24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 19 Amsterdam 14 Alicante 25 Barcelona 16 Berlín 13 Las Palmas 24 Dublin 13 Frankfurt 15 Glasgow 11 Brussel 14 Hamborg 14 Helsinki 12 Kaupmannahöfn 14 London 14 Madrid 22 Mílanó 20 Montreal 12 Lúxemborg 15 New York 12 Nuuk 2 Orlando 24 Osló 13 Genf 9 París 17 Mallorca 24 Stokkhólmur 14 Þórshöfn 8 Suðaustan- og austan 13-18 m/s og rigning. Lægir og styttir upp að mestu, fyrst sunnan til á landinu. Hiti 2 til 10 stig. VEÐRIÐ Í DAG 9 9 9 6 7 Lægir og styttir upp Vestlæg átt og dálítil rigning eða slydda, en léttir til suðaustanlands. Hiti 2 til 8 stig. VEÐRIÐ Á MORGUN 6 5 5 8 7 Rigning eða slydda Karlmaður á sjötugsaldri er mik- ið slasaður eftir grófa árás tveggja manna í miðborginni um helgina. Árásarmennirnir eru taldir af er- lendu bergi brotnir, á aldrinum 25- 30 ára. Þeir réðust að fórnarlambi sínu á Laugavegi aðfaranótt sunnu- dags um klukkan 03:30, drógu það inn í húsasund skammt frá gatna- mótum Laugavegar og Frakkastígs og börðu hann og rændu. Maður- inn var fluttur á slysadeild. Hann er brotinn í andliti og óttast er að hann missi sjón á öðru auga. Árásarmennirnir eru ófundnir en myndir af þeim náðust í eft- irlitsmyndavélum. Annar var með ljósbláa húfu, í ljósum leðurjakka með hvítum röndum þvert yfir brjóstkassa. Hinn var í dökkum jakka og með dökka prjónahúfu, hugsanlega í ljósum gallabuxum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður alla sem þekkja til mannanna eða geta gefið upplýsingar um þá að hafa samband í síma 444-1100. the@24stundir.is Gengu í skrokk á manni á sjötugsaldri Tveggja manna leitað Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is „Við erum í dag að afla okkur laga- heimilda á Alþingi til þess að geta brugðist við þeim aðstæðum sem við okkur blasa og veita Fjármála- eftirlitinu mjög víðtækar heimildir til að grípa inn í starfsemi fjármála- fyrirtækja ef í harðbakkann slær,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráð- herra á fundi með blaðamönnum í gærkvöldi. Skömmu áður hafði frumvarp sem heimilar algjöra uppstokkun á íslensku fjármála- kerfi verið lagt fram á Alþingi. Geir sagði jafnframt að í frum- varpinu væru önnur ákvæði sem þjónuðu sama tilgangi auk ákvæðis um að Íbúðalánasjóði verði heimilt að yfirtaka húsnæðislán fjármála- stofnana. „Tilgangurinn með öllu þessu er sá að gæta hagsmuna ís- lensku þjóðarinnar í hvívetna, koma í veg fyrir að þjóðin verði á skuldaklafa næstu áratugina og bjarga því sem bjargað verður mið- að við núverandi aðstæður. Það verður að gera. Hagsmunir þjóð- arinnar eru ríkari en hagsmunir einstakra bankastofnana.“ Skuldirnar þjóðinni ofviða Geir sagði að sú heildarskuld- setning sem bankarnir hefðu staðið frammi fyrir væri þjóðarbúinu of- viða. „Íslenska þjóðin, með sína þjóðarframleiðslu, ræður ekki við að skulda jafn háar upphæðir og hér er um að tefla. Umsvif banka- kerfisins og efnahagur þess er núna um það bil tólfföld þjóðarfram- leiðsla.“ Aðspurður um hvort eign- ir yrðu frystar með einhverjum hætti sagði Geir að hann teldi það eitt af verkefnum Fjármálaeftirlits- ins að tryggja að peningum væri „ekki komið undan með óeðlileg- um hætti.“ Heimildir 24 stunda innan Landsbankans herma að lokaút- færsla frumvarpsins hafi ekki verið unnin í samráði eða í samstarfi við bankann. Þar líta menn svo á að verið sé að veita stjórnvöldum skýra heimild til að ráðstafa fjár- málafyrirtækjum eins og þeim hentar. Már Másson, forstöðumað- ur kynningamála hjá Glitni, segir ekkert í frumvarpinu breyta neinu um stöðu Glitnis. Bjarga því sem bjargað verður  Frumvarpið til þess að koma í veg fyrir skuldaklafa á þjóðinni næstu áratugina  Hagsmunir þjóðar ríkari en hagsmunir banka Ávarp Geir sagði umsvif bankakerfisins á við tólf- falda þjóðarframleiðslu. 24stundir/Frikki ➤ „Við vonum auðvitað aðbankakerfið í heild fari ekki á hliðina.“ ➤ Hluthafar verða fyrir tjóni.Hluthafar í fyrirtækjum sem fara illa. Í tilfelli sem þessu er viðbúið að fleiri en hluthafar tapi, líka lánadrottnar, að ein- hverju marki, sem ekki fá kröfur sínar greiddar. “ ÚR RÆÐU GEIRS HAARDE STUTT F ● Frestað Stjórnir Saga Capital Fjárfestingarbanka og VBS Fjárfestingarbanka hafa ákveðið að fresta formlegum viðræðum sínum um sameiningu bank- anna tveggja. Þetta er gert í ljósi þess mikla óvissuástands sem nú ríkir á mörkuðum. ● Frítt í Strætó Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F- lista, leggur í dag til í borgar- stjórn að fargjöld hjá Strætó verði felld niður frá og með næstu áramótum. Hann segir mikinn ávinning og sparnað geta hlotist af niðurfelling- unni á tímum hækkandi elds- neytisverðs og erfiðleika í rekstri heimila í borginni. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Lausafjárkreppan sneiddi hjá Bretanum sem bráðlá á að komast á Októberfest í Munc- hen. Eftir að hafa reynt árang- urslaust að bóka sér far með flugfélagi, tók hann á það ráð að fara landleiðina. Fyrir ferð- ina, sem er röskir 1.200 kíló- metrar, greiddi maðurinn leigubílstjóra 1.940 sterlings- pund – í reiðufé. aij Öl er innri maður Þorsti dregur SKONDIÐ ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 42 04 0 04 .2 00 8 „Ég heyrði þetta bara áðan, alveg eins og þú örugglega,“ segir Guð- mundur Bjarnason, framkvæmda- stjóri Íbúðalánasjóðs, um tilkynn- ingu ríkisstjórnarinnar um að sjóðurinn muni yfirtaka öll íbúða- lán íslensku bankanna. Nákvæm útfærsla á yfirtöku Íbúðalánasjóðs á húsnæðislánum fjármálafyrirtækja liggur ekki fyrir. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðar- maður félagsmálaráðherra, segir að það gæti komið til þess að öll íbúð- arlán bankanna endi hjá Íbúða- lánasjóði ef aðstæður kalli á slíkt. „Lánin eru með sínum skilyrðum og þau breytast ekkert.“ Hann segir að húsnæðislán í erlendri mynt verði einnig tekin yfir, en það eigi eftir að útfæra á hvaða gengi þau verði tekin yfir. elias@24stundir.is Íbúðalánasjóður yfirtekur öll íbúðalán Guðmundur Bjarna- son látinn vita eftir á Þegar er hafinn undirbúningur í félagsmálaráðuneytinu, undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fé- lagsmálaráðherra, að því að setja á stofn samræmda þjónustumiðstöð um ráðgjöf og þjónustu við þá sem telja sig þurfa á því að halda vegna efnhagsþrenginga. Þetta er liður í viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við lausafjárvandanum sem íslenskt fjármálakerfi glímir við. Í þjónustumiðstöðina munu all- ir geta leitað sem vilja fá að vita hvaða áhrif aðgerðir í efnahags- málum muni hafa á hag þess. Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra sagði heimildir sem Alþingi samþykkti í gær vera neyð- araðgerð. „Ég er sannfærður um að þessar heimildir þarf ekki að nota í öllum tilfellum,“ sagði Björgvin og ítrekaði að hann hefði trú á ís- lensku bönkunum. magnush@24stundir.is Ríkisstjórnin býður fram neyðaraðstoð Miðstöð fyrir fólk með áhyggjur Seðlabanki Íslands veitti Kaup- þingi lán gegn veði í dönsku bönk- unum FIH og Erhversbank. Í Kast- ljósþætti RÚV í gærkvöld kom fram að lánið hefði verið upp á um 500 milljónir evra en Sigurður Ein- arsson, stjórnarformaður Kaup- þings, vildi ekki staðfesta þá tölu en játti því að um hátt lán væri að ræða. Samkvæmt heimildum 24 stunda gætir nokkurrar ólgu meðal hluthafa í Landsbankanum og Glitni vegna fyrirgreiðslunnar til Kaupþings. Staða bankanna allra er áfram óljós vegna mikillar óvissu á al- þjóðlegum mörkuðum. Seðla- bankar víðs vegar í Evrópu hafa að undanförnu lánað bönkum fé til að auka lausafé í umferð. magnush@24stundir.is Kaupþing fékk fyrirgreiðslu hjá Seðlabanka Tugmilljarða lán til Kaupþings

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.