24 stundir - 04.10.2008, Qupperneq 14
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Það var augljóst að margir höfðu
dvalið alla helgina í Seðlabankanum
þegar forystufólk stjórnandstöðu-
flokkanna gekk þar til fundar við
Davíð Oddsson, formann banka-
stjórnar Seðlabankans, aðfaranótt
síðastliðins mánudag. Staflar af
pitsakössum sem lágu bæði frammi
á göngum og inni á skrifstofum
voru til vitnis um það, rétt eins og
hálsbindislausir embættismenn.
Næstum gripin í bólinu
Fulltrúar stjórnarandstöðu-
flokkanna vissu vart hvaðan á sig
stóð veðrið þegar þeim barst sím-
tal í kringum hálfellefu á sunnu-
dagskvöldinu. Þau höfðu ekki
hinn minnsta grun um að á fund-
inum yrði þeim tilkynnt ákvörðun
ríkisstjórnarinnar um að ríkið væri
að kaupa 75 prósenta hlut í Glitni.
Ritari seðlabankastjóra var á lín-
unni og boðaði til neyðarfundar
klukkan ellefu.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna, var staddur í
Strassborg í Frakklandi að sinna
skyldum sínum sem formaður jafn-
réttisnefndar Evrópuráðsins, en
þangað hafði hann flogið fyrr um
daginn. Hann átti því ekki heim-
angengt á fundinn, en sagðist sjá um
að koma boðinu til Katrínar Jakobs-
dóttur, varaformanns síns. Þegar
Steingrímur náði í Katrínu var
klukkan að nálgast tuttugu mínútur
í ellefu. Þá var hún komin í nátt-
fötin. Svo flatt kom fundarboðið
upp á Katrínu að þegar Steingrímur
tjáði henni að hún þyrfti að mæta á
fund klukkan ellefu hélt hún að um
væri að ræða fund daginn eftir.
„Ég sagði við hann að sennilega
yrði þingflokksfundurinn sem fram
átti að fara daginn eftir búinn þá,“
segir Katrín.
Dramatískir dagar
„Ég var nú ekki kominn í hátt-
inn, en var samt farinn að búa mig
undir það að fara að sofa þegar sím-
inn hringdi,“ segir Guðni Ágústs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins. Hringt var í hann um tuttugu
mínútur í ellefu. Hann svaraði í
símann um það leyti sem hann var
búa sig í háttinn. Guðni segir sím-
talið hafa komið sér á óvart. „En
þetta eru dramatískir dagar og
skrítnustu tímar sem maður hefur
lifað hér,“ segir Guðni.
Stuttur fyrirvari
Öllu verr gekk að boða fulltrúa
Frjálslynda flokksins heldur en þau
Katrínu og Guðna. Fyrst var reynt
að ná í Guðjón Arnar Kristjánsson,
formann flokksins, og síðan í
Magnús Þór Hafsteinsson með
sama árangri. „Þá var hringt í mig
rétt fyrir ellefu um kvöldið,“ segir
Kristinn H. Gunnarsson.
„Þetta var nánast fyrirvaralaust,
sjálfsagt vegna þess að reynt hafði
verið að ná í hina tvo. Maður á ekki
von á símtali úr Seðlabankanum á
sunnudagskvöldi. En það var um
fátt annað að ræða en að mæta.“
Kristinn segir að þegar hann kom í
Seðlabankann hafi verið nokkuð af
fólki í húsinu en „enginn æsingur“
eins og hann orðaði það.
Beðið eftir Davíð
Það var Guðni sem mætti fyrstur
í Seðlabankann, síðan Katrín og að
lokum Kristinn. Þá þurftu þau að
bíða eftir Davíð Oddssyni í tíu mín-
útur eða svo. „Hann var örugglega
að koma af fundi með Glitni,“ segir
einn heimildarmanna 24 stunda og
bætir við: „Síðan komu Geir og Öss-
ur en þeir höfðu verið nokkurn tíma
í húsinu.“ Árni Mathiesen fjármála-
ráðherra og Jón Þór Sturluson, að-
stoðarmaður viðskiptaráðherra,
munu einnig hafa verið í húsinu á
þessum tíma. En Björgvin G. Sig-
urðsson viðskiptaráðherra og Jón
Þór munu ekki hafa verið kallaðir til
leiks fyrr en um kvöldmatarleytið.
Geir í óþægilegu sæti
Þegar Davíð kom gengu þau
Dramatískir dagar
Örlög Glitnis komu fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna í opna skjöldu
➤ Fundurinn í Seðlabankanumfór fram sunnudagskvöldið
28. september þar sem af-
drifaríkar ákvarðanir um
kaup ríkisins á 75 prósenta
hluta í Glitni voru teknar.
KAUP Á HLUT Í GLITNI
24stundir/Golli
SÆTASKIPAN Á FUNDINUM AFDRIFARÍKA
Davíð
KatrínGuðni
Össur
(standandi)
Geir
Kristinn
a
Davíð er bara þann-
ig persóna. Ef hann
er í herberginu þá á hann
það óneitanlega til að
taka stjórn á aðstæðum.
Hann er bara þannig og
forsætisráðherrann er
bara ekki þannig
Síðastliðið sunnudags-
kvöld funduðu fulltrúar
stjórnmálaflokkanna í
Seðlabankanum um þá
ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að þjóðnýta
Glitni. 24 stundir áttu þar
flugu á vegg.
Geir, Guðni, Katrín, Kristinn og
Össur inn í setustofu. Davíð fékk
sér þar sæti einn í þriggja sæta sófa.
Gegnt honum settust þau Guðni
og Katrín í tveggja sæta sófa. Til
hliðar við þau sat svo Kristinn í
hægindastól. Össur stóð hins vegar.
Geir mun hafa fengið sér frekar
óþægilegt sæti úti í horni. „Vill for-
sætisráðherra ekki sitja á betri
stól?“ mun Davíð þá hafa spurt
Geir, en hann svarað því til að það
færi ágætlega um sig.
Davíð við stjórnvölinn
Þegar allir höfðu fengið sér sæti
hófu Davíð og Geir að kynna
ákvörðun sem þeir sögðu ríkis-
stjórnina hafa tekið fyrir fulltrúum
stjórnarandstöðunnar, sem var að
ríkið legði til nýtt hlutafé í Glitni.
Það kom fram að þetta væri tilboð
til Glitnismanna sem væri á um-
ræðustigi þeirra á meðal. „Við átt-
um bara þarna hálftíma fund þar
sem var verið að skýra okkur frá
því. Við höfðum engin gögn og
tókum því enga afstöðu til þess.
Við hlustuðum bara á þessa nið-
urstöðu og spurðum spurninga um
aðgerðina og framhaldið,“ segir
einn fulltrúa stjórnarandstöðunn-
ar. „Þó að Geir og Davíð hafi verið
saman að kynna þetta þá upplifði
ég þetta samt þannig að Davíð væri
að stjórna þessu,“ segir annar og
heldur áfram: „Davíð er bara
þannig persóna. Ef hann er í her-
berginu þá á hann það óneitanlega
til að taka stjórn á aðstæðum.
Hann er bara þannig og forsætis-
ráðherrann er bara ekki þannig.“
Engar upplýsingar
Stjórnarandstöðunni var sagt frá
því að fulltrúar Glitnis hefðu í
fyrstu viljað fá lán hjá Seðlabank-
anum en að hann hefði ekki metið
þau veð sem þeir vildu leggja fram
á móti trúverðug. Þegar spurt var
nánar út þau var þeim sagt að um
væri að ræða „samtíning af eignum
og skuldum“ og að meðal þess
væru bílalán.
„Í rauninni fengum við ekki að
vita neitt meira á þessum fundi en
komið hefur fram í fjölmiðlum,“
segir einn úr hópi stjórnarand-
stæðinga.
Þó að þau Guðni, Katrín og
Kristinn hafi ekki fengið að vita
mikið á fundinum fengu þau þó
stærstu fréttir aldarinnar á undan
öllum öðrum utan ríkisstjórnar-
innar. Þau sváfu því ekki janf vel og
aðrir landsmenn sem urðu felmtri
slegnir yfir þjóðnýtingu Glitnis.
14 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir
Úrval af silfur skartgripaefni,
gott verð.
Perlulengjur frá kr. 1200.-
Hraunlengjur frá kr. 990.-
Allt til leir- og glergerðar.
Námskeið í boði.
ALLT EFNI TIL SKARTGRIPAGERÐAR
Glit ehf. Krókhálsi 5,
110 Rvk. sími 587 5411 www.glit.is
FRÉTTASKÝRING
frettir@24stundir.is a
Ég var nú ekki kominn í háttinn,
en var samt farinn að búa mig
undir það að fara að sofa þegar sím-
inn hringdi.