24 stundir - 04.10.2008, Blaðsíða 25
24stundir LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 25
Íslandsmeistarakeppnin í kjöt-
súpugerð verður haldin á Hrúta-
deginum á Raufarhöfn á morgun.
„Þetta er gert til þess að halda uppi
íslenskri matarhefð,“ segir Einar
Sigurðsson en hann á veg og vanda
af keppninni.
Reglurnar eru þær að keppendur
mæta með að minnsta kosti sex
lítra af súpu sem lögð verður í dóm
valinna dómara ásamt því að gest-
um og gangandi á Raufarhöfn
verður gefið að smakka. Einungis
félagasamtök, veitingahús eða fólk
tengt matvælaframleiðslu hefur
rétt til þátttöku og að sögn Einars
má búast við fjórum til fimm kepp-
endum. „Það verða gefin stig fyrir
bragð en auk þess er tekið tillit til
þess að hve miklu leyti súpan er úr
íslenskum afurðum. Kjötið þarf að
vera alíslenskt og helst af hrútum,“
segir Einar. Keppnin er haldin í
tengslum við Hrútadaginn sem
haldinn verður á laugardag en
mjög vinsælt er að kaupa hrúta af
svæðinu.
fifa@24stundir.is
Íslandsmeistaramót í kjötsúpugerð
Keppt um bestu
súpuna úr hrútakjöti
a
Tekið tillit til þess
að hve miklu leyti
súpan er úr íslenskum af-
urðum. Kjötið þarf að
vera alíslenskt og helst af
hrútum.
Fyrsti snjór vetrarins féll í höfuðborginni í fyrrakvöld og hélst snjórinn í allan gærdag svo að örtröð
var á dekkjaverkstæðum í gærmorgun. Einar Sveinbjörnsson segist á heimasíðu sinni geta fullyrt að
þetta mikil ofankoma sé með allra fyrstu skipum að minnsta kosti í höfuðborginni. „Þá skal því haldið
til haga að í fyrra snjóaði í Mýrdal og V-Skaftafellssýslu 15. september og þótti sú ofankoma heyra til
viðburða,“ segir hann. Í dag er búist við éljum en björtu sunnanlands, en lægir smám saman og léttir
til, fyrst vestanlands.
Þetta mikil ofankoma með allra fyrstu skipunum í ár
Fyrsti snjórinn
Í GEGNUM LINSUNA
● Heyrnar- og talmeinastöð
Heyrnarmælingar á nýburum,
kuðungsígræðslur og meist-
aranám í talmeinafræði verður
meðal þess sem kynnt verður á
opnu húsi hjá Heyrnar- og tal-
meinastöð Íslands í dag milli 12
og 16.
● Samtakadagur Opni Sam-
takadagurinn verður haldinn í
Regnbogasal Samtakanna ’78
milli 13 og 17 í dag. Um kvöldið
verður Samtakaball á Cafe Vic-
tor þar sem Andrea Jónsdóttir
tryllir dansóða.
● Friðaruppbygging Hrund
Gunnarsdóttir þróunarfræð-
ingur og Auður H. Ingólfsdóttir,
sérfræðingur í alþjóða-
samskiptum, fjalla um störf sín
við friðaruppbyggingu hjá UNI-
FEM á Balkanskaga. Fundurinn
hefst klukkan 13 í Miðstöð Sam-
einuðu þjóðanna, Laugavegi 42,
og stendur í um klukkutíma.
● Ekvador
Dansflokkurinn Jacchigua frá
Ekvador sýnir í Salnum kl.
17.00.
● Vestanvindar Hin árlega
bókmenntahátíð Vestanvindar
verður haldin í menningar-
miðstöðinni
Edinborg á Ísa-
firði, laugardag-
inn 4. október
kl. 16.00. Auður
Jónsdóttir og
Þórarinn Leifs-
son fjalla um
verk sín, þá
einkum og sér í
lagi þau sem tengjast Vest-
fjörðum á einn eða annan hátt.
Aðgangur ókeypis.
● Basar og tombóla Basar og
tombóla Kvenfélagasambands
Kópavogs verður haldin laug-
ardaginn 4. október klukkan
13:00-17:00 á Digranesvegi 12.
Á basarnum verður hægt að
kaupa heimabakstur, fatnað,
kompudót og ýmsan annan
varning, allt á tombóluverði.
Ágóði rennur til líknarmála.
● Afmæli Í tilefni af 40 ára af-
mæli leikskólans Sólhlíðar verð-
ur opið hús klukkan 11-14.
● Gengið til góðs Landssöfnun
Rauða krossins Göngum til góðs
verður haldin í fimmta skipti
um allt land.
● Seyðisfjarðarbíó Fyrsta
myndin sem sýnd verður í Seyð-
isfjarðarbíói sem verður opnað í
dag verður hin geysivinsæla
Mamma Mia. Boðið verður upp
á tvær sýningar, þá fyrri klukkan
17 en seinni sýningin hefst
klukkan 22. Seinni sýningin er
jafnframt „syngjum með“-
sýning.
● Menningarveisla Menning-
arhátíðin Regn-
boginn verður
haldin í Vík í Mýr-
dal um helgina.
Kynntar verða
hugmyndir um
menningar-
miðstöð og Kötlu-
setur.
FRAMUNDAN
04.10
Plokkfiskur
Gríms fiskibollur Gríms fiskibuff
Gratineruð
ýsa með broccolí
Gratineruð
ýsa með mexíkósósu
Kjúklingabaunabuff
Hvítlauks- og hvítbaunabuff Gulrótar- og linsubaunabuff
Gríms plokkfiskur
Grímur kokkur · Sími: 481-2665 · grimurkokkur@grimurkokkur.is · www.grimurkokkur.is
VELJUM
ÍSLENSK
T
SPÖRUM
GJALDEY
RI!
24stundir/Brynjar Gauti