24 stundir - 04.10.2008, Side 32

24 stundir - 04.10.2008, Side 32
32 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir ast að fjármálakreppan kunni að vara í þrjú, fimm eða allt að tíu ár. „Það sem hefur gerst undanfarnar vikur er svo dramatískt að við sjáum ekki enn hversu umfangs- mikið það er,“ segir hann í viðtali við Verdens Gang. Kapítalistar bjarga sér Hagen er einn þeirra auðjöfra sem almenningur í Noregi og víðar á erfitt með að finna til með þótt þeir hafi tapað tugum milljarða ís- lenskra króna. Menn spyrja til dæmis hvort ríkið, og þar með skattgreiðendur, eigi að aðstoða banka í fjárþörf til þess að koma í veg fyrir frekara hrun efnahagslífs- ins eða hvort láta eigi bankana fara í þrot til þess að refsa óhæfum bankastjórnendum. Menn benda á að kapítalistarnir bjargi sér alltaf sjálfir. Ole Thyssen, prófessor við við- skiptaháskólann í Kaupmanna- höfn, segir það ekki undarlegt að almenningi finnist sér ögrað við til- hugsunina um að óhæfum banka- stjórum sé bjargað af ríkinu og þar með með fé skattgreiðenda. Pró- fessorinn hefur í viðtali við danska fjölmiðla sagst eiga erfitt með að sjá afleiðingar efnahagskreppunnar eins og líklega fleiri Danir. Einmitt þess vegna eigi menn að horfa gagnrýnum augum á björgunarað- gerðir yfirvalda. Rán um hábjartan dag Kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore er meðal þeirra sem gagnrýna björgunaraðgerðir yfirvalda og segir þær lítið annað en rán um hábjartan dag. ,,Eftir að hafa stolið hálfri billjón dollara sem þeir hafa sett í vasana á stuðningsmönnum sínum sem hagnast hafa á stríðsrekstri og eftir að hafa sett yfir 100 milljarða doll- Á Wall Street Frumvarpinu um 700 milljarða dollara að- stoð yfirvalda mótmælt. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Norðmenn hafa bæði hlegið og blótað undanfarna daga vegna sparnaðarráða auðkýfingsins Stein Erik Hagens og spyrja sig hvort maðurinn sé af holdi og blóði eða einfaldlega milljarðamæringur úr teiknimyndaseríu. Í viðtali við blaðið Dagens Nær- ingsliv kvaðst Hagen, sem er aðal- eigandi Orkla-samsteypunnar, senda skyrturnar sínar til Englands til þess að láta klæðskerann sinn þar skipta um kraga á þeim. Meira að segja fjármálaráðherra Noregs, Kristin Halvorsen, hefur undrast þessi sparnaðarráð. Í eigin heimi „Þetta veitir manni svolitla inn- sýn í eigin heim milljarðamæringa og skiptir flesta litlu máli. Ég vissi ekki einu sinni að það væri hægt að senda skyrturnar til Englands til þess að láta skipta um kraga á þeim. Það er líklega hagkvæmara fyrir flesta sem eru á venjulegum launum að kaupa sér nýja skyrtu,“ sagði fjármálaherrann í viðtali við Dagbladet. Hagen segir nú að hann hafi ekki meint þetta bókstaflega. „Þetta átti að vera myndlíking. Ég held að ástandið hafi áhrif. Fólk notar skóna sína lengur, það lætur setja nýtt áklæði á sófann í stað þess að kaupa nýjan og svo framvegis. En ég læt bara skipta um kraga á fín- um skyrtum en ekki sportskyrtum eða Dressman-skyrtum.“ Ömmurnar sneru krögunum Milljarðamæringurinn segist ekki skilja að fólk skuli nenna að vera að fetta fingur út í þau um- mæli hans að hægt sé að skipta um kraga fyrir lítinn pening en það hafi hann gert í mörg ár. Hann bendir jafnframt á að fjármálaráð- herrann ætti að hugsa svolítið meira um efnahagsástandið heldur en það sem borgari láti gera við skyrtukragana sína og nefnir í því sambandi að í Japan hafi stöðn- unin varað í 10 ár. Greinarhöfundur í Aftenposten bendir á að það sparnaðarráð Hag- ens að borða meira af ódýrum pits- um sé slæmt. Að skipta um kraga á skyrtum sé hins vegar gott ráð og það hafi Hagen eða klæðskerinn hans alls ekki fundið upp sjálfir. Þetta hafi mæður og ömmur gert í gegnum tíðina. En áður en skipt var um kragana var þeim fyrst snú- ið þannig að rangan sneri út og þá voru þeir eins og nýir, skrifar grein- arhöfundur. Losar sig við þotu og skútu Hagen, sem hefur hrapað úr öðru sæti í það sjötta yfir 400 rík- ustu menn Noregs, hefur selt þot- una sína af gerðinni Falcon 900 EX og hann hefur auglýst lúxusskút- una sína til sölu. Hann hefur einnig frestað því að reisa nær 400 fm hús fyrir einkaþjóninn sinn sem jafn- framt er bílstjóri hans. Hagen, sem sagður er hafa tapað tæpum 10 milljörðum norskra króna eða tæpum 190 milljörðum íslenskra króna frá því í fyrra, ótt- ara í vasana á olíuvinum sínum undanfarin tvö ár, eru Bush og hans menn, sem bráðum verða að yfirgefa Hvíta húsið, farnir að ræna hverjum einasta dollara sem þeir geta náð í úr ríkissjóði. Þeir taka með sér eins mikið og þeir geta af silfrinu á leiðinni út um dyrnar,“ skrifar Moore á heimasíðu sinni. Það er skoðun hans að frum- varpið um 700 milljarða dollara aðstoð yfirvalda við fjármálafyrir- tæki eigi eingöngu að gagnast þeim allra ríkustu í Bandaríkjunum og að öll umræðan um kreppu sé til- raun til þess að hræða þjóðina. Michael Moore bendir á bréf 200 mikils metinna hagfræðinga í Bandaríkjunum til bandaríska þingsins þar sem segir að björgun- araðgerðirnar geti leitt til þess að efnahagsástandið í landinu versni. Kvikmyndagerðarmaðurinn segir hrunið í kauphöllunum að undanförnu ekki hafa jafnmiklar afleiðingar og stjórnmálamenn og fjölmiðlar segja. „Þeir sem eru með vit í kollinum vita að enginn „tap- aði“, að verð á hlutabréfum fer upp og niður og að þetta muni einnig líða hjá vegna þess að hinir ríku vilja kaupa ódýrt, bíða um stund, selja hlutabréfin og kaupa þau svo aftur.“ Bænafundir í bankanum Starfsmenn margra stórra fyrir- tækja á Wall Street í New York líta hins vegar svo á að ástandið sé ekki gott og biðja til Guðs á daglegum bænafundum í vinnunni. Sam- kvæmt frétt í blaðinu Christianity Today, sem Kristeligt Dagblad vitn- ar í, hófust bænafundirnir í síðustu viku hjá Goldman Sachs, City- group og Deloitte. Efnt hefur verið til sérstakrar guðsþjónustu og ráðgjafarsam- komna í mörgum kirkjum í New York og hópur presta hefur und- irbúið sameiginlegan bænafund fyrir framan kauphöllina í New York. Fjármálakreppan, sem margir sérfræðingar segja vera afleiðingu ágirndar, er sögð hafa leitt til þess að kristnir fjármálamenn séu farnir að horfa í eigin barm. Skyrtukragar auðmanns valda ólgu í Noregi  Sparar með því að láta sauma nýja kraga á skyrturnar í Englandi  Bænafundir fyrirtækja á Wall Street Rán Michael Moore seg- ir björgunaraðgerðir rán um hábjartan dag. a Hann hefur einnig frestað því að reisa nær 400 fm hús fyrir einkaþjóninn sinn sem jafnframt er bílstjóri hans. Undrandi Fjármálaráðherra Noregs, Kristin Halvorsen, undrast ummæli auðmannsins. Teiknimyndafígúra? Norðmenn fussa yfir sparn- aðarráði Stein Erik Hagens. RÝNIR frettir@24stundir.is a Það er líklegra hagkvæmara fyr- ir flesta sem eru á venjulegum launum að kaupa sér nýja skyrtu.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.