24 stundir - 05.09.2008, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
NÚ FÁ SÉR ALLIR ÁSKRIFT!
4 LEIKSÝNINGAR
Á EINUNGIS 8.900 kr.
Hringdu í síma 568 8000 eða farðu á borgarleikhus.is
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Stúlknaliðið vann til bronsverðlauna á NEVZA-
mótinu árið 2006, en þá var það haldið í Falköp-
ing í Svíþjóð. Piltalandsliðið hefur hins vegar ekki náð
að vinna til verðlauna á þessum mótum.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@24stundir.is
„Þetta hefur verið lengi í undir-
búningi og í rauninni átaksverkefni
frá því í apríl,“ segir Sigurður Arn-
ar Ólafsson mótsstjóri, sem hefur
staðið í ströngu við að koma
mótinu á Akureyri á koppinn.
„Það eru tvö ár síðan ég byrjaði
að leggja inn fyrir þessu á fundum
hjá NEVZA og á fundi í janúar var
þetta lagt fyrir og samþykkt að
halda mótið hér á landi. Þá var
maður búinn að potast í þessu í
gegnum ýmsa aðila í ein tvö ár,“
sagði Sigurður Arnar.
„Við höfum verið með tvö lið í
þessum aldurshópi og síðan önnur
tvö í U17 ára þannig að menn sáu
að okkur var full alvara með þessu.
Nú er búið að ákveða að keppn-
in verður haldin hér á landi á átta
ára fresti, við og Færeyingar mun-
um halda þetta til skiptis en annars
gengur mótið á milli hinna land-
anna,“ segir mótsstjórinn sem segir
Akureyri hafa orðið fyrir valinu
enda á blakið sterkar rætur þar.
Í stúlknaflokki keppa auk Ís-
lands landslið Danmerkur, Noregs,
Svíþjóðar og Færeyja en hjá pilt-
unum eru það Ísland, Danmörk,
Noregur, Svíþjóð og England.
Finnar eru hvergi sjáanlegir og
sagði Sigurður Arnar þá velja að
senda U19 ára lið sín í Evrópu-
keppnina, en þeir séu hins vegar
með í keppni U17 ára.
Kostnaðurinn að drepa okkur
Mótshaldarar hafa staðið sig vel
í öllum undirbúningi og gefa með-
al annars út veglega leikskrá. „Það
verður nú að segjast eins og er að
kostnaðurinn við að taka þátt í
þessum mótum með U19 og U17
ára liðin er hreinlega að drepa okk-
ur. Við höfum hingað til ekki verið
með í U15 vegna þessa. Þetta er
nánast ekki hægt fyrir okkur, við
og krakkarnir söfnum styrkjum
eins og við getum og síðan þurfa
krakkarnir að borga helling sjálf til
að hægt sé að senda lið í þessi
mót,“ segir Sigurður Arnar, sem
hefur fleiri járn í eldinum. „Við er-
um að kom á íþróttaafreksbraut í
Menntaskólanum og Verkmennta-
skólanum og það ætti að geta byrj-
að eftir áramótin, þannig að það er
nóg að gera,“ sagði Sigurður Arnar.
Upp í stuttan Frá æfingu pilta-
landsliðsins þar sem æft er að
skella stutt á miðjunni.Krakkar
borga
ferðina
Mjög mikill kostnaður við þátttöku
unglingalandsliðanna í blaki
Norðurlandamót U19 ára
liða pilta og stúlkna hefst
á Akureyri í dag og
stendur fram á sunnu-
dag. Raunar er þetta mót
fyrir lönd í Norður-
Evrópu og eru til dæmis
Englendingar með í pilta-
flokki.
➤ Íslenska piltaliðið fór tilPortúgals í viku og lék þar við
heimamenn. Stúlkurnar fóru
hins vegar ekki í æfingaferð.
➤ Keppendur í mótinu eru 120talsins og verða leiknir 20
leikir, piltarnir leika í Íþrótta-
höllinni en stúlkurnar í KA-
heimilinu.
➤ Marek Bernat þjálfar pilta-landsliðið og Magnús Að-
alsteinsson er þjálfari stúlk-
naliðsins.
BLAKMÓT
Steinunn H. Björgólfsdóttir, HK, Hjördís Eiríks-
dóttir, Stjörnunni, Theódóra Þórarinsdóttir, HK,
Auður A. Jónsdóttir, KA, Birta Björnsdóttir, HK,
Una M. Heimisdóttir, KA, Kristín S. Þórhalls-
dóttir, Þrótti N., Velina Apostolova, HK, Stefanía
R. Reynisdóttir, HK, Fjóla R. Svavarsdóttir, Þrótti
R., Erla R. Eiríksdóttir, Þrótti N., Jóna G. Vigfús-
dóttir, Þrótti N.
U19 stúlkur
Aron Bjarnason, Þrótti R., Guðmundur Haralds-
son, UMFG, Guðmundur S. Stefánsson, Stjörn-
unni, Ólafur Arason, HK, Ingólfur H. Guð-
jónsson, HK, Alexander Stefánsson, HK, Orri Þór
Jónsson, HK, Árni Björnsson, KA, Hafsteinn
Valdimarsson, KA, Kristján Valdimarsson, KA,
Andri M. Sigurðsson, KA, Kolbeinn Baldursson,
HK.
U19 pilta