24 stundir - 12.09.2008, Side 2

24 stundir - 12.09.2008, Side 2
Niðurstöður nýrrar launakönn- unar stéttarfélagsins SFR sýna að kynbundinn launamunur í félag- inu hefur auk- ist um nærri 3% frá því í fyrra. Segir í tilkynningu frá félaginu að nið- urstöðurnar séu sláandi og að kynbundinn launamunur sé viðvarandi og vaxandi vandamál hjá hinu op- inbera, nokkuð sem SFR líti mjög alvarlegum augum. Mældist launamunurinn alls 17% þegar tekið hafði verið tillit til aldurs, vinnutíma (fjölda vinnu- stunda á viku), starfsaldurs, menntunar og vaktaálags. hj Launamunur kynjanna jókst 2 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 29 Amsterdam 21 Alicante 32 Barcelona 28 Berlín 23 Las Palmas 26 Dublin 17 Frankfurt 25 Glasgow 16 Brussel 26 Hamborg 22 Helsinki 10 Kaupmannahöfn 16 London 17 Madrid 27 Mílanó 21 Montreal 10 Lúxemborg 21 New York 18 Nuuk 4 Orlando 27 Osló 12 Genf 22 París 26 Mallorca 29 Stokkhólmur 13 Þórshöfn 13 Suðlæg átt, 5-10 m/s með lítilsháttar vætu öðru hverju sunnan- og vestanlands, en léttir til norðaustanlands. Hvessir með rigningu sunnantil á landinu í kvöld. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands. VEÐRIÐ Í DAG 11 11 12 12 14 Hvessir með rigningu Suðaustan 10-15 m/s og víða rigning, en hægari og þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 10 til 15 stig. VEÐRIÐ Á MORGUN 12 13 13 12 13 Suðaustan og rigning „Þetta er mjög mikil skerðing á þjónustu við fæðandi konur, ég get ímyndað mér að þetta nálgist það að fara undir öryggismörk,“ segir Helga Björg Ragnarsdóttir sem var að eiga sitt þriðja barn í gær. „Ég finn mjög vel fyrir álaginu hérna á fæðingarganginum,“ segir hún en tekur fram að starfsfólkið standi sig mjög vel. Fer heim en ekki í Hreiðrið „Þetta hefur þannig áhrif að ég verð bara að fara heim nokkrum klukkustundum eftir fæð- ingu,“ segir hún en bætir við að hún hafi áður farið í Hreiðrið en nú sé það lokað vegna verk- falls ljósmæðra. „Í Hreiðrinu gat fjölskyldan ver- ið saman en hér er ég ein með barnið, mér finnst það verra,“ segir Helga og bætir við að einkenni- legt sé að ríkið skuli ekki bregðast við verkföll- unum. „Ástandið er alvarlegt en uppsagnir ljós- mæðra taka gildi um næstu mánaðamót ef ekki semst, þá er verið að gera stéttina að athlægi ef ríkisstjórnin ætlar að hunsa þessar sjálfsögðu og sanngjörnu launaleiðréttingarkröfur,“ segir Helga. Erfitt ástand er á fæðingardeild Landspítalans þar sem fæðingar hafa verið óvenjumargar síð- asta sólarhring. Bæði fæðingargangur og sæng- urkvennadeild fylltust í gærmorgun og var rúm- um bætt við á sængurlegudeild en auk þessa var Hreiðrið opnað fyrir fæðandi konur. Um tíu börn hafa fæðst á Landspítalanum frá því verkfall ljósmæðra hófst en um átta konur bíða fæðingar. Nýta rýmið til hins ýtrasta Guðfinna Sveinbjörnsdóttir deildarstjóri á sængurkvennadeild Landspítalans segir álagið mikið. „Við nýtum rýmið til hins ýtrasta og höf- um þrjár konur inni á stofum þar sem áður voru tvær til að reyna að hafa það huggulegra fyrir mæður og börn,“ segir hún og bætir við að von sé á fleiri börnum. „Við neyddumst til að setja þrjár mæður á ganginn í gærmorgun en álagið er mikið og Hreiðrið er lokað.“ asab@24stundir.is Nýbakaðar mæður finna mjög fyrir álaginu á ljósmæður meðan verkfall stendur yfir Fer ekki í Hreiðrið eftir fæðinguna Seðlabanki Íslands tilkynnti í gær að stýrivextir myndu haldast óbreyttir í 15,5%. Í stefnulýsingu bankastjórnarinnar kom einnig fram að enn væru líkur til þess að verðbólga væri nærri hámarki og mundi hjaðna hratt á næsta ári. Hagvöxtur á öðrum ársfjórðungi mun hafa verið umtalsverður og töluvert meiri en fyrirfram var bú- ist við, þrátt fyrir samdrátt í einka- neyslu. Þar að auki hafi komið í ljós að hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi hafi verið meiri en áður var talið. Er þetta ekki síst rakið til vaxandi útflutnings sem kemur til vegna veik- ingar krónunnar. Því muni verðbólga hjaðna hægar en ella. Seðlabankinn telur jafnframt líklegt að nokkur samdráttur verði í landsframleiðslu á næstu tveimur árum. Samdráttur sé óumflýj- anlegur hluti aðlögunar þjóðarbúsins að jafnvægi eftir kröftugt hag- vaxtarskeið og muni auðvelda Seðlabankanum að koma böndum á verðbólgu. Loks segir að aðgerðir til að örva efnahagslífið með minna aðhaldi í peninga- eða ríkisfjármálum séu ótímabærar. hj Stýrivextir óbreyttir Eftir Kristínu Ýri Gunnarsdóttur kristing@24stundir.is „Við höfðum rökstuddan grun um að hér væri fólk að reyna að fá dvalarleyfi á fölskum forsendum,“ sagði Jóhann R. Benediktsson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum. „Markmið húsleitanna var að leita persónuskilríkja og annarra gagna til að bera kennsl á hælisleit- endur.“ Reynt að villa á sér heimildir Útlendingastofnun, lögreglan í Reykjavík og á Suðurnesjum og ríkislögreglustjóri undirbjuggu og hrintu af stað leit hjá fólki sem leit- að hefur hælis hér á landi á fölsk- um forsendum. Leitað var á sjö dvalarstöðum og gögn gerð upp- tæk. „Rökstuddur grunur er ástæða þess að við fórum út í þessar að- gerðir. Húsleitirnar voru árangurs- ríkar og við fundum mikið af gögnum.“ Jóhann segir að Útlendinga- stofnun fái til sín mörg mál sem vinna þarf úr. „Þessu fólki verður vísað úr landi því það er enginn grundvöllur fyrir hælisleit gefi þau rangar upplýsingar um sig. Það er algengt í þessum heimi að fólk reyni að villa á sér heimildir og feli persónuskilríki í von um að eignast betra líf. Ef viðkomandi er ekki flóttamaður þá nýtur hann ekki verndar samkvæmt flóttamanna- samningi Sameinuðu þjóðanna,“ segir hann. Málið í rannsókn „Útlendingastofnun og lögregl- an munu nú fara af stað með að vinna úr þessum gögnum. Útlend- ingastofnun mun afgreiða hælis- leitendurna og skoða þeirra mál á meðan mun lögreglan kanna hvort útlendingalög eða einhver önnur lög hafi verið brotin. Við munum bara vinna áfram með þessi gögn sem við gerðum upptæk í dag,“ segir hann. Lögreglan lagði hald á vegabréf, persónuskilríki, reiðufé í ýmsum gjaldmiðli að andvirði rúmlega 1,6 milljóna króna. „Eftir því sem ég best veit er enginn grunur um mansal í þessu máli.“ Gefa rangar upplýsingar Lögreglan gerði húsleit hjá hælisleitendum  Húsleitirnar voru árangursríkar  Lagt var hald á vegabréf og persónuskilríki Lögreglan Húsleit var gerð hjá hælisleitendum. ➤ Aðgerðir hófust klukkan 7.30og þeim lauk klukkan 09.15. ➤ Alls tóku 58 lögreglumennþátt í aðgerðunum. ➤ Gerð var húsleit á sjö dval-arstöðum hælisleitenda. ➤ Aðgerðirnar voru sameig-inlegt verkefni þriggja lög- regluembætta og Útlend- ingastofnun. AÐGERÐIRNAR STUTT ● Steypuvinna Grunnurinn að nýju íbúðarhúsi á Finn- bogastöðum í Árneshreppi var steyptur síðastliðinn laugardag en bæjarhúsið brann sem kunnugt er síðastliðið vor. Frá þessu er greint á fréttavefnum litlahjalla.is ● Manngerð náttúruundur Ferðamenn sem leið eiga um Námaskarð undrast oft fegurð hverasvæðisins enda er það ægifagurt. Ekki er þó víst að margir átti sig á að sumir hverirnir eru gamlar borholur sem grjóti hefur verið hlaðið upp að. Sumir segja þetta til marks um að saman geti farið ferðaþjónusta og orkuvinnsla. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Þýskir lögregluþjónar þykja hafa seilst fulllangt til að upp- lýsa þjófnað sem Constanze og Rocco Zahn tilkynntu dag- inn fyrir brúðkaup sitt. Mættu þeir í hjónavígsluna og höfðu brúðgumann á brott með sér til að spyrjast fyrir um þjófn- aðinn. Lögreglan hafði sig á brott þegar brúðkaupsgestir bauluðu á hana. aij Lögga truflar brúðkaup Vígslan rofin SKONDIÐ Er mikið álag í vinnunni? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Oft koma fyrstu einkenni streitu fram sem stöðug þreyta og óþægindi í maganum og ónæmiskerfið starfar af minni krafti en áður. Rannsóknir sýna að LGG+ vinnur gegn þessum neikvæðu áhrifum og dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, og Ingibjörg R. Guð- mundsdóttir, formaður Lands- sambands verslunarmanna og varaforseti ASÍ, hafa bæði kynnt framboð sitt til forseta ASÍ. Nýr forseti verður kjörinn á árs- fundi ASÍ sem haldinn verður 23.- 24. október en þá lætur Grétar Þorsteinsson, núverandi forseti, af störfum eftir 12 ára starf. þe Forsetaslagur framundan

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.