24 stundir - 12.09.2008, Síða 12

24 stundir - 12.09.2008, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2008 24stundirFE Vallý s. 510 3728 Böddi s. 510 3726 atvinna@24stundir.is PANTIÐ GOTTPLÁSSÍ TÍMA ATVINNUBLAÐIÐ FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a „Ég hélt nú fyrst að Skotarnir myndu virða okkur að vettugi þar sem þeir hata Englendinga, en það gerðist ekki,“ segir Arnar Gíslason. SALA JPY 0,8662 3,16% EUR 128,04 0,89% GVT 169,50 1,23% SALA USD 92,02 1,71% GBP 161,47 1,75% DKK 17,173 0,91%                !!"                      !   " #  $    % &'()* &   + ,- ./-  0        12    '    '3.   .4 2  *5 / 62 7  ,      8 2    8     ,/  !  "                                                 7,   6 , 9   " & ;< =;< >=? =< @A@ @@@ > ==< B@@ ?C< <AC DC; ? @@< CC@ <C@ A <BA D ?<C BCA C @?= <;@ ;B? ? @B; >>= <?@ > >>> =@@ + >A ?@D CD; <CD DA@ @ < >AC DAB + > DCA BB> + + + >< B<@ @@@ D ?<; ??@ + DEC= CE>A ;CEB= DEC= ?<EA@ ?@E?= ;@E<= DADE@@ ;?ED= BCE=@ <E@= BE<B A<E>@ ;@CE@@ ?=;BE@@ ?A<E@@ ?=>E@@ + + + <=?=E@@ + + DEC> CEB= ;CEA@ DECD ?<EA; ?@E<@ ;@EC= >@@E@@ ;?E>= B=E@@ <E<A BEC; ACED@ ;@>E@@ ?===E@@ ;@@E@@ ?=BE=@ ;?E>= + BE=@ <==@E@@ ?@E=@ CE=@ ./  ,  > ?? = <D =@ ; ; >C DC ; + ?B ; + B + ?C + + + > ? + F  , , ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ?@ A ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B ; A ;@@B ?? A ;@@B A A ;@@B ?? A ;@@B ?D > ;@@B ;= B ;@@B < D ;@@B ?? A ;@@B ?? A ;@@B > < ;@@B MARKAÐURINN Í GÆR ● Úrvalsvísitalan í Kauphöll Ís- lands stóð nánast í stað í gær. Hækkunin nam 0,02% og var lokagildið 3.969 stig. ● Atlantic Petroleum lækkaði mest félaga á aðallista eða um 3,45%. Bakkavör lækkaði um 1,2% og Landsbankinn um 1,14%. ● Atorka hækkaði mest eða um 1,26%, Kaupþing um 1,15% og Færeyja banki um 0,63%. ● Velta með hlutabréf var 6,5 milljarðar króna. Velta með skuldabréf nam 28,4 milljörðum króna. ● Samnorræna vísitalan OMX 40 lækkaði um rúmt prósent i gær. Vísitölur lækkuðu í Svíþjóð og Kaupmannahöfn en hækkuðu í Finnlandi og Osló. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@24stundir.is „Ég hélt nú fyrst að Skotarnir myndu virða okkur að vettugi þar sem þeir hata Englendinga, en það gerðist ekki,“ segir Arnar Gíslason, einn rekstraraðila English Pub í Austurstræti. Á þriðja tug Skota var inni á staðnum í pilsum að teyga öl þegar blaðamaður náði tali af Arnari eftir hádegi í gær. „Ég held að þetta sé eini fatn- aðurinn sem þeir komu með til landsins, þeir hafa ekki farið úr pilsunum,“ bætti Arnar við. Bjórtilboð fyrir Skotana Algjör ofursala var á bjór og öðr- um áfengum drykkjum á English Pub dagana sem Skotarnir voru á landinu. Partíið stóð hæst á mið- vikudagskvöldið þegar hver bjór- kúturinn á fætur öðrum rann ofan í ölþyrsta, pilsklædda menn í sig- urvímu. „Ég seldi þvílíkt magn í gær [á miðvikudagskvöldið] og reiknast mér til að ég hafi selt 50 kúta bara í gær en u.þ.b 110 kúta þessa þrjá daga,“ segir Arnar. Það eru um 2.750 lítrar af bjór. Á barn- um var sérstakt „Skotatilboð“ á bjór og kostaði bjórinn 500 kr. Bar- inn seldi því bjór til Skotanna fyrir tæpar 2,8 milljónir króna þessa þrjá daga. „Þessi heimsókn þeirra er mikil búbót fyrir veitingabrans- ann,“ segir Arnar. Man ekki eftir annarri eins sölu Dagbjört Hanna Sigdórsdóttir, sem rekur Dubliners, Highlander bar og Celtic Cross segir Skotana hafa fjölmennt á alla staðina. „Ég man ekki eftir annarri eins sölu á þremur dögum. Við seldum 8.500-9.000 lítra af bjór samtals,“ segir Dagbjört. Á stöðunum var sér- stakt tilboð á bjór, eins og á English Pub og kostaði bjórinn 500 kr. Hún segir Skotana hafa verið mætta snemma á morgnana til að skemmta sér í pilsunum og hún hafi varla verið búin að kveikja ljósin þegar tappað var af fyrstu flöskunum og mjöðurinn byrjaði að flæða úr kútunum. „Ég vonast bara til þess að Íslendingar dragist aftur á móti Skotum, þetta eru bestu viðskiptavinir sem maður fær,“ segir Dagbjört. Hún segir Skotana hafa verið einstaklega prúða meðan þeir voru hérna. „Ég varð ekki vitni að nein- um pústrum og engin vandamál komu upp. Þeir komu bara hingað til þessa að drekka og skemmta sér og það var mikið fjör inni á stöð- unum.“ Uppselt var á landsleikinn á miðvikudagskvöldið sem Íslend- ingar töpuðu 1-2. Skoska knatt- spyrnusambandið hafði fengið 1.200 miða til ráðstöfunar en mun fleiri Skotar voru mættir og er talið að þeir hafi verið á þriðja þúsund. Pilsklæddir teyguðu stíft  Óhemjumikil bjórsala  4 staðir seldu samtals 12.000 lítra af bjór  Gleðistund fyrir veitingamenn  Prúðir og sötruðu allan daginn Skotar Þessir Skotar voru gríðarlega hressir á Highlander í Lækjargötu. ➤ Alla jafna kostar stór bjór 600-850 kr. á íslenskum börum. ➤ Sérstakt bjórtilboð var með-an Skotarnir voru hérna á völdum stöðum. ➤ Lágt gengi krónunnar komSkotunum vel. ➤ Að sögn lögreglu voru Skot-arnir mjög prúðir meðan þeir dvöldust hérna. SALA Á BJÓR Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 5% að raungildi á 2. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður samkvæmt nýjum tölum Hagstof- unnar. Á fyrstu sex mánuðum ársins er hagvöxtur talinn vera 4,1%. Í síðustu hagspá fjármálaráðuneytisins frá því í vor var spáð 0,5% hag- vexti á árinu. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um 25% en inn- flutningur hafi dregist saman um 12%. - mbl.is 4 prósenta hagvöxtur Steen Gude, eigandi Stones In- vest, kennir Landic Property um gjaldþrot fyrirtækisins í gær. Á vef danska blaðsins Børsen segir að þar sem Landic hafi fyrst kom- ið fram opinberlega með efa- semdir um að Stones gæti staðið við skuldbindingar sínar, mætti kalla félagið banamann Stones Invest. Í tilkynningu á heimasíðu Stones segir að fjölmiðlastríð við Landic og rangfærslur þaðan um Stones hafi ekki gert þeim auð- veldara fyrir í viðræðum við kröfuhafa undanfarnar vikur. gca Gude sár út í Landic Property Novator Credit Fund, vogunar- og skuldasjóður Novators, hlaut í fyrrakvöld árleg verðlaun tíma- ritsins Creditflux, sem fjallar um lánamarkaði. Novator fékk verð- launin besti tækifærissjóðurinn. Novator Credit verðlaunaður EIGANDI Nyhedsavisen, Morten Lund, átti að fá 150 milljónir danskra króna, eða 2,5 milljarða íslenskra króna, frá samkeppn- isaðila fyrir að hætta útgáfu Ny- hedsavisen. Samkvæmt samnings- drögum sem danska blaðið Jyllands Posten hefur komist yfir hafði Lund samið við eiganda Berlingske, David Montgomery, um greiðslur til fyrirtækis í eigu samstarfsfélaga Lund ef útgáfunni yrði hætt. Í frétt JP segir að Lund hafi sagt fyrrverandi samstarfs- félögum sínum frá samningnum í trúnaði í sumar. Samningsdrögin eru dagsett 28. ágúst, þremur dög- um áður en tilkynnt var um lokun dagblaðsins. Montgomery neitar því staðfastlega að nokkur samn- ingur hafi verið gerður og ekki hefur náðst í Morten Lund vegna málsins. Greitt fyrir stöðvun útgáfu?

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.