24 stundir - 04.10.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir
Fimmti hver kennari á Bretlandi
er fylgjandi því að banni við að
flengja nemendur sé aflétt. Þetta
kom fram í skoðanakönnun sem
menntaviðauki Times lét fram-
kvæma.
„Það er hægt að réttlæta eða í
það minnsta færa rök fyrir því, að
líkamlegar refsingar séu leyfðar, þó
ekki væri nema bara til hræðslu,“
segir Ravi Kasinathan grunnskóla-
kennari. „Núverandi agaviðurlög
virka einfaldlega ekki á sum börn.“
Al Aynsley-Green, umboðsmað-
ur barna, tekur afar illa í hugmynd-
ir þessa efnis. „Það er fullkomlega
óásættanlegt að beita börn og ung-
menni líkamlegri refsingu og geng-
ur þvert gegn samningi SÞ um rétt-
indi barna, sem Bretland fullgilti
árið 1991,“ segir hann. aij
Könnun meðal breskra kennara
Fimmtungur vill
reyrinn aftur
Sérstök sjaríalán, sem eru vaxta-
laus eins og Kóraninn boðar, eru
vinsæl á Norður-Jótlandi, einkum
meðal hámenntaðra múslíma, að
því er danskir fjölmiðlar greina frá.
Nokkrir bankar á Norður-Jót-
landi hófu að veita múslímskum
viðskiptavinum þessi lán snemma
á þessu ári og stofnuðu í því skyni
félagiðAmanah Kredit.
Bankarnir og félagið kaupa fast-
eignirnar sem lán eru tekin vegna.
Viðskiptavinirnir fá umráðarétt yf-
ir íbúðunum en afsalið fyrst eftir
30 ár eða þegar síðasta afborgun af
íbúðarláninu hefur verið greidd.
Forsvarsmaður Ahmanah Kredit
vill ekki greina nákvæmlega frá því
hversu mörg sjaríalán, sem tíðkast í
fleiri löndum, til dæmis Bretlandi,
hafa verið veitt frá því að lánveit-
ingarnar hófust í Danmörku en
getur þess þó að þau séu nokkur
hundruð.
Félag sem er mótfallið dvöl
múslíma í Danmörku hefur hvatt
viðskiptavini til að sniðganga
bankana sem veita sjaríalánin.
ingibjorg@24stundir.is
Danskir bankar veita vaxtalaus lán
Sjaríalánin vinsæl
STUTT
● Slys vegna SMS Rannsókn á
lestarslysinu í Los Angeles í síð-
asta mánuði bendir til þess að
lestarstjórinn hafi sent SMS-
skilaboð 22 sekúndum fyrir
slysið þannig að hann sá ekki
rauða ljósið. Alls biðu 25 bana í
slysinu.
● Óvinur inn Gordon Brown,
forsætisráðherra Bretlands, hef-
ur stokkað upp í stjórninni og
skipað Peter Mandelson, sem
hann hefur haft megnustu
óbeit á, í starf viðskiptaráð-
herra. Mendelson hefur tvisvar
þurft að fara úr ríkisstjórn
vegna hneykslismála.
● Neyðarfundur í París Leið-
togar Bretlands, Þýskalands,
Ítalíu og Frakklands hittast í
París í dag til þess að ræða
hvernig styðja eigi banka í
kreppu.
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Þegar Kaliforníubúar ganga að
kjörborðinu 4. nóvember munu
þeir ekki aðeins kjósa sér forseta. Á
atkvæðaseðlum verður fjöldi kjör-
inna embætta, auk tólf lagabreyt-
ingatillagna, sem bornar verða
undir atkvæði íbúa. Hart er deilt
um þá áttundu, þar sem lagt er til
að í stjórnarskrá fylkisins sé hjóna-
band skilgreint sem samband karls
og konu. Frá 17. júní síðastliðnum
hafa pör af sama kyni getað gengið
í hjónaband í fylkinu.
Almenningur á móti banni
Hæstiréttur Kaliforníu úrskurð-
aði í maí að pörum af sama kyni
væri heimilt að ganga í hjónaband.
Þá skiptist almenningsálitið nokk-
uð jafnt með og á móti því að skil-
greina hjónaband sem samband
beggja kynja. Nýjustu kannanir
benda hins vegar til þess að al-
menningur sé að snúast á sveif
þeirra sem styðja rétt samkyn-
hneigðra til hjónabands. Könnun
sem gerð var í september sýndi að
38% kjósenda studdu stjórnar-
skrárbreytinguna, en 55% væru á
móti henni. Telja stjórnmálaskýr-
endur að auglýsingaherferð þeirra
sem leggjast gegn stjórnarskrár-
breytingunni hafi náð vel til yngri
kjósenda. Meðal þeirra sem lagt
hafa baráttunni lið er fjöldi frægra
kvikmyndaleikara í Hollywood.
„Það hefur komið í ljós að sem
stendur er yfirgnæfandi meirihluti
yngri kjósenda á móti banninu,“
segir Dan Schnur, stjórnmálafræð-
ingur við Háskólann í Suður-Kali-
forníu. Schnur telur jafnframt að
sá kraftur sem fylgismenn Baracks
Obama hafa sett í að fá yngra fólk
að kjörkössununum geti því haft
mikil áhrif.
Trúfélög verji andlegu víddina
Miles McPherson, sem er prest-
ur í San Diego, hvetur sóknarbörn
sín til að styðja stjórnarskrárbreyt-
inguna í kosningum. Hann telur að
yngra fólk þurfi á fræðslu að halda,
þar sem það líti gjarnan á samkyn-
hneigt fólk sem lítilmagna sem
berjast þurfi fyrir. „Fólk hefur van-
ist því frá unga aldri, í skólakerfinu
og þjóðfélaginu, að sýna mikið
umburðalyndi. Það hefur vanist
því að mega ekki tala gegn lífsmáta
nokkurs manns,“ segir McPherson
við Washington Post og bætir við:
„Það þarf að átta sig á því að
hjónaband gagnkynhneigðra og
hjónaband samkynhneigðra er
tvennt ólíkt og sérstaklega í biblíu-
legum skilningi. Í hjónabandi er
andleg vídd sem hið veraldlega
vald áttar sig ekki á. Það er hlutverk
kirkjunnar að standa vörð um
hana.“
Kosið um
hjónabandið
Breyting á stjórnarskrá Kaliforníu verður lögð fyrir kjósendur
Myndi skilgreina hjónaband sem samband karls og konu
➤ Borgarstjórinn í San Fran-cisco gaf saman um 4.000 pör
af sama kyni árið 2004, en
þau hjónabönd voru dæmd
ógild þar sem borgarstjórann
skorti lagastoð.
➤ Kalifornía varð annað fylkiBandaríkjanna til að heimila
vígslu hjóna af sama kyni.
➤ Það gerðist þegar hæstirétturfylkisins úrskurðaði 12. maí á
þessu ári að bann stæðist
ekki stjórnarskrá.
HJÓNABÖND
AFPNýgiftar Fjöldi samkynhneigðra para hefur nýtt sér frjálslynd hjúskaparlög Kaliforníu.
Sífellt færri flytja ólöglega til
Bandaríkjanna, samkvæmt nýút-
kominni skýrslu Pew-stofnunar-
innar. Segir í skýrslunni að á síð-
asta ári hafi fleiri komið sér
löglega til landsins en ólöglega í
fyrsta sinn í áratug. Rekja
skýrsluhöfundar þetta meðal
annars rekja til fækkunar lág-
launastarfa í Bandaríkjunum
undanfarin ár og hertrar landa-
mæravörslu. aij
Færri smygla
sér til BNA
Olli Rehn, stækkunarstjóri Evr-
ópusambandsins, segist binda
vonir við að hægt verði að leysa
nafnaríg Grikklands og Make-
dóníu á næstunni.
Grikkland hefur neitað að við-
urkenna opinbert nafn Makedón-
íu, þar sem stjórnvöld í Aþenu
óttast að því gætu fylgt kröfur til
svæðis innan Grikklands sem ber
sama nafn. aij
Reynt að leysa
nafnaríg
Flugfélagið Atlantic Airways
hvetur Færeyinga til að fara í
verslunarferðir til Íslands fyrir
jólin. Hefur félagið nú auglýst
helgarferðir í því skyni. Segir
Magne Arge, framkvæmdastjóri
félagsins, að gengisþróun ís-
lensku krónunnar geri það að
verkum að þessa dagana geti Fær-
eyingar gert mjög góð kaup í ís-
lenskum verslunum. aij
Hvattir til
Íslandsferða
Stjórnarandstaðan í Kanada hefur sýnt fram á að
ræða sem forsætisráðherra Kanada, Stephen Har-
per, flutti í mars 2003 til stuðnings innrásinni í
Írak var að miklu leyti eins og ræða sem þáverandi
forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, flutti
tveimur dögum áður. Ræðuskrifari Harpers hefur
viðurkennt að hafa afritað ræðu Howards og hefur
hann látið af störfum. Harper er sakaður um að
hafa stutt Bandaríkjastjórn gagnrýnislaust.
Flutti ræðu annars ráðherra
Apótek
Heilsuverslanir,
Barnaverslanir og í
Heilsuvörudeildum
stórmarkaða
www.weleda.is