24 stundir - 17.09.2008, Page 21
24stundir MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 21
Verslunareigendum ber skylda til að verðmerkja allar vörur
samkvæmt lögum. Þetta á jafnt við inni í verslunum sem
í búðargluggum.Verðmerking á að vera vel sýnileg og ekki
má fara á milli mála til hvaða vöru hún vísar.
Oft getur verið erfitt að átta sig á hagkvæmustu kaupunum
þar sem úrval af vörum er mikið og pakkningar misstórar.
Til að auðvelda þér að bera saman verð hafa því verið settar
reglur sem skylda verslunareigendur til að gefa upp mæli-
einingarverð vöru, auk söluverðs.
Notaðu rétt þinn.
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • www.neytendastofa.is
P
R
[p
je
er
r]
Neytendastofa
Það er ekki skemmtileg lífsreynsla að
koma að húsinu sínu eða bílnum eftir að
innbrotsþjófar hafa látið þar greipar sópa.
Fólk getur þó gripið til ýmissa ráða til að
draga úr hættu á að brotist verði inn á heim-
ili þess.
Lokað og læst
Mikilvægt er að ganga tryggilega frá öllum
gluggum og hurðum. Mörg dæmi eru um að
innbrotsþjófar gangi inn um ólæstar dyr á
mannlausu húsi.
Villa á sér heimildir
Innbrotsþjófar villa oft á sér heimildir, lát-
ast til dæmis vera iðnaðarmenn til að blekkja
nágranna og vegfarendur. Einnig er algengt
að þeir athugi hvort hús séu mannlaus með
því að hringja bjöllu og segjast síðan hafa
farið húsavillt þegar einhver kemur til dyra.
Samstarf nágranna
Ef menn bregða sér af bæ í lengri tíma er
gott að láta líta út fyrir að einhver sé heima,
til dæmis með því að fá nágranna eða vini til
að leggja bíl í stæði, fjarlægja póst og kveikja
ljós. Ekki ætti fólk að skilja eftir skilaboð á
símsvara um að það sé fjarverandi því að
þannig býður það hættunni heim.
Vel á verði
Árvekni nágranna getur einnig skipt sköp-
um til að koma í veg fyrir innbrot eða upp-
lýsa það. Þannig geta allar upplýsingar um
grunsamlegar mannaferðir komið að gagni,
jafnvel þó að fólk telji þær lítilfjörlegar. Betra
er að hringja í lögreglu en að láta það vera ef
grunsemdir vakna.
Þjófavarnakerfi
Öryggisfyrirtæki bjóða upp á þjófavarna-
kerfi fyrir heimili sem eru beintengd stjórn-
stöð. Merki um að slíkt kerfi sé í húsinu fælir
innbrotsþjófa frá.
Ekki verðmæti í bílnum
Fólk ætti aldrei að skilja verðmæti eftir í
bílum sínum, jafnvel þó að það bregði sér
aðeins frá í örstutta stund. Ef það neyðist til
að geyma þau í bílnum ætti það að koma
þeim fyrir þar sem ekki er hægt að koma
auga á þau. einarj@24stundir.is
Hægt er að draga úr hættunni á innbrotum
Varnir gegn óboðnum gestum
Óboðinn gestur Draga
má úr hættu á inn-
brotum á ýmsan hátt.
Engin matvöruverslun var með
allar vörur rétt merktar í nýlegri
könnun á verðmerkingum sem
Neytendastofa gerði í Borgarnesi
og á Akranesi. Farið var í sex
matvöruverslanir á svæðinu og
valdar 25 vörur af handahófi í
hverri verslun. Kannað var hvort
þær væru verðmerktar og hvort
verðmerking í hillu væri í sam-
ræmi við verð við kassa. Alls voru
skoðaðar 150 vörur og voru verð-
merkingar á 11% þeirra í ólagi.
Jafnframt voru verðmerkingar
kannaðar í bakaríum og 20 sér-
vöruverslunum, bæði inni í versl-
ununum og í sýningargluggum.
Aðeins ein verslun var með allt
rétt verðmerkt. ej
Engin með allar
vörur réttar
Það er full ástæða fyrir neytendur
til að fylgjast vel með hvort sam-
ræmi sé milli hilluverðs og kassa-
verðs þegar innkaup eru gerð.
Mörg dæmi eru um að vara reyn-
ist dýrari við kassa en verðmiði í
hillu sagði til um. Sérstaklega
ættu neytendur að athuga hvort
tilboðsverð skili sér ekki örugg-
lega alla leið á kassann. Það getur
því borgað sig að fara vel yfir inn-
kaupastrimil og kvittanir að
loknum innkaupum og gera at-
hugasemdir strax ef eitthvað er
ekki eins og það á að vera. ej
Samræmi verðs
og merkinga
Níu af hverjum tíu Íslendingum
(91%) segjast flokka sorp til end-
urvinnslu samkvæmt nýrri könn-
un sem Capacent gerði fyrir Úr-
vinnslusjóð. Nær 19% segjast
gera það alltaf og um 37% oft.
Hlutfall þeirra sem flokka sorp til
endurvinnslu hefur hækkað frá
síðustu mælingu árið 2006 þegar
um 84% sögðust flokka sorp.
Könnunin var kynnt í tilefni af
endurvinnsluviku sem stendur
yfir þessa dagana. ej
Flestir flokka