24 stundir - 05.09.2008, Síða 17
24stundir FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 17
Eftir Kristínu Ýri Gunnarsdóttur
kristing@24stundir.is
„Ég myndi segja að það væri meiri
ásókn í bólstrun eftir að þessi svo-
kallaði sixtís stíll varð vinsæll,“
segir Birgir Karlsson bólstrari.
„Það sem er svo skemmtilegt við
þann stíl sem er í gangi í dag er að
það þykir flott að blanda saman
stílum. Fólk er þá með þessi nýju
tískuhúsgögn og svo gömul með.
Það þykir flott að blanda þessu
saman þó stílarnir séu ólíkir.“ Karl
segist muna eftir því þegar hann
var yngri, að þá kom hann oft inn
á heimili þar sem teppi, sófi og
jafnvel gardínur voru í stíl. „Það er
eitthvað minna um það í dag.“
Margt hefur breyst
„Á árunum 1945 til 1980 þekkt-
ist ekki mikið að keypt væru hús-
gögn erlendis frá. Þá voru stórar
verksmiðjur sem sáu um hús-
gagnasmíðina. Þegar ég var að
byrja að búa fyrir nokkrum árum
var það mikil heppni að fá hús-
gögn frá ættingjum. Það þekktist
ekki eins mikið að hægt væri að
kaupa allt nýtt,“ segir hann.
Aðspurður hvort það sé mikil
nýliðun í faginu segist hann vita til
þess að í dag séu tveir að læra.
„Það er nú kannski ekki svo mikil
nýliðun núna en þetta hefur alltaf
verið lítil stétt.“
Næg verkefni í boði
Birgir segir að það sé búið að
tala um bólstrara sem deyjandi
stétt frá því um 1980. „Ég er búinn
að reka bólstrun í 30 ár. Það eru
alveg næg verkefni í boði, en auð-
vitað koma hæðir og lægðir.
Stundum koma tímar sem reynast
mjög erfiðir en það koma alltaf
tímar á móti sem gefa gróða. Einu
sinni var vinnan mjög árs-
tíðabundin og mikið að gera á
haustin. Núna dreifist þetta betur
yfir árið.“
Jafnt ungir sem aldnir
„Það er að færast í aukana að
fólk vilji gera upp gömul húsgögn.
Oft er það þannig að fólk gerir sér
ekki alveg grein fyrir gróðanum í
því. Gömul húsgögn eru svo vel
uppbyggð og traust. Að fá gamlan
stól eða sófa og láta gera hann upp
þarf ekki að vera dýrara en að
kaupa nýjan stól í sama stíl út úr
búð. Það sem er í tísku er oftast
dýrt.“
Birgir segir ungt fólk jafnt sem
eldra fólk koma til sín. „Síðustu
tíu árin hefur færst í aukana að
ungt fólk sækist eftir bólstrun.“
Erfitt að verðleggja
„Það er nú ekki hægt að verð-
meta það hvort dýrt sé að láta
bólstra húsgögn eða ekki. Þetta fer
allt eftir gildinu sem húsgögn hafa.
Fjöldaframleidd húsgögn sem seld
eru ódýrt hafa kannski ekki jafn
góða byggingu og gömlu hús-
gögnin sem hægt er að gera upp á
nýtt,“ segir Birgir sem mælir með
að fólk hafi opin augun fyrir göml-
um húsgögnum og skoði hvaða
tækifæri þau hafa upp á að bjóða.
Birgir Karlsson
Hefur unnið við
bólstrun í þrjátíu ár.
Margir halda að bólstrarar séu deyjandi stétt
Margt sem
hefur breyst
Talað hefur verið um
bólstrarastéttina sem
deyjandi stétt frá árinu
1980. Að sögn Birgis
Karlssonar bólstrara eru
alveg næg verkefni í boði
fyrir bólstrara.
➤ Hefur unnið við bólstrun írúmlega þrjátíu ár.
➤ Lærði bólstrun hjá föður sín-um þegar hann var yngri.
➤ Rekur Bólstrun Karls Jóns-sonar sem var faðir hans
stofnaði. Hún er staðsett í
Stangarhyl 6.
MAÐURINN
Þrátt fyrir að málning standi alveg
fyrir sínu og er falleg þá getur
komið vel út að nýta veggfóður til
að skreyta og fegra veggi heimilis-
ins. Það er ekki nauðsynlegt að
setja veggfóður á alla veggi í einu
herbergi heldur getur til dæmis
verið fallegt að veggfóðra einungis
einn vegg.
Með því að hafa veggfóðrið á ein-
ungis einum vegg er hægt að velja
skrautlegt og dramatískt vegg-
fóður. Það er því um að gera að
velja fallegt veggfóður sem er jafn-
vel örlítið æpandi. Áhrifin verða
mikil án þess þó að vera yfirgnæf-
andi þar sem einungis einn veggur
er veggfóðraður.
Best er þá að velja veggfóður út frá
húsgögnunum sem fyrir eru svo
herbergið haldist stílhreint og fal-
legt. Veggfóðrið frá Graham &
Brown er einkar fallegt og stíl-
hreint en það má finna á síðunni
www.grahambrown.com. slg
Sígilt og fallegt veggfóður
Járnsmiðja Óðins
Persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöfjsó