24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 23

24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 23
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Fulltrúar tveggja grunnskóla og tveggja leikskóla tóku nýlega við verðlaunum fyrir bestu verkefnin á sviði eTwinning á síðasta skólaári. eTwinning er rafrænt, evrópskt skólasamstarf innan menntaáætl- unar Evrópusambandsins. Það býður upp á stuðning, rafræn verk- færi og þjónustu endurgjaldslaust til þess að skólar geti stofnað til samstarfs í lengri eða skemmri tíma á sem einfaldastan hátt. Það var Holtaskóli í Reykjanesbæ sem hlaut fyrstu verðlaun í flokki grunnskóla og Lágafellsskóli í Mos- fellsbæ varð í öðru sæti. Í flokki leikskóla varð Furugrund í Kópa- vogi hlutskarpastur og Bakki í Reykjavík varð í öðru sæti. Einfalt og sniðugt Að sögn Ragnhildar Zoëga hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins bárust fjölmörg áhugaverð verkefni í keppnina á síðasta skólaári. „Það var úr mörgum afar sniðugum verkefnum að velja, sem hvert um sig hentar mismunandi aldurshóp- um. Það er alveg ljóst að hægt er að nota netið til þess að gera einföld og sniðug verkefni af ýmsu tagi. Til dæmis hafa krakkar í leikskóla gert stærðfræðiverkefni sem gengur út á að telja allt sem þeir gera, hvort sem það er að leggja á borðið eða annað,“ segir hún og bætir því við að vefsvæðið sem skólarnir séu lok- uð. „Þannig er tryggt að einungis nemendurnir sjálfir og kennarar hafa aðgang að svæðinu enda al- mennt ekki vel séð að hafa net- svæði fyrir krakka opin.“ Skólarnir sem hlutu fyrstu verð- laun fyrir skólaárið fengu stafrænar myndbandsupptökuvélar að laun- um og fyrir annað sætið voru veitt- ar stafrænar myndavélar. „En svo er hægt að sækja um svokallaðan Kómeníusar-styrk hjá Evrópusam- bandinu, en með honum er hægt að útfæra verkefnin betur,“ segir Ragnhildur að lokum. Rafrænt samstarf skóla á vegum Evrópusamstarfsins Frumleg og ein- föld verkefni eTwinning er rafrænt evr- ópskt skólasamstarf inn- an menntaáætlunar Evr- ópusambandsins og býður upp á stuðning, rafræn verkefni og þjón- ustu til að skólar geti starfað saman á sem ein- faldastan hátt. Tveir leik- skólar og tveir grunn- skólar tóku nýlega við verðlaunum fyrir bestu eTwinning verkefni síð- asta skólaárs. Frá verðlaunaafhend- ingu Fulltrúar skólanna með viðurkenningarnar. ➤ Verkefni Holtaskóla, semhlaut fyrstu verðlaun í flokki grunnskóla, heitir Getting to know each other og tengir saman byrjendur í ensku. ➤ Verkefni Furugrundar, semhlaut fyrstu verðlaun í flokki leikskóla, heitir 1, 2, Buckle my Shoe og er stærðfræðiæf- ing. VERKEFNIN 24stundir ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 23 Þessa vikuna standa yfir kynja- dagar í Listaháskóla Íslands. Dag- skrá kynjadaga er öllum opin, en hún er helguð kynjunum og kynja- ímyndum og ætla nemendur skól- ans og listamenn að kynna verk tengd kynjafræðum. Klukkan 12.00 í dag verða flutt tvö erindi í húsnæði Hönnunar- og arkitektúr- deildar í Skipholti 1. Eva María Árnadóttir fatahönnuður fjallar þar um hvort hægt sé að nýta kven- leikann til að ná jafnrétti og ber er- indi hennar heitið „Tískuþrælar og frjálsir menn“. Þá flytur Anna Sig- rún Haraldsdóttir erindið „Áhrif fatnaðar á jafnréttisbaráttu kynjanna“. Hún mun velta því fyrir sér hvaða áhrif útlit og klæðnaður hafa á samkeppnishæfni kvenna á atvinnumarkaðnum og valdabar- áttu kynjanna. Á föstudaginn klukkan 12 verða tvær uppákomur í húsnæði tónlistar- og leiklistar- deildar á Sölvhólsgötu 13. Karólína Eiríksdóttir tónskáld ætlar að fjalla um kventónlist á barokktímabilinu og síðan munu nemendur í Fræði og framkvæmd flytja stutt verk, Skafur greflist, þar sem lögð er áhersla á að nýta ýmsa tækni, svo sem ljós og hljóð í leikhúsum. Kynjadagar í LHÍ þessa vikuna Kynna verk tengd kynjafræðum Alliance Française í Reykjavík býður öllu fag- og áhugafólki um tungumál til umræðukvölds um fjöltyngi í kvöld. Í tilefni af evr- ópska tungumáladeginum 2008 hinn 26. september síðastliðinn héldu Frakkar mikla ráðstefnu um tungumál og fjöltyngi í Sorbon- neháskóla í París. Þar komu saman ýmsir af helstu ráðamönnum ESB sem ræddu stefnumótun í tungu- málakennslu á næstu árum. Helstu umræðuefnin voru „Fjöltyngi og miðlun verka innan Evrópu,“ „Fjöltyngi, samkeppni í efnahags- málum og félagsleg aðlögun,“ og „Sköpun og nýjungar í marg- tyngdri Evrópu.“ Meðal þeirra sem sóttu ráðstefn- una voru Einar Skúlason, fram- kvæmdastjóri Alþjóðahússins, Erna Árnadóttir frá menntamála- ráðuneytinu og Friðrik Rafnsson, þýðandi og forseti Alliance Fran- çaise í Reykjavík. Þau ætla að fara yfir þær umræður sem fram fóru á ráðstefnunni og greina frá helstu niðurstöðum hennar á umræðu- kvöldinu í húsakynnum félagsins við Tryggvagötu 8 í kvöld. Umræð- urnar fara fram á ensku, frönsku og íslensku og er aðgangur ókeypis og öllum opinn. Umræðukvöld Alliance Française Rætt um fjöltyngi LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Til dæmis hafa krakkar í leikskóla gert stærðfræðiverkefni sem gengur út á að telja allt sem þeir geta. menntun SP dekk - Skipholti 35 - 105 R Sími 553 1055 www.gummivinnustofan.is Opið kl. 8-18 virka daga, kl. 9-15 lau. Öryggi bílsins byggist á góðum hjólbörðum Heilsársdekk Gúmmívinnustofan Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.