga REI og
Geysir Green Energy (GGE) sam-
an fyrirtækið Envent Holding sem
er stýrt af Guðmundi F. Sigurjóns-
syni. Það félag á síðan 40 prósenta
hlut í Biliran Geothermal Inc. sem
framkvæmir rannsóknirnar þar.
Að sögn Sigrúnar Elsu er einnig
verið að skoða þrjú svæði til við-
bótar á eyjunum þó að Biliran-
verkefnið sé lengst komið. „Þar
eru þrjár borholur nú þegar og
ein sem lofar góðu. Þegar þessar
holur voru boraðar á sínum tíma
þótti borholuvökvinn mjög erfið-
ur, en hann er svipaður og sá sem
finnst á Reykjanesi. Við teljum
okkur því ráða vel við efnasam-
setninguna á honum.“ Stefnt er að
því að yfirborðsrannsóknum á
Biliran ljúki í maí á næsta ári.
Skoða sjö svæði í Indónesíu
Í Indónesíu er REI að skoða sjö
svæði með það fyrir augum að
virkja. Um 40 prósent af öllum
jarðvarma í heiminum er að finna
innan landamæra Indónesíu.
Samstarfsaðili REI á tveimur af
þessum svæðum er orkufyrirtækið
Pertamina, sem er í ríkiseigu. Þar
eru yfirborðsrannsóknir hafnar en
Sigrún Elsa segir ákveðna réttaró-
vissu ríkja vegna nýrrar auðlinda-
löggjafar. Ef hún skýrist á næst-
unni gæti í fyrsta lagi verið komin
af stað raforkuframleiðsla árið
2011. „Eins og þetta var fyrir laga-
setninguna þá átti samstarfsaðili
okkar einkarétt á öllum virkjan-
legum svæðum í landinu. Sam-
kvæmt nýju löggjöfinni hafa sveit-
arfélögin mun meira um það að
segja hverjir virkja og við hverja
þeir semja, en það eru samt sem
áður nokkur svæði sem eru und-
anþegin. Málið er í lögformlegu
ferli og það verður úrskurðað um
það á næstunni. Þá liggur fyrir við
hvern við þurfum að semja.“
Rannsakað með
aðkomu REI
Yfirborðsrannsóknir með aðkomu REI í Indónesíu og á Filipps-
eyjum hafnar Verið að skoða mörg önnur svæði í löndunum
Biliran Sigrún Elsa og tveir heimamenn við eina borholuna sem þegar er fyrir hendi.
➤ Á Filippseyjum eiga REI ogGeysir Green Energy saman
Envent Holding, sem á 40
prósent í Biliran Geothermal
Inc.
➤ Í Indónesíu er REI í samstarfivið ríkisfyrirtækið Pertamína
auk annarra aðila.
SAMSTARFSAÐILAR REI
Landsvirkjun vill koma svokall-
aðri Bjallavirkjun inn í ramma-
áætlun um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma. Bjallavirkjun yrði í
Tungnaá, ofar en Sigölduvirkjun
og myndi auka afkastagetu þeirrar
virkjunar. Einnig myndi virkjun á
svæðinu hafa áhrif á aðrar virkjanir
á vatnasvæði Tungnaár- og Þjórsár,
þar með talið þrjár fyrirhugaðar
virkjanir í Þjórsá.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
að engar áætlanir séu komnar á
borðið um virkjun á þessu svæði.
„Við höfum einfaldlega bent á
þennan virkjunarkost og viljað að
hann yrði tekinn inn í vinnu við
rammaáætlunina. Þessi virkjunar-
kostur er á vatnasvæði sem þegar
hefur verið hreyft við og Lands-
virkjun hefur lagt áherslu á að nýta
slík svæði umfram það að virkja
víðar.“
Ef virkjað yrði á svæðinu gæti
uppistöðulónið orðið um 30 fer-
kílómetrar. Orkuframleiðsla virkj-
unarinnar gæti orðið um 50 mega-
vött. fr
Þrýst á um að koma virkjunarkosti inn í rammaáætlun
Landsvirkjun vill Bjallavirkjun
24stundir/RAXTungnaá Landsvirkjun vill virkjunarkost í Tungnaá inn á rammaáætlun.
Eldvarnareftirlit og öryggisregl-
ur leyfa að 28 áhorfendum sé
hleypt inn á þingpalla. „Það er af
og frá að móttaka þingsins hafi ver-
ið harðari við ljósmæður en aðra
sem hafa viljað fylgjast með þing-
fundum,“ segir Guðlaugur Ágústs-
son, deildarstjóri þingvörslu. Á
pöllum eru 28 sæti. „Við hleyptum
29 manns inn, en einhverjar ljós-
mæðranna voru með kornabörn
með sér, þau þurfti líka að telja,
segir Gulli. Hann segir sömu reglur
hafa gilt í nokkur ár, eða frá end-
urbótum á aðstöðu í þinginu. „Það
er bara sárasjaldgæft að stórir hóp-
ar vilji fylgjast með á þingpöllum
og þurfi að vísa fólki frá. Þetta er
ekki nema í einstaka málum, Kára-
hnjúkar og fjölmiðlafrumvörp eru
slík dæmi. beva@24stundir.is
Sjaldan komast færri en vilja á þingpalla
Ljósmæður á spjöld
þingpallasögunnar
því að hagnast á verðfalli bréfa
þeirra. Það er dæmi um örvænt-
ingarviðbrögð fjármálafyrirtækja
sem hafa verið algeng í því árferði
sem nú er. En flestir viðmælenda
24 stunda er þó á því að skýrslan
beri þess ekki endilega merki.
Frekar sé um að ræða „óþarflega
mikla neikvæðni“ í garð íslenska
bankakerfisins sem mótist að ein-
hverju leyti af ónægum upplýs-
ingum.
Ónóg greining
Rökstuðningur greinandans,
Andreas Hakansson – sem var í
viðtali í 24 stundum í gær – er
fyrst og fremst almennur um alla
íslensku bankana. Til að mynda
er ekki skýrt til hlítar hvers vegna
gengi Kaupþings er talið geta fall-
ið niður í 550 frá um 700 eins og
það er nú.
Bolabrögð eða
hlutlaus greining?
Svissneski bankinn UBS mælir
með því við viðskiptavini sína
víðs vegar um heiminn að þeir
selji hluti sína í íslensku bönk-
unum. Eins og greint var frá í 24
stundum í gær gaf UBS út skýrslu
síðastliðinn miðvikudag um
stöðu banka á Norðurlöndum
þar sem fyrrnefnd sjónarmið
voru reifuð.
Þar var staða íslensku bank-
anna sögð allt önnur en flestra
annarra banka á Norðurlöndum.
Þeir eru sagðir áhættusæknari og
með eignasafn sem geti leitt þá í
vandræði í lausafjárþurrðinni
sem nú einkennir starfsemi fjár-
málafyrirtækja í heiminum, ef allt
fer á versta veg.
Umdeild greining
Viðmælendur 24 stunda voru
margir hverjir ósáttir við grein-
ingu UBS á íslensku bönkunum.
Líkt og oft áður í greiningum er-
lendra banka hafa greinendur
ekki fyrir því að fara yfir rekstur
bankanna og markaðssyllur
þeirra. Grunnur íslensku bank-
anna, einkum Glitnis og Lands-
bankans, byggist meðal annars á
því að þjónusta matvælaiðnað –
þar með talinn sjávarútveg – og
orkuiðnað. Þessir atvinnuvegir
eru taldir eiga bjarta framtíð þar
sem afurðaverð hefur hækkað
mikið. Auk þess er ekki farið yfir
rekstur Kaupþings að neinu
marki en bankinn hefur að flestra
mati skilað góðum uppgjörum í
erfiðu árferði.
Ekki er hægt að útiloka að UBS
sé að taka skortstöðu gegn ís-
lensku bönkunum og reyni með
FRÉTTASKÝRING
Magnús
Halldórsson
magnush@
24stundir.is