24 stundir - 17.09.2008, Page 19

24 stundir - 17.09.2008, Page 19
24stundir MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 19 Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Miðvikudagur 17. september  Cavalliera Rusticana og Pagliacci í Óperunni » Meira í Morgunblaðinu Drama á föstudag  Færeyskri jólaverslun verður beint til Íslands » Meira í Morgunblaðinu Ódýra Ísland?  Hvaða hjólahjálmar eru í tísku þessa dagana? » Meira í Morgunblaðinu Töff toppstykki  Haukum og Stjörnunni spáð sigri í handbolta » Meira í Morgunblaðinu Hverjir eru bestir?  Allt um bókina Animal Farm fyrir nemendur » Meira í Morgunblaðinu Glósubókin ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a En stefnan er sett út og þá ætla ég að gera það á meðan dóttir mín er ung og ekki komin á skólaaldur. Mig langar að fara til einhvers skemmtilegs lands. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@24stundir.is Körfuknattleiksmaðurinn Hlynur Bæringsson segir það bara gaman að eiga stöðugt við sér stærri menn þegar hann mætir landsliðum ann- arra þjóða. Í kvöld verður hann í eldlínunni í vítateignum í Laugar- dalshöllinni þegar Ísland mætir Svartfjallalandi í B-deild Evrópu- mótsins í körfuknattleik karla. „Þetta leggst bara vel í mig. Svartfellingar eru klárlega með sterkasta liðið í riðlinum og þó þeir séu í B-deildinni með okkur þá eru þeir alls ekki nein B-þjóð. Þeir eru bara þar vegna þess að þeir eru ný- búnir að fá sjálfstæði frá Serbíu. Það er eina ástæðan fyrir því að þeir eru í B-deildnni í ár,“ sagði Hlynur á mánudaginn þegar hann hafði lokið við að árita fjölda mynda en landsliðið áritaði mynd- ir í einni verslana Select við góðar undirtektir ungviðisins. „Þetta verður bara fjör enda eru þarna á ferðinni toppleikmenn sem leika í bestu deildum úti um alla Evrópu og í NBA,“ sagði Hlyn- ur og var hvergi banginn. Margir ekki snöggir Miðað við meðaljóninn er Hlyn- ur alls ekki smávaxinn, hann er 197 sentimetra hár og vill ekki viður- kenna að það sé leiðinlegt að kljást stöðugt við sér hávaxnari og þyngri menn. „Það fer dálítið eftir því hvort þeir geta hreyft sig líka. Ef maður er kominn í þann pakkann að þeir séu þyngri, hærri og sneggri en maður sjálfur þá er það orðið ansi erfitt. Margir af þessum gaurum eru ekki mjög snöggir og það má því reyna að nýta sér það á móti þeim. Það eru sem betur fer ekkert svo margir sem hafa allan pakkann frá náttúrunnar hendi. En auðvitað hittir maður á leikmenn sem eru illviðráðanlegir. Annars hefur mér yfirleitt geng- ið mun betur með áberandi há- vaxna menn en þá sem eru kannski aðeins hærri en ég og eru bæði sterkir og snöggir. Það eru miklu erfiðari mótherjar en súlurnar.“ Íslenska landsliðið byrjaði keppnina vel, lagði Dani hér heima, en tapaði síðan í Hollandi um helgina. „Það var klúður í rest- ina hjá okkur. Við vorum inni í leiknum allan tímann og það hefði verið ljúft að ná í bæði stigin þar. Við mætum síðan Austurríkis- mönnum um helgina og þeir unnu Dani en töpuðu á móti Svartfell- ingum. Þeir eru aðeins hærra skrif- aðir en við – en ekki mikið. Það má gera því skóna að þetta sé barátta í riðlinum um annað sætið og við þurfum helst að komast í gegnum þennan fyrri hluta mótsins með minnst tvo sigra. Fyrst við klúðr- uðum þessu í Hollandi þá væri það ásættanlegt.“ Byrjaði í götubolta Hlynur er 26 ára gamall fram- herji sem byrjaði eiginlega fyrir slysni í körfunni. „Axel Nikulásson var á ferð um landið að kynna körfubolta, svona 3 á 3 götubolta. Hann kom til Grundarfjarðar, þar sem ég átti heima, og ég spilaði í móti hjá honum og fannst þetta hörkugaman. Svo var maður alltaf að leika sér úti á velli í Grundarfirði og þannig byrjaði þetta,“ segir Hlynur. „Því miður voru ekki körfuboltaæfingar í Grundarfirði, og eru ekki enn, þannig að maður varð bara að leika sér úti.“ Hlynur byrjaði að keppa í körfu- bolta með KR í áttunda flokki. „Síðan fór ég í Borgarnes og var þar í fimm vetur áður en ég fór í Snæ- fell, lék með þeim í þrjú tímabil og hélt þá í víking til Hollands og var þar einn vetur en kom síðan heim aftur. Mér líkaði vistin í Hollandi alveg ágætlega, en ég var óheppinn. Annars veit ég ekki hvort maður á að tala um óheppni, kannski bara vitleysa í mér að kynna mér málið ekki betur. Liðið var hæfileikaríkt en við skulum orða það þannig að klúbburinn í kringum liðið var ekki fagmannalega rekinn og allar aðstæður ollu mér vonbrigðum. Maður hefði viljað vera á hærra plani,“ segir Hlynur. Ætlar í atvinnumennsku á ný En hann er ekki á þeim buxun- um að láta þetta slá sig út af laginu og ætlar sér í atvinnumennsku á nýjan leik. „Ég var að hugsa um það fyrir þetta tímabil, en ákvað að taka eitt ár í viðbót hér heima. En stefnan er sett út og þá ætla ég að gera það á meðan dóttir mín er ung og ekki komin á skólaaldur. Mig langar að fara til einhvers skemmti- legs lands og prófa nýjan lífsstíl og njóta þess sem það getur boðið manni,“ segir Hlynur. Landsliðsfyrirliðinn í hand- knattleik, Ólafur Stefánsson, sagði fyrir ekki margt löngu að hann vildi fá Hlyn í vörnina í landsliðinu í handbolta. Ætli Hlynur hafi hug- leitt það eitthvað? Hefðum sjálfsagt fengið gull! „Nei, ekki alvarlega, þetta var bara frá honum komið og ég veit ekki hvað þjálfaranum fannst um þessa hugmynd. Eins og þjóðin hefur fengið að kynnast undanfar- ið þá hugsar Ólafur ýmislegt og hann hefur það fram yfir marga sem eru í umræðunni að hann seg- ir það sem hann hugsar. Það hlýtur að vera mjög gott fyrir íþrótta- fréttamenn því það koma skemmtilegir hlutir frá honum. Þessi hugmynd fór aldrei mjög langt, ég tók þessu eins og hrósi. En ætli við hefðum bara ekki fengið gull á Ólympíuleikunum ef ég hefði verið í vörninni,“ segir Hlyn- ur og hlær og bætir við: „Maður hefur mikið á samviskunni! Nei, strákarnir þurftu greinilega ekki mikla hjálp, þeir stóðu sig frá- bærlega. Kannski var þetta það sem þurfti til að þeir fengju spark í rass- inn í vörninni. Þeir stóðu sig frá- bærlega og þurftu alls ekki á minni hjálp að halda,“ segir Grundfirð- ingurinn. Kraftmikill Hlynur Bæringsson er vanur að slást við stóra og sterka stráka undir körfunni. Götubolti í Grundarfirði  Hlynur Bæringsson kann því vel að kljást við sér stærri menn  Hefðum sjálfsagt fengið gull á ÓL ef ég hefði verið í vörninni ➤ Hlynur er 26 ára gamall ogleikur í kvöld sinn 45. lands- leik, en fyrst lék hann 23. febrúar 2002 gegn Makedón- íu í Skopje. ➤ Hann er með rétt um 10 stigað meðaltali í landsleikj- unum, en mest skoraði hann gegn Belgum og Pólverjum árið 2004, 23 stig í hvorum leik. ➤ Hlynur lék með meist-araflokki Skallagríms 1997- 2002 og frá þeim tíma með Snæfelli, nema veturinn 2005-2006 þegar hann lék í Hollandi. HLYNUR BÆRINGSSON 24stundir/Kristinn

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.