24 stundir - 05.09.2008, Síða 30
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
Þrátt fyrir kreppu er greinilega
ekki allt á niðurleið. Fólk þarf
ennþá að láta skera hár sitt og því
hefur hárgreiðslustofan Gel á
Hverfisgötu ekki fundið fyrir
skerðingu. Henni hefur meira að
segja vegnað það vel að núna, í
upphafi vetrarkreppunnar miklu
eins og svartsýnustu menn hafa
kallað tilvonandi efnahagsástand,
hafa aðstandendur stofunnar
ákveðið að hætta. Ekki vegna þess
að hallað hefur undan fæti, heldur
vegna þess að þau vilja takast á við
ný og spennandi ævintýri og skilja
við stofuna á meðan vel gengur.
„Okkur langar að hætta á
toppnum og við erum öll farin að
leita í aðrar áttir. Við viljum ekki
láta það bitna á kúnnum okkar að
við séum farin að spá í öðrum
hlutum,“ segir Anna Sigríður Páls-
dóttir hárgreiðslukona og rekstar-
aðili Gel. „Ég ætla að taka að mér
verkefni þegar hentar en ég er líka
að fara að breyta þessu húsnæði
sem ég á hér í annað. Það er svolít-
ið leyndarmál hvað það verður
ennþá. Jón Atli er svo að fara að
einbeita sér að tónlistinni. Maður
þarf að breyta til áður en maður
fær leiða.“
Kúnnarnir leiðir
Í kúnnahóp Gel í gegnum árin
hafa verið margir þjóðþekktir ein-
staklingar auk kunnuglegra mið-
bæjardrauga. Anna segir hópinn
hafa verið æðislegan og að hún sé
fjarri því að vera komin með leiða
á starfinu. Hún muni aldrei leggja
frá sér skærin en nú sé kominn
tími til þess að teygja sig yfir á
næsta stig. Ein helsta sönnun þess
hversu vel kúnnar stofunnar hafa
treyst hárgreiðslufólkinu eru svo-
kallaðir Freaky Fridays þar sem
þeir setjast í stólinn án þess að
mega gefa vísbendingar um hvern-
ig klippingin skuli vera. Dagurinn í
dag verður síðasta tækifærið til
þess að láta klippa sig blint og
verður stofan opin til klukkan eitt í
nótt.
„Það verða þrír plötusnúðar er
spila yfir daginn og listrænn ráð-
gjafi á staðnum er gefur okkur
hugmyndir. Fólk fær engu um það
ráðið hvernig það mun líta, en við
klippum viðkomandi eftir því sem
okkur finnst passa vel. Við ráð-
umst samt auðvitað ekki í að raka
sítt hár af fólki nema að benda því
á það fyrst að það sé hugmyndin.“
Síðasti Freaky Friday dagurinn hjá Gel, er lokar í næstu viku
Gel ákveður að
hætta á toppnum
Hárgreiðslustofan Gel er
að loka. Ekki vegna
hversu illa hefur gengið,
heldur hversu vel. Hár-
greiðslufólkið þar fer á
vit nýrra ævintýra eftir
næstu viku.
Anna Leyndó hvað tekur við.
Morgunblaðið/Golli
Gel Það er nær fullt í
öllum stólum í dag þó
opið sé fram á nótt.
30 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
Silfurarmband verð 64,900 kr.
„Skemmtilegt að hlusta á for-
setafrú Bandaríkjanna í gær en
hún sagði m.a. eitthvað á þessa
leið: „We are proud that the first
female vice-president of the Unit-
ed States will be a Republican
woman.“ Þá varð ég hissa. Ég sem
hélt að fyrst kvenkyns varaforseti
Bandaríkjanna yrði karlmaður.“
Björgvin Valur
bjorgvin.eyjan.is
„Af öllum leiðindagaurum knatt-
spyrnuheimsins er Pelé hiklaust á
topp-5 listanum. Nýjasta útspil
hans er að skamma Robinho fyrir
að láta græðgina ráða för og
ganga til liðs við Manchester City
Þetta kemur nú eiginlega úr
hörðustu átt frá manni sem gekk
til liðs við New York Cosmos.“
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
„Vissir þú að:
Byrjunarlaun ljósmæðra eru
helmingi lægri en verkfræðinga
með meistaragráðu?
Fæðingar í höndum ljósmæðra
hafa lægri inngripatíðni?
Íslenskar ljósmæður eru í hópi
þeirra mest menntuðu í heim-
inum? “
Sóley Tómasdóttir
soley.blog.is
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Rebekka Kolbeinsdóttir opnar sig í forsíðuviðtali
við Vikuna um ástæður þess að hún yfirgaf hljóm-
sveitina Merzedes Club fyrir skemmstu. Þar kemur
fram að hún hafi engu fengið að ráða í sveitinni og
því hafi hún ákveðið að yfirgefa tönuðu ferlíkin.
Það hafi verið tilfinning hennar frá upphafi að hug-
arfar hennar færi ekki saman við þá ímynd er sveit-
in vildi skapa sér. bös
Ef eitthvað er að marka Facebook síðu rithöfund-
arins Hallgríms Helgasonar þá er hann ekki par
hrifinn af Söruh Palin, varaforsetaefni Repúblíkana
í Bandaríkjunum. Þar kom fram að hann hefði hlýtt
á ræðu hennar á netinu og nánast ælt yfir lykla-
borðið sitt þegar hún sagði að hún myndi stolt
senda son sinn til Íraks. Höfundurinn er greinilega
kominn með upp í háls af þjóðernishyggjunni. bös
Liðsmenn hljómsveitarinnar FM Belfast eru á með-
al þeirra sem lenda illa í því eftir að staðurinn Org-
an lokaði skyndilega í gær. Sveitin, sem er að gíra
sig upp í útgáfu fyrstu plötu sinnar, ætlaði að
standa fyrir heljarinnar tónleikum á laugardag en er
nú húsnæðislaus með gleðskapinn. Reykjavík! og
Skátar áttu að hita upp fyrir sveitina en nú fá allir
óvænt frí á laugardagskvöldið. bös
„Dómarinn segir aldrei ná-
kvæmlega hvenær þetta verður. En
það getur verið hvenær sem er frá
því í dag og svo fjórar vikur fram í
tímann. Dómarinn sagði þó að
hann ætlaði að reyna að vera fljót-
ur að þessu,“ segir Svavar Lúth-
ersson, aðstandandi hinnar um-
deildu Istorrent-deilisíðu, spurður
um lögfræðilega stöðu sinna mála.
Mál hans var tekið fyrir í fyrradag
en dómari metur nú hvort vísa
skuli málinu frá.
Málaferli rétthafa á hendur
Svavari hafa nú staðið yfir í um tíu
mánuði en þetta er í annað sinn
sem málið er tekið fyrir. „Það má
segja að þetta sé fyrsta skrefið í
annarri umferð,“ segir Svavar sem
játar að málareksturinn hafi lagt
þungar byrðar á fjárhag hans.
„Fjárhagslega staðan er ekki
sterk en ég reyni samt að lifa það
af. Ég er vanur því að lifa ódýrt
þannig að þetta er engin píning-
arstaða. Ég þrauka.“
Svavari barst óvæntur stuðn-
ingur þegar mál hans var tekið fyr-
ir í héraðsdómi en Peter Sunde,
einn forsprakki hinnar sænsku
deilisíðu Piratebay, var í salnum,
bæði til að sýna Svavari stuðning
og til að kynna sér íslenskt rétt-
arkerfi. „Hann er í nokkuð svip-
aðri stöðu í Svíþjóð, þótt það sé
náttúrlega lagalegur munur milli
landanna.“
Svavar bætir við að Sunde hafi
ekki bara komið til landsins til að
sýna sér stuðning heldur sé hann
hér fyrst og fremst sem ferðamað-
ur. „Hann tjáði áhuga sinn á Ís-
landi fyrir löngu og lét síðan verða
af því að koma.“
Önnur umferð í máli Svavars Lútherssonar
Að deila eða ekki
deila, þar er efinn
Svavar Játar að fjárhagurinn sé slæmur
eftir 10 mánaða málaferli.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
6 1 3 7 9 4 8 2 5
7 5 4 2 8 3 9 6 1
9 2 8 6 1 5 3 4 7
4 6 5 8 2 1 7 9 3
8 7 9 4 3 6 1 5 2
1 3 2 5 7 9 4 8 6
2 9 6 3 4 7 5 1 8
5 4 7 1 6 8 2 3 9
3 8 1 9 5 2 6 7 4
Þú hefur aldrei komið til tunglsins. Þú
þarft að minnsta kosti tvö hundruð af
þessum hlutum til þess.
a
Tja, eigum við ekki að segja að
þetta sé byggt á þrotlausri
rannsóknarvinnu.
Bragi, er textinn byggður á eigin reynslu?
Baggalúturinn Bragi Valdimar Skúlason er höfundur lags-
ins Stúlkurnar á Internetinu, er fjallar um „samskipti
kynjanna“ á veraldarvefnum. Bragi er einnig höfundur
lagsins Þjóðhátíð ́93, sem hlaut mikla gagnrýni, en texti
þess var byggður á eigin reynslu höfundar.
FÓLK
24@24stundir.is fólk