24 stundir - 04.10.2008, Page 37
hvort hann hefði svindlað. Hann
sagði að þetta væri jákvætt svindl
og bætti við að hann vildi ekki að
Verslunarskólinn gerði mér það
sama og MR gerði Halldóri Lax-
ness; að sleppa mér út í lífið án
prófs. Ævistarf mitt var hins vegar
ákveðið eftir að ég komst í leiklist-
arskóla Lárusar, ekki síst vegna
meðmæla Jóns Aðils.“
Í hvaða hlutverki hefur þér liðið
best?
,,Ef maður leggur sig alltaf fram
af heilum hug er mjög erfitt að gera
upp á milli. Það væri eins og að
gera upp á milli barna sinna. Það
hefur verið misgaman að leika en
það er yndislegt að finna þegar allt
gengur upp og sýning verður heild.
Í allri list er einbeitni gríðarlega
þýðingarmikil en eitt það dásam-
legasta við leikhúsið er þegar ég
leik á móti manneskju sem er að
gera framúrskarandi hluti á svið-
inu. Þá verð ég svo heillaður að ég
má alls ekki láta mitt eftir liggja.“
Reynir að spilla ekki fyrir
Gunnar segir að það kitli vissu-
lega hégómagirndina að vera beð-
inn um að leika á þessum aldri.
,,Það eina sem ég sækist eftir núna
er að spilla ekki fyrir öðrum. Það
geri ég með því að stefna að innra
öryggi. Á sviðinu er maður stans-
laust að gefa og þiggja. Leikhús er
sífellt að rjúfa þögnina og segja
sögu. En það er algjörlega undir
hverjum og einum leikara komið
hvernig hann höndlar þetta. Höf-
undar fara fram á þögn í verkum
sínum en það er vandi leikarans að
uppfylla þær óskir og engir tveir
leikarar gera það eins. Þegar við
Bessi Bjarnason heitinn, blessuð sé
minning hans, lékum í Húsverð-
inum eftir Pinter hér á árum áður,
stóð í handritinu: ,,Hér er svo löng
þögn að áhorfandinn heldur að
viðkomandi leikari hafi gleymt
textanum.“ Á þessum tíma voru
efri svalir í Þjóðleikhúsinu og í
þögn heyrðist allt hvísl niður á
sviðið. Þegar kom að því að upp-
fylla þessa kröfu höfundarins
heyrðist rödd hvísla ofan af efri
svölum: ,,Nú hefur Gunnar
gleymt.“ Og Bessi brosti til mín.“
Hvernig höndlar þú þögn?
,,Þetta er frekar spurning um
hvernig þögnin kemur að þér.
Hversu lengi leyfir hún sér að taka
yfir? Mér finnst gott og nauðsyn-
legt að stunda hugleiðslu. Qi-gong
er orkuöflun og hugleiðsla en það
erfiðasta í qi-gong er að hvíla heil-
ann, hætta að hugsa.“
Stefnum á fullkomnun
Gunnar heldur því fram að við
séum erfðir og áhrif. ,,Sumir vilja
ekki horfast í augu við eigin erfðir,
treysta sér ekki til að viðurkenna
eigin veikleika. Hvað þá að sjá það
ljósa í lífinu, það jákvæða sem fólk
hefur erft. Við vitum að við verð-
um til í ármótum þar sem tvö fljót
renna saman í eitt; flæði móður
okkur og flæði föður okkar. Hvort-
tveggja eru erfðir og blandast í
okkur sem einstaklingum. Við eig-
um að stefna að fullkomnun vit-
andi það að við náum henni ekki.
Sá sem telur sig fullkominn er
staðnaður. Með því að horfast í
augu við okkur sjálf gefst okkur
tækifæri til að sigrast á því nei-
kvæða. Að uppræta hið neikvæða
er eins og að fjarlægja illgresi úr
blómabeði. Um leið og þú fjarlægir
það skapast rými fyrir fleiri jurtir.
En þetta er stöðug aðgæsla.“
Hefur þér tekist að höndla þína
veikleika?
,,Ekki alla. Ég gerðist kaþólskur
17 ára gamall og í kaþólskri kirkju
eiga menn helst að skrifta einu
sinni á ári, rétt fyrir páska svo að
þeir séu ekki með óhreint mjöl í
a
Gunnar, ef við
giftum okkur er
það skilyrði að
þú flytjir heim til Íslands
og farir aftur að leika.“ Ég
sagðist lofa því. Þá bætti
hún við. ,,Og það verður
skilnaðarsök ef þú hættir
að leika, góði minn, sama
hvað kaþólska kirkjan
segir.“
24stundir/Kristinn
24stundir LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 37
Ný uppbygging, nýtt efni, nýjar æfingar!
Átaksnámskeið Hreyfingar hafa aldrei verið betri.
Leiðbeinendur sem búa yfir áralangri reynslu hafa fengið
sérþjálfun til að leiða hin nýju og árangursríku námskeið
sem skila þér pottþéttum árangri.
Fjölbreytt 6-vikna námskeið.
Mismunandi áherslur eftir því hvort þú ert byrjandi eða
lengra komin. Hvort þú vilt meira aðhald eða meira dekur.
Ef þú skráir þig fyrir 10. október fylgir með
boðsmiði í Bláa lónið.
Ágústa, Anna og Guðbjörg hafa sett saman
ný 6-vikna námskeið sem tryggja þér þann
árangur sem þú vilt ná í heilsu- og líkamsrækt
Álfheimar 74
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is
P
L
Á
N
E
T
A
N
HVERNIG ÁRANGUR
VILT ÞÚ?
Öll Árangurs námskeiðin eru byggð upp á
svipaðan hátt nema með mismunandi áherslum.
Allar nánari upplýsingar á hreyfing.is
Veldu þér námskeið sem hentar þér:
Árangur
Árangur/elítan
Árangur og dekur
• Komdu þér út úr röngu fæðumynstri og byrjaðu að borða fæðu
sem gerir þig granna
• Losnaðu við eilífa sætindaþörf
• Mataræðið tekið í gegn – fylgt eftir nokkrum einföldum reglum
- örugg leið til árangurs
• Lærðu að borða til að næra vöðvana þína og svelta fitufrumurnar
• Einfaldar æfingar sem miðast við að tryggja hámarks fitubruna
• Þú losar þig við aukakílóin
• Þú minnkar fitufrumurnar og styrkir og mótar vöðvana
• Þú minnkar ummál um mitti, læri og mjaðmir
• Þú eykur orku þína, þrek og vellíðan
Láttu skrá þig strax í síma 414 4000 eða á hreyfing@hreyfing.is
HEFST 13. OKT.