24 stundir - 05.09.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
Átaksverkefnið Borgarbörn leggur áherslu
á markvissa uppbyggingu þjónustu og
fjölgun valkosta fyrir yngstu borgarbúana.
Jafnframt er stefnt að fleiri og betri val-
kostum í dagvistun allra barna fram að
skólaskyldu með umbótum, uppbyggingu
og auknum sveigjanleika í þjónustu.
Þjónustutrygging er mánaðarleg greiðsla til for-
eldra barna sem bíða eftir plássi í leikskóla eða hjá
dagforeldri. Greiðsluna má t.d. nota til að greiða
ættingja fyrir gæslu barnsins heima eða til að
auðvelda foreldrum að taka lengra frí frá vinnu.
Þjónustutryggingin nemur 35.000 kr. á mánuði.
Sótt er um þjónustutryggingu á www.leikskolar.is.
Byggjum upp
fyrir Borgarbörn!
Þjónustutrygging og fleiri kostir fyrir yngstu íbúana
Nánari upplýsingar á www.leikskolar.is og í síma 411 1111
Forsvarsmenn evrópskra sæð-
isbanka berjast nú fyrir því að
banni á innflutningi sæðis til
Bandaríkjanna verði aflétt.
Bannið var sett á árið 2005,
vegna ótta við Creutzfeldt-
Jakob-sjúkdóminn. Segja sæð-
issalar ekkert benda til þess að
smithætta sé fyrir hendi.
Bannið hefur komið sér-
staklega illa niður á bönkum á
Norðurlöndunum, en mikil
eftirspurn er eftir skandinav-
ísku sæði í Bandaríkjunum.
Peter Bower, framkvæmda-
stjóri European Sperm Bank í
Kaupmannahöfn, segir eft-
irspurnina bæði skýrast af því
að margir Bandaríkjamenn
eigi ættir að rekja til Norð-
urlanda og því, að norrænt út-
lit sé vinsælt. Öll Norð-
urlöndin utan Íslands eru á
bannlista bandarísku lyfja-
stofnunarinnar.
„Áður en bannið var sett á
seldum við Bandaríkjamönn-
um sæði fyrir margar millj-
ónir króna á hverju ári,“ segir
Bower. „Nú er orðið samdóma
álit allra sérfræðinga – þar á
meðal þeirra sem beittu sér
fyrir banninu – að innflutn-
ingi evrópsks sæðis fylgi engin
sérstök áhætta.“ aij
Evrópskir bankastjórar
Vilja sæðis-
banni aflétt
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Breskum framakonum gengur
hægar að komast til metorða á sínu
sviði en körlum. Nýútkomin
skýrsla bendir til þess að á síðasta
ári hafi hægt á þróun í jafnréttisátt,
og að í mörgum geirum sé farið að
saxast á hóp kvenna í forystusveit.
Fækkar eða hægir á aukningu
Jafnréttis- og mannréttinda-
nefndin (EHRC) hefur undanfarin
fimm ár kannað hlut kvenna í
valda- og áhrifastöðum fyrir
bresku ríkisstjórnina. Á þeim tíma
hefur hlutur þeirra almennt aukist
jafnt og þétt, en nú kveður við nýj-
an tón.
Af þeim 25 sviðum sem skoðuð
eru, fækkaði konum í toppstöðum
á 12 sviðum í ár og fjöldi kvenna
var óbreyttur á fimm sviðum.
Hlutur kvenna jókst á átta sviðum,
en þar hægði alls staðar á aukning-
unni frá fyrri árum.
Konum í áhrifastöðum hjá 100
stærstu fyrirtækjum Bretlands
fjölgaði til að mynda á milli ára úr
10,4% í 11%. Þar sem aukningin
var minni en árið á undan þýðir
þetta að með sama áframhaldi
verður jöfnuði náð eftir 73 ár – sem
er 8 árum meira en á síðasta ári.
Langt er í land í fleiri geirum.
Þannig reikna skýrsluhöfundar út
að í stjórnsýslunni verði jöfnum
kynjahlutföllum í yfirmannsstöð-
um náð eftir 27 ár og 55 ár séu þar
til fjöldi kvenna og karla sé jafn í
dómskerfinu. Lengst verður samt
að bíða þess að þingheimur sé skip-
aður jafnmörgum af hvoru kyni.
Þjóðin mun þurfa að ganga 40
sinnum að kjörborðinu til þess –
eða og bíða í 200 ár.
Glerþakið úr steinsteypu
Skýrsluhöfundar óttast að þetta
sé til marks um að barátta fyrir
bættri stöðu kvenna standi illa.
„Vinnumarkaður sem mótaðist
þegar konur voru heimavinnandi
mæður og karlar unnu fyrir salti í
grautinn setur of margar hindranir
í veg kvenna,“ segir Nicola Brewer,
framkvæmdastjóri EHRC. „Við
tölum oft um glerþak. Þessar tölur
benda til þess að í sumum tilvikum
virðist þakið vera úr járnbentri
steinsteypu.“
Brewer telur að mikilvægt sé að
snúa þessari þróun við, svo vinnu-
markaðurinn verði ekki af hæfi-
leikum kvenna. „Hætt er við að
metnaður ungra kvenna snúist upp
í vonbrigði.“
Staða kynja jafnast
á hraða snigils
Ný skýrsla sýnir að enn er langt í að jafnrétti kynjanna verði náð á Bretlandi
Breska þingið Konur
eru 19,3% kjörinna full-
trúa í þingsalnum.
➤ Ef fram heldur sem horfirverða konur á breska þinginu
jafnmargar körlum eftir 200
ár.
➤ Skýrsluhöfundar benda á aðá ögn lengri tíma, eða 212 ár-
um, gæti snigill skriðið eftir
Kínamúrnum endilöngum.
SNIGLAST Á ÞING
Sarah Palin, varaforsetafram-
bjóðandi repúblikana í Bandaríkj-
unum, hélt í gær sína fyrstu ræðu
síðan John McCain tilkynnti fram-
boð hennar. Fyrir fullum sal stuðn-
ingsmanna gagnrýndi hún Barack
Obama, forsetaframbjóðanda
demókrata, og fjölmiðlamenn fyrir
að tilheyra „elítunni í Wash-
ington“.
Sjálf sagðist hún ekki hafa áhuga
á að tilheyra þeim hópi.
„Ég ætla til Washington til að
þjóna íbúum þessa mikla lands,“
sagði Palin.
„Bandaríkjamenn gera þá kröfu
að við förum til Washington af
réttum ástæðum, en ekki bara til
að fá að umgangast rétta fólkið.“
Til að undirstrika þetta minnti
hún á að sem ríkisstjóri Alaska
hefði hún ekið sjálf til vinnu og að
eitt af hennar fyrstu verkum hefði
verið að selja einkaþotu embættis-
ins. aij
Sarah Palin er til í slaginn um Hvíta húsið
„Til Washington af
réttum ástæðum“
Kresten Drejergaard, biskupinn á
Fjóni, og Karen Riis-Jørgensen,
sem situr á Evrópuþinginu, vilja
að danska þjóðkirkjan fylgi for-
dæmi þeirrar kaþólsku í sam-
skiptum sínum við
Evrópusambandið.
Óar þau við því
hversu öflugur
þrýstihópur kaþ-
ólska kirkjan er
orðin í Brussel.
„Mér þykir erfitt
að sjá hversu virk
kaþólska kirkjan er á evrópskum
vettvangi, á sama tíma og sú lút-
erska á sér varla nokkurn mál-
svara,“ segir Kresten Drejergaard
við Kristeligt Dagblad. Hafa
Drejergaard og Riis-Jørgensen
boðið öllum biskupum Dana að
vísitera Brussel og sjá hvernig
kaþólikkar bera sig að. aij
Biskup vill breytingar
Lútersk kirkja
hafi áhrif í ESB
Hinn dæmigerði einstæðingur í
Danmörku pungar út jafnvirði 28
þúsund króna á hverju ári í leit
sinni að ástinni. Þetta kemur
fram í fjölþjóðlegri könnun
stefnumótavefjarins Parship.dk á
fjárútlátum einstæðinga.
Írar tróna hæst á lista þrettán
þjóða, en þeir eyða um 72.000
krónum á kaffihúsum og veit-
ingastöðum á ári. Ástarleit Hol-
lendinga er ódýrust – 8.300 krón-
ur á ári. aij
Aurum fleygt í Amor
Ástin kostar
skildinginn