24 stundir - 04.10.2008, Blaðsíða 48

24 stundir - 04.10.2008, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir Hjá okkur fáið þið mikið úrval af barnabílstólum Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is krakkar Mikki Mús Dýragarðurinn FRÆNDI MINN VAR VISS UM AÐ HANN MUNDI VINNA TIL VERÐLAUNA Á GÆLUDÝRASÝNINGUNNI VANNSTU EINHVER VERÐLAUN? JÁ... ...ÞAÐ KOM ENGINN ANNAR VÍSINDAHORNIÐ ELDHÚSIÐ Það kannast allir við Stundina okkar sem hefur verið í sjónvarp- inu í mörg ár. Þetta árið verður hún með algjörlega nýju sniði, lit- rík, fjörug og spennandi. Björgvin Franz Gíslason tók að sér að gera nýja þætti og hann setti Stundina okkar í alveg nýjan búning. Nýir gestir í hverjum þætti „Það verða miklar breytingar. Ég verð einn að stjórna þættinum og svo kemur nýr gestur í hvern þátt sem aðstoðar mig. Oftast er það einhver frægur sem börnin þekkja. Það á að vera eitthvað við allra hæfi í þáttun- um.“ Björgvin segir að þetta sé spjall- þáttur fyrir börn þar sem er líka sprell og leikur. „Það verða margir skemmtilegir gestir sem koma í vetur. Þórður húsvörður, sem einu sinni sá um Stundina okkar, mun koma í fyrsta þáttinn og taka þátt í ævintýri og við munum sýna brot úr þáttum sem hann var með. Það verða einnig krakkar sem fara út í bæ og taka viðtöl fyrir okkur og forvitnast um ýmis mál sem liggja þeim á hjarta.“ Tímavél og töfraspegill „Ég verð með tímavél þar sem skoðuð verða brot úr Stundinni okkar síðan í gamla daga. Einnig verð ég með töfraspegil sem getur komið mér um allt. Ég fer þá með töfraþulu og spegillinn færir mig jafnvel til Ástralíu eða í ævintýraheim. Ég vona að krakkar og fullorðnir eigi eftir að hafa gam- an af þessu. Ég og mamma mín (Edda Björgvinsdóttir) erum búin að hafa nóg að gera í sumar við að skrifa þættina og höfum lagt mikið í undirbúninginn. Við viljum líka fá efni frá krökkum því við viljum fá krakka í þáttinn okkar sem eru með mismunandi hæfileika. „Ég er alveg í skýjunum með þetta.“ kyg Stundin okkar verður í alveg nýjum búningi í vetur Litrík, fjörug og spennandi Í leik Björgvin Franz og Laddi í glensi og gamani.  Minnsta beinið í líkamanum heitir ístað.  Fullorðin manneskja er með 206 bein í líkamanum.  Beinin hætta að stækka við 25 ára aldur.  Í hryggnum eru 26 bein sem heita hryggjarliðir.  Í miðjum beinunum er bein- mergur.  Beinið sem er í hnénu heitir hnéskel. Vissir þú þetta? Í líkamanum eru 206 bein Gaman er að fá eldhúsið fyrir sig og búa til skemmtilegt salat. Krakkar ættu að bjóða foreldrum sínum gott ávaxtasalat. Hér er ein uppskrift: - 1-2 dl hreinn appelsínusafi. - Afhýddir ávaxtabitar. Veldu tvær eða þrjár tegundir. - Hugmyndir: Appelsínur, epli, perur, bananar, vínber. Auk þess niðursoðnir ávextir, t.d. ferskjur, ananas eða blandaðir ávextir. Aðferð Hella á safanum í stóra skál. Skola ávextina og afhýða þá. Gott er að skera þá í bita eða sneiðar. Ef það eru vínber þá er sniðugt að skera þau í tvennt og taka stein- ana úr þeim. Allt er sett saman í skál og safanum hellt yfir. Salatið er sett inn í ísskáp og látið standa þar í smá-tíma. kyg Krakkar geta búið til salat fyrir foreldra sína Krakka-ávaxtasalat a Einu sinni voru tveir tómatar að labba yf- ir götu. Þá kom bíll og keyrði yfir annan. Þá sagði hinn: Vá, þetta er alveg eins og í tóm- atabröndurunum. Samkvæmt vísindum nú- tímans varð tegundin maður eða nútímamaður (Homo sapiens) til við þróun á sama hátt og aðrar tegundir lífs á jörðinni. Það er talið að þetta hafi gerst fyrir um það bil 130.000 árum. Á þessum tíma var einnig Neanderdalsmaðurinn uppi. Hann bjó meðal annars á sama svæði og nútímamaðurinn. Neanderdalsmenn urðu útdauðir án þess að skilja eftir sig afkomendur. Ef við förum enn lengra aftur í tímann, eða 1,8 til 1,9 milljónir ára, þá voru að minnsta kosti fjórar tegundir manna í Afríku. Þær voru Homo habilis, Homo rudolfensis, Homo ergaster og Paranthropus boisei. Þessar teg- undir voru frábrugðnar hvað varðar mataræði ef dæma má af tönnum, í líkamsbyggingu og í fleiri eiginleikum. Þær lifðu samtímis á sama landi á því svæði sem nú kallast Kenýa. Flestar þessara tegunda, ef ekki allar, urðu útdauðar, þótt hugsanlega hafi Homo ergaster getið af sér aðrar tegundir. Nú erum við sem sagt ein eftir. Ninja Björt spyr Hvenær urðu menn til?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.