24 stundir - 17.09.2008, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Verslanir eru nú fullar af nýjum
vörum og skór og yfirhafnir
nokkuð áberandi fyrir haustið.
Í einum graut
„Hjá okkur er til mikið af alls
konar pelsum t.d. með hettu og
stuttir. Líka leðurjakkar með
hettu og mittisjakkar. Á haustin
verður eftirspurnin eftir yfirhöfn-
um og skóm meiri. Í skónum eru
leðurstígvél með frekar háum hæl
vinsælust eða rúskinnsstígvél sem
ná upp fyrir hné og eru flatbotna,
en þau hafa verið mjög vinsæl.
Annars er erfitt að lýsa hausttísk-
unni í nokkrum orðum þar sem
hún er svo blönduð í einum
graut. Hún er rómantísk með
blúndum en um leið dálítið „got-
h“með leðurjökkum í bland við
„60s“ með pelsum og blómakjól-
um sem hafa verið vinsælir hjá
okkur upp á síðkastið. Fólk er í
öllu í einu og sama dressinu og
enginn þarf að hafa áhyggjur af
því að vera ekki í tísku heldur eiga
allir bara að njóta sín,“ segir Ása
Ottesen verslunarstjóri hjá Gyllta
kettinum.
Kvenleg og þægileg
„Í haustlínunni hjá Vero Moda
eru kápur bæði í litum og svartar
og gráar og eins leðurjakkar og
kápur. Peysurnar eru þykkar og
stórar úr bómull, ull og silki með
stórum tölum og kaðlaprjóni. Að
neðan eru það útvíðar gallabuxur,
leggings og niðurmjóar buxur.
Líka mikið af kjólum sem er hægt
að vera í við buxur hversdags og
breyta síðan yfir í kvöldklæðnað.
Litirnir eru mest grár, svartur,
kremað, grænt, kóngablár og
mikið í fjólubláu sem ég myndi
segja að væri ríkjandi litur. Í fylgi-
hlutum er mest um stóra trefla,
hettur, húfur og töskur í öllum
stærðum og gerðum. Ég myndi lýsa
hausttískunni sem þægilegri, fal-
legri, kvenlegri og spennandi. Lín-
an er svo breið að þú getur jafnt
fengið víðan og þægilegan fatnað
og aðsniðinn og kvenlegan,“ seg-
ir Díana Bjarnadóttir stílisti.
Strákalegt en þó kvenlegt
„Fjölbreytni einkennir
haustið hjá okkur en í versl-
uninni má finna fimm mis-
munandi þemu. Brit Revi-
val er t.d. ný lína hjá okkur
en í henni eru köflótt föt
undir breskum áhrifum
sem nota má með fínni
silkiblússum. Þessi lína
er dálítið strákaleg en um
leið kvenleg og ríkjandi litir eru
dökkblár, rauður og
grár. Í öðrum línum
má nefna rokk-
araboli við galla-
buxur og köflóttar
kápur, stutta
jakka og þykkar
peysur sem má
nota yfir boli,
skyrtur og sat-
ínkjóla. Pífu-
skyrtur og
blússur verða
áberandi í
haust og köfl-
óttar næl-
onsokkabuxur
og uppháir,
köflóttir hné-
sokkar sem eru
flottir yfir sokkabuxur.
Fylgihlutirnir eru mest
stórar töskur í brúnu og
svörtu og
skart í
svörtu og
silfruðu,“
segir Inga
Dóra Hall-
dórsdóttir
versl-
unarstjóri
Warehouse
verslananna.
Getty Images
Allt leyfilegt í hausttískunni
Þegar hausta tekur er
kominn tími til að klæða
sig dálítið betur og setja
sumarfötin inn í skáp.
Það er um að gera að
nota árstíðaskiptin til að
kaupa sér eitthvað nýtt
og vera tilbúinn í vetur-
inn.
Töff Kvenleg tíska en
pönkuð um leið.
Fjólublár Fallegur lit-
ur sem heldur velli.
Rúmgóðar
Stórar töskur
í öllum litum.
Vel skóuð Há
rúskinnsstígvél
verða vinsæl.
Kvenleg, pönkuð
og rómantísk
Vinsælir
Blóma-
kjólar
rjúka út
fyrir
haustið.
Áberandi Blússur
og pífuskyrtur.
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins
Við höfum sett saman
pakka sem inniheldur
grenningarnudd með
cellulite - jurtaolíum,
líkamsvafning
og extra flabelos.
Þú mætir
5 sinnum og
árangurinn
er engu líkur.
Brennir fitu
Hægir á öldrun
Grennir
Minnkar appelsínuhúð
Mótar vöðva
Eykur sveiganleika
Örvar blóðrás
Eykur beinþéttni
Dregur úr æðahnútum
Dregur úr verkjum
í mjóbaki
Þessi meðferð virkar
Við notum eingöngu bestu
grenningartæki sem til eru í
heiminum í dag.
10 mín, = 1 klst. í ræktinni
TILBOÐ
24.900 kr.
hringið núna í síma 577 7007
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir