24 stundir - 05.09.2008, Blaðsíða 32
24stundir
? Kannski er það að bera í bakkafullanlækinn að ræða um kreppu á Íslandi. Enég get ekki orða bundist. Það er svomerkilegt að skynja hvernig ungir Ís-lendingar skilgreina kreppu. Hvar klikk-uðum við sem eldri erum í uppeldinu?Og hvernig verður sú kynslóð sem núvex úr grasi?
Í ritstjórnargrein 24 stunda á mið-
vikudag segir að fólk sé svo skuldsett að
það geti ekki tekið á sig mikla launa-
skerðingu og samt framfleytt fjölskyld-
unni með sama hætti og verið hefur. Það
séu ekki endilega þeir lægst launuðu
heldur hinir sem komu ár sinni vel fyrir
borð í uppsveiflunni sem eigi í vanda.
„Juku útgjöld sín í samræmi við auknar
tekjur og hafa þá í mörgum tilfellum
ekki efni á að snúa til baka núna en
neyðast þó til þess.“ Lausnin á vand-
anum sé að nýta allar orkuauðlindir.
Er það virkilega svo að unga fólkið
okkar sé svo góðu vant að það geti hvergi
skorið niður? Á að virkja allt sem virkja
má svo að það geti áfram lifað við lúx-
uskjör sem tók örfá misseri að venja sig
á? Margt hafði svimandi tekjur en er
samt óhemju skuldsett! Og það kvartar
sárast.
Nýlega birti dagblað sparnaðarráð í
kreppu: verslið í lágverðsverslunum,
hættið að kaupa kaffibolla daglega á 390
krónur stykkið og farið í göngutúr og
sparið líkamsræktarkort! Ef vandi þjóð-
arinnar er ekki meiri þá skulum við bíða
með að virkja og einbeita okkur að því
að kenna fólki að fara betur með.
Fallvötn föl fyrir merkjavöru
Þóra Þórarinsdóttir
hefur verulegar áhyggjur
af neyslu landans.
YFIR STRIKIÐ
Er kreppa
eða dekur-
skerðing?
24 LÍFIÐ
Hljómsveitin upplýsir að liðsmenn
sveitarinnar hafi sjálfir vitað hvað
nafn nýju plötunnar
Karkari þýddi.
Mammút með
útgáfutónleika
»26
Svavar Lúther fær óvænta aðstoð
frá einum stofnanda sænsku deili-
síðunnar Piratebay.org.
Dæmt í málinu fljótlega.
Mál Istorrent.is fyrir
héraðsdómi
»30
Birgir Ísleifur talar um hjartans
mál og segist vilja gera tónlist í
framtíðinni er enginn
geti hlustað á.
Fyrsta plata Motion
Boys er tilbúin
»26
● Á fundi með
John McCain
„Ég er í Los Ang-
eles en er á leið-
inni á landsþing
repúblikana í
Minneapolis. Og
ef allt gengur að
óskum verð ég á
fundinum í kvöld,“ sagði Silja
Bára Ómarsdóttir stjórnmála-
fræðingur þegar blaðamaður náði
tali af henni í gær. Hún ætlaði að
vera viðstödd þegar John McCain
tæki formlega við tilnefningu
flokksins í nótt. Og hún bjóst við
mjög sérstakri stemningu. „Já, ég
breytti allavega ferðaáætlun minni
til þess að ná að vera þarna.“
● Sölumet á Fló
á skinni „Þetta er
nú að margra mati
einn best skrifaði
farsi allra tíma,“
svarar Magnús
Geir borgarleik-
hússtjóri að-
spurður hvernig
standi á því að þegar er uppselt á
20 sýningar á Fló á skinni er leik-
húsið frumsýnir í kvöld. Verkið var
frumsýnt í París árið 1907 og varð
síðar vinsælasta sýning Leikfélags
Reykjavíkur árum saman. „Svo
verður að segjast að þessi uppsetn-
ing Maríu Sigurðardóttur er af-
skaplega vel af hendi leyst. Gísli
Rúnar frískaði upp á verkið og
færði það til í tíma.“
● Með penslana
á lofti Anna
Ólafsdóttir
Björnsson hefur
skráð sig á nám-
skeið í myndlist-
arskóla.
„Ég hef með
vinnu verið í tölv-
unarnámi og í rauninni hefur allt
vikið fyrir því, þar á meðal mynd-
listin sem var áður efst á forgangs-
listanum.“ Anna hefur sinnt fjöl-
breyttum störfum, meðal annars
setið á þingi. „Allt sem ég hef gert
meðfram hefur hjálpað mér í
myndlistinni.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við
Dagana 4. - 7. september 2008
Brot úr dagskrámenningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar
Listsýningar og uppákomur
Á Ljósanótt er boðið upp á fjölda listsýninga um allan bæ. Samsýningar
og einkasýningar í HF húsunum, listatorgi og Svarta Pakkhúsinu og í fyrir-
tækjum um allan bæ. Opnar vinnustofur listamanna. Kjötsúpa fyrir 5000
fyrstu gestina í boði Norðlenska, Samkaupa ogMatarlystar.
Barnadagskrá
Fram koma þekktir ávextir úr Ávaxtakörfunni og eitt grænmeti, ungir
söngvarar fá að spreyta sig í söngvakeppni barna og vísindasmiðja barna
býður spennandi möguleika. Söngvaborg og Silja, Leikfélag Keflavíkur, tívolí,
götuleikhús og sirkus.
Skessan í fjallinu
Skessan í fjallinu flytur til Reykjanesbæjarmeð góðri aðstoð vinatrölla
úr Eyjum. Eruð þið nokkuð hrædd við tröll?
Tónlist
Tónlistarsyrpa í Duushúsum: harmonikkur, kórar, djassperlur, djass,
blús, ópera og dægurlög. Léttsveitin og Hjaltalín í Andrews Theatre.
Fjölmenningartónleikar, opin hljómsveitaræfing, Fanfare á Ljósanóttog unga
fólkið rokkar.
Duushús
Fjölleikar: Ilmur Stefánsdóttir í Listasafni Reykjanesbæjar. Hraðar sveiflur,
skemmtilegar dýfur og jafnvægiskúnstir í hljómfalli rokkandi rokka og syngj-
andi vefstóla. Suðsuðvestur:„Gæti tafið framkvæmdir á Suðurnesjum“, 15
ólíkir einstaklingar skoða Suðurnesin á rannsakandi hátt. Poppminjasalur:
sýning Poppminjasafns Íslands,Bíósalur:Eiríkur Árni.
Kvölddagskrá
Gospellhljómsveitin, Vignir Bergmann, Magnús Kjartansson og hljómsveit,
Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds – Raggi tekur lagið með Rúnna júll í fyrsta
sinn. Hljómsveit Rúnna Júll, Magnús og Jóhann, Buff, harmonikkuunnendur,
Karlakór Keflavíkur og hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar, Ljósanæturlagið
2008, Rúnar Þór Guðmundsson tenór og BubbiMorthens og EGO.
Hátíðinni lýkurmeð björtustuflugeldasýningu landsins
um leið og kveikt er á lýsingu Bergsins.
Sjáumst á Ljósanótt!