24 stundir - 05.09.2008, Blaðsíða 11
24stundir FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 11
Þeir sem hlusta á umræður áAlþingi furða sig á átaka-línunum
þessa dagana. Sú
hefð að stjórn og
stjórnarandstaða
takist á er þver-
brotin. Nú eru það
einstakir þingmenn
Framsóknarflokks og Vinstri
grænna sem takast á með stór-
yrðum. Guðni Ágústsson, for-
maður Framsóknar, var öflugasti
talsmaður ríkisstjórnarinnar í
umræðum um auðlindastefnu og
á næsta þingfundi hvatti Val-
gerður Sverrisdóttir ríkisstjórn-
ina til dáða í hrákjötsinnflutningi.
Jón Bjarnason VG kvað furðu
sæta að Valgerður skyldi ýta á eft-
ir því illræmda frumvarpi, sem
best væri að fresta sem lengst.
En Framsókn heldur sínustriki í baráttunni viðvinstri öflin í og utan rík-
isstjórnar. Svo sem ekki furða að
þeim sárni þegar
Steingrímur J. Sig-
fússon segir Guðna
Ágústssyni að
þegja. Valgerður
Sverrisdóttir segist
enga von hafa um
að VG taki ábyrga afstöðu í neinu
máli. „Það er ekki fyndið, hvernig
formaður VG skellir skollaeyrum
við staðreyndum,“ segir Val-
gerður. Össur Skarphéðinsson
vorkennir vinum sínum í stjórn-
arandstöðunni, en einu fréttirnar
af þingmönnum hennar séu þegar
þeir missi stjórn á skapi sínu í
innbyrðis átökum . „Þá er nú
betra að vera í eilífum friði og
faðmlögum eindrægninnar í rík-
isstjórninni!“ segir Össur.
Iðnaðarráðherra er mjög stríð-inn náungi. Heyra má tanna-gnístur framsóknarforyst-
unnar langar leiðir. Enda hálfdrap
eindrægnin í faðm-
lögum síðustu rík-
isstjórnar Fram-
sókn, meðan
„eindrægnin“ í nýju
stjórninni skilar
Samfylkingu fylgis-
aukningu og veikir Sjálfstæð-
isflokkinn. Orðalagið „eilífur frið-
ur“ hlýtur að vera pirrandi fyrir
smáflokk sem á þá von heitasta að
borgarmódel Óskars Bergssonar
verði tekið upp í landsstjórninni
líka. Nú er að sjá hvort Guðna
Ágústssyni og Valgerði Sverr-
isdóttur tekst að stinga undan
Össuri Skarphéðinssyni og fé-
lögum með því að styðja stefnu
ríkisstjórnarinnar betur en hún
gerir sjálf. beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Það var gamlárskvöld og 1969
um það bil að ganga í garð. Hún
var í lestinni á leiðinni heim til
sín í Leipzig þegar hún tók eftir
hvað landamærin voru óvenju-
lega útbúin á þessum stað.
Skipuleggjendur í gamla Austur-
Þýskalandi pössuðu sig yfirleitt á
að láta lestarlínur ekki liggja ná-
lægt landamærunum við Vestur-
Þýskaland og alls ekki upp að
Berlínarmúrnum sem þeir köll-
uðu raunar aldrei annað en and-
fasíska friðarskilrúmið. Undan-
tekningin var hérna við
Bornholmer-brú í útjaðri Berl-
ínar þar sem landamærin lágu
formlega á milli lestarlínanna.
Það var dimmt en í geislum
skoteldanna á vesturhimni sá
hún að handan grænmetisgarð-
anna sem útvaldir fengu að
rækta tók við vírahrúga og stey-
puklumpar og svo sjálfur múr-
inn. Vanalega var heilmikill vír-
veggur austanmegin, svo kom
dauðasvæðið með öllum sínum
banvænu hindrunum og svo loks
steinsteyptur múr sem var ysta
lagið mót vestri. Þann múr gat
hún semsé séð í gegnum lest-
argluggann.
Hún steig út úr lestinni, fikr-
aði sig niður að grænmetisgörð-
unum, klifraði yfir grindverkin
sem skildu grænmetisgarðana að
og fikraði sig nær múrnum sem
var í um það bil hundrað og
fimmtíu metra fjarlægð. Í raun
var hún heppin að vera ekki
handtekin þá þegar því landa-
mæraverðirnir voru allt um
kring, gráir fyrir járnum. En það
var fyrst núna sem hún tók eftir
þeim gangandi eftir dauðasvæð-
inu með hundana sína. Fyrir ut-
an landamæraverðina og hungr-
aða hunda stóð í vegi hennar
himinhátt limgerði, ljóskastarar
sem færðust óreglulega til eftir
svæðinu, upprúllaður gaddavír á
trjádrumbum og loks djúpa
sendna svæðið sem lá upp að
vesturmúrnum. Einhvern veginn
tókst henni að troða sér yfir
þéttriðið limgerðið og fikra sig
svo út á sandinn. Hún fór sér
hægt svo verðirnir yrðu hennar
ekki varir og skreið yfir hverja
hindrunina á fætur annarri og
var komin alla leið upp að
múrnum þegar þeir sáu hana.
Hún sá ljósin og heyrði glasag-
lauminn vestan megin áður en
hún var send rakleiðis aftur í
fangelsið.
Óvinur ríkisins
Miriam var aðeins sextán ára
gömul og þá þegar orðin að
óvini ríkisins, eins og Anna
Funder segir svo vel frá í bók
sinni Stasiland. Af ótta við sams-
konar upplausn og varð í Prag
vorið 1968 hófu austurþýsk
stjórnvöld að herða tökin, ekki
síst í Leipzig þar sem Miriam
bjó. Öryggislögreglan réðst með-
al annars til atlögu við gömlu
háskólakirkjuna í miðborginni
sem einn daginn var jöfnuð við
jörðu, andófsmenn voru hand-
teknir og eftirlit hert til muna.
Miriam og Ursula, vinkona
hennar, voru engir sérstakir and-
kommúnistar en þær vildu gjarn-
an mótmæla aðför stjórnvalda að
tjáningarfrelsinu og öðrum
mannréttindum og útbjuggu í
þeim tilgangi lítinn bækling sem
þær hengdu upp á ljósastaura í
hverfinu sínu og dreifðu í hús
eina nóttina. Í bréfinu hvöttu
þær íbúa Leipzig til að láta í sér
heyra og gera athugasemdir við
framferði stjórnvalda. Þetta var
auðvitað kolólöglegt athæfi og
brátt bárust böndin að þeim
stöllum. Skömmu síðar voru þær
handteknar og færðar í fangelsi
þar sem þær máttu dúsa í ein-
angrun mánuðum saman þar
sem þær voru beittar grimmilegu
harðræði. Enginn fékk að heim-
sækja þær, þær fengu ekkert að
lesa og ekkert að sjá annað en
miskunnarlitla fulltrúa ríkisins.
Og aldrei að hringja. Því var
kannski ekki nema von að Miri-
am skyldi hafa freistast til að
klífa múrinn þegar hún sá tæki-
færi til þess skömmu eftir að hún
losnaði úr fangelsinu.
Eftir uppákomuna átti hin sex-
tán ára Miriam fáa möguleika á
að finna hæfileikum sínum við-
nám, meinað að stunda háskóla-
nám með félögum sínum og fékk
hvergi vinnu nema í ömurleg-
ustu skítastörfum og lifði svo
það sem eftir var undir stöðugu
eftirliti öryggisþjónustu austur-
þýska alþýðulýðveldisins, – allt
þar til múrinn var rifinn niður
að kveldi dags 9. nóvember 1989.
Höfundur er stjórnmálafræðingur
Miriam Weber
VIÐHORF aEiríkur Bergmann Einarsson
Hún sá ljósin
og heyrði
glasaglaum-
inn vestan
megin áður
en hún var
send rakleið-
is aftur í fangelsið.
30%
afsláttur
30%
afsláttur
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Akureyri - Höfn - Grindavík
...ódýrari kostur!
TILBOÐIN GILDA 4. - 7. SEPTEMBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
40%
afsláttur
51%
afsláttur
FRÁBÆRT
VERÐ
TEX MEX KJÚKLINGAVÆNGIR
199 kr/kg
403 kr/kg
LONDONLAMB
1.256 kr/kg
1.794 kr/kg
ÍRSKAR SVÍNALUNDIR
959 kr/kg
1.599 kr/kg
PÍTA OG PÍTUBUFF 6stk.
699 kr/pk.
998 kr/pk.
NÝ
HEIMASÍÐA
www.kemi.is
Tunguháls 10 • 110 Reykjavík • Sími 544 5466
Olíu og smurvörur
Öryggisvörur
Hreinsiefni og ensím
Lím og límbönd
Frábært vöruúrval á nýrri heimasíðu
- kemur þér við
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
íþróttir útivist
pólitík heilsa
fréttir fé&frami
golf 24fólk veiði
neytendavaktin
golf dagskrá
menning viðtöl
ferðalög viðskipti
garðurinn grill
24lífið bílar
neytendur umræða