24 stundir - 05.09.2008, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
Holdgervingur dægurmenningar
þessa fyrsta áratugar aldarinnar,
Britney Spears, mun ekki taka
lagið á MTV Video Music Aw-
ards-hátíðinni sem fram fer á
sunnudag, minnug þess hvernig
fór fyrir ári síðan, þegar fram-
koma hennar var mikið gagn-
rýnd, ásamt holdafari og höf-
uðheilsu. Hún mun hinsvegar
opna hátíðina með öðrum hætti,
sem enn er leyndamál.
„Hvernig gæti ég sleppt því að
vera þarna, á 25. MTV-VMA-
hátíðinni?“ sagði Britney við
blaðamenn í gær. „Ég er spennt
yfir því að opna hátíðina og einn-
ig yfir því að vera tilnefnd til
verðlauna,“ sagði Britney, sem er
tilnefnd í þremur flokkum, þar af
fyrir besta tónlistarmyndbandið,
við lagið Piece of me. tsk
Britney aftur á MTV-hátíð
sáttari við nýju plötuna en þá fyrri,
er hét einfaldlega Mammút.
„Við vorum hrædd um að Kark-
ari væri kannski of þung áður en
við fórum í hljóðver og því popp-
uðum við hana aðeins upp í
vinnsluferlinu. Við erum mjög
stolt af henni og sátt við útkom-
una. Fyrsta platan okkar var tekin
upp „live“ á 18 tímum, þar sem við
tókum einfaldlega upp öll lög sem
við áttum, til að fylla upp í plássið.
Að okkar mati gátum við aðeins
hlustað á hana svona fimm sinn-
um, meðan Karkari þolir ívið fleiri
skipti,“ segir Alexandra af óþarfa
hógværð, en fyrri platan fékk fína
dóma, meðal annars í tónlistar-
tímaritinu Rolling Stone.
traustis@24stundir.is
Karkari: Sterkbyggt og klunna-
legt farmskip. Komið úr grísku. Haft
bæði um stórt verslunar- og herskip.
Þá er það komið á hreint, en
misskilnings hefur gætt um nafn
nýju breiðskífu hljómsveitarinnar
Mammúts, ekki síst innan sveit-
arinnar sjálfrar, en í Morg-
unblaðinu 27. ágúst síðastliðinn
var því slegið upp í fyrirsögn að
karkari væri olíuherskip.
Orð sem hljómar vel
„Það var einhver misskilningur
hjá Kötu með þetta, en við kom-
umst ekki að þýðingunni fyrr en
eftir á. Það var eins með Mammút-
nafnið, okkur þótti þetta bara flott
orð sem hljómaði vel,“ segir Alex-
andra Baldursdóttir, gítarleikari
sveitarinnar. Hún segir hópinn þó
ekki pæla of mikið í nöfnum á lög
sín eða plötur. „Nei, en þetta getur
verið rosa hausverkur samt. Á
tímabili vorum við að pæla í að
notast við „Allt sem ég heyri“ sem
hljómar frekar einsog lag með Íra-
fári.“
Rísa upp úr lægðinni
„Við höfum verið frekar róleg í
opinberri spilamennsku und-
anfarið, sem skýrist hugsanlega af
mannabreytingum, en Guðrún
Heiða hætti í bandinu og Vilborg
Ása Dýradóttir plokkar nú bassann
í hennar stað. Við höfum verið
þeim mun duglegri við æfingar, og
förum við á fullt núna í haust,“
segir Alexandra. Hún segist einnig
Mammút með útgáfutónleika í Iðnó í kvöld
24stundir/G.Rúnar
Loðfílarnir Alexandra heldur hljómsveitinni uppi, ef svo má segja. Á myndina vantar
trommuleikarann Andra Bjart Jakobsson.
Nafnið á nýju plötunni torskilið og misskilið
Yfir nýju lagi Motion Boys, Five
2 love, sveimar andi hinnar ný-
rómantísku stefnu er náði hæstu
hæðum um miðjan níunda áratug-
inn. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar,
er ber heitið Hold On, er tilbúin og
væntanleg í búðir í byrjun næsta
mánaðar. Í ljósi þess að tveir laga-
titlar á plötunni innihalda orðið
love og tveir aðrir orðið heart má
ímynda sér að hjartans mál séu
forsprakkanum Birgi Ísleifi Gunn-
arssyni hugleikin.
„Platan er að mestu leyti um
samskipti kynjanna á einhvern hátt
eins og níutíu prósent popplaga al-
mennt,“ samþykkir Birgir. „Það
eru bara fimm prósent af lögum
sem fjalla um byggingar og hús eða
eitthvað annað.“
Á plötunni færir Motion Boys
sig fjær þeim tölvupopphljómi er
einkenndi fyrsta slagara þeirra
Hold me Close to your Heart. Þó
ung sé er sveitin í stöðugri þróun.
„Við erum miklir áhugamenn um
hljóðheima. Ég er hrifinn af þessari
baráttu á milli hins melódíska og
skrítna. Mig langar til að tónlistin
verði orðin þannig á þriðju plöt-
unni að fólk geti varla hlustað á
hana lengur,“ segir Birgir og hlær.
Motion Boys-platan tilbúin
Hið tvöfalda siðgæði Bandaríkja-
manna virðist á undanhaldi, ef
marka má viðbrögð þeirra við
kvikmyndaplakötum, en í stað
þess að umbera bæði nekt og of-
beldi, en ekki einungis ofbeldi
líkt og hingað til, hefur kvik-
myndaeftirlitið brugðið á það ráð
að banna hvort tveggja.
Í gær sögðum við frá banninu á
veggspjöldum Wanted-mynd-
arinnar, þar sem Angelina Jolie
mundar byssu. Í dag er það hins
vegar grínmyndin Zack and Miri
Make a Porno með þeim Seth Ro-
gen og Elizabeth Banks.
Bandaríska kvikmyndaráðið hef-
ur bannað veggspjöldin, þar sem
orðið „porno“ kemur fyrir og
uppstillingar aðalleikara vísa til
munnmaka. Ekkert var hins veg-
ar minnst á orðin „Coming so-
on“.
Banna bíómyndaveggspjöld
FÓLK
24@24stundir.is a
Mig langar til að tónlistin verði orðin
þannig á þriðju plötunni að fólk geti
varla hlustað á hana lengur.
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
GÓÐU FRÉTT IRNAR ERU AÐ HANN
ER VEL HÆRÐUR.
ÞAÐ ER AÐ VERÐA ÁLIÐIÐ. VIÐ
ÆTTUM AÐ SETJA UPP BÚÐIR
HÉR OG HALDA ÁFRAM Á
MORGUNGARÐHEIMAR
Bizzaró
Af hverju tekur þú
skatt af vasa-
peningum mínum?
Ég er bara krakki
- ég þarf ekki að
borga skatta.
- Ég veit en
ég þarf að
borga þá.
MYNDASÖGUR
poppmenning