24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Fólk gat því keypt sér hús innan við 10 milljónir og staðgreiddi. Þetta sé hins vegar vonlaust í dag. SALA JPY 1,1086 3,99% EUR 156,00 0,13% GVT 207,94 0,61% SALA USD 114,43 1,53% GBP 201,63 0,83% DKK 20,910 0,12% Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur sigrunerna@24stundir.is Fullyrðingar um verðhrun á sumarhúsum og frístundalóðum standast ekki að mati fasteignasala. Þrátt fyrir að sala sé lítil hafi verð ekki lækkað að ráði. Eignir séu heldur ekki farnar að hrannast inn vegna örðugleika. Ekkert verðhrun ,,Það er einhver sala á bæði lóð- um og húsum og markaðurinn er ekki aldauður. Hann er hins vegar þungur,“ segir Snorri Sigurfinns- son hjá Remax/Bæ. Salan hafi verið mjög dræm frá allt áramótum, bæði á lóðum og húsum. Hann segir óhemju mikið til af lóðum en lítil seljist. ,,Það er samt alrangt að það hafi orðið verðhrun. Við höfum séð ör- litla lækkun sem er ekki óeðlilegt í ljósi mikilla hækkana undanfarin ár en að það hafi orðið hrun eins og sumir halda fram er af og frá.“ Snorri segir að kaupendur séu fáir og við þær aðstæður nái menn þó fram hagstæðari kjörum en ella. Hann segist líka sjá það að stærri og dýrari eignir hreyfist lítið sem ekkert, helst séu það lítil hús undir fimmtán milljónum sem seljist. Snorri vildi ekki spá fyrir um hvort verð myndi lækka, óvissan væri mikil. ,,Aðstæður á markaði fela samt í sér tækifæri. Fólk hefur verið að taka út peninga úr bönkunum, er þá ekki lag að fjárfesta í fasteign? Það er óvitlaust að fjárfesta í steypu,“ segir Snorri. Kaupendamarkaður ,,Það sem af er árinu hefur salan verið mjög lítil bæði á lóðum og húsum og hefur hún gjarnan verið í tengslum við skipti,“ segir Hall- dór Jensson hjá fasteignasölunni Domus. Hann tók undir það að verðið hefði ekki lækkað. ,,Það er nánast engin eftirspurn og því hef- ur það ekki gerst. Það ríkir ákveðið jafnvægi. Það er hins vegar kaup- endamarkaður í dag og fólk ætti því endilega að skoða og gera til- boð,“ segir hann. Þá hafi hann ekki orðið var við að menn séu farnir að losa sig við eignir vegna efnahags- ástandsins. Breyttar aðstæður ,,Einna helst hefur verið hreyfing á landi en sala á sumarbústöðum hefur verið mjög róleg síðan í árs- lok 2006,“ segir Guðmundur Kjartansson, hjá Fasteignamið- stöðinni. Hátt í þúsund eignir séu nú til sölu og um helmingur sé ný hús. Hann segir skýringarnar vera nokkrar. ,,Þegar verðið fór að hækka fóru flestar sumarhúsasölur þannig fram að fólk átti einhvern pening, gat kannski skrapað saman 1-2 milljónir og tók svo smávegis yfirdrátt. Þokkalega stöndugt fólk hafði svo kannski veðrými fyrir viðbótarláni. Fólk gat því keypt sér hús innan við 10 milljónir og stað- greiddi. Þetta sé hins vegar von- laust í dag,“ segir Guðmundur. Lítil svigrúm til lækkunar Hann segist sömuleiðis ekki hafa séð neina samninga á borðinu sem beri þess merki að verðhrun hafi orðið. ,,Það er einfaldlega ekki svigrúm til þess, mörg þessara húsa eru það veðsett vegna fjárfesting- arkostnaðar, svo sem vegna vatns- veitu, vega og girðinga. Þetta getur verið kostnaður upp á hundruð milljóna. Menn horfa hver á annan og vonast eftir að einhver gefi eft- ir,“ segir Guðmundur. Hann sagði mikið af húsum liggja hjá verktök- um sem hafi keypt klasa af lóðum og stórar spildur og þeir hafi getað selt eitthvað af húsum sjálfir svo fremi sem þeir hafi getað fjármagn- að söluna sjálfir. Fólk hafi þá gjarn- an fengið lánað og lagt fram veð í húsum sínum. Hjólhýsin hafa áhrif Hvað varði minnkandi sölu sumarhúsa beri svo líka að líta til vaxandi vinsælda lúxushjólhýsa sem kosti jafnvel 3-5 milljónir. Í þeim geti fjögurra manna fjöl- skylda ferðast þægilega um landið í langan tíma, allt eftir veðri og vind- um. Hundruð slíkra hjólhýsa hafi selst árlega undanfarin ár og eðli- legt að það komi niður á sölu sum- arhúsa. Ekki undir hamarinn Guðmundur segist ekki hafa orðið var við að meira komi inn af eignum til sölu en á sama tíma í fyrra. Einna mest komi landspildur á söluskrá, spildur sem hægt er að nota fyrir sumarhúsabyggð, lögbýli eða sem frístundaland vegna hesta. Mikið séu þessar spildur á Suður- og Vesturlandi. ,,Ég get hins vegar ekki sagt að hús og jarðir hafi verið að hrúgast upp. Okkur sýnist sem bankarnir vilji frekar fara þá leið að reyna að aðstoða fólk í erfiðleik- unum en að setja það undir ham- arinn.“ Það er líka heppilegra en að bankarnir sitji uppi með sumar- hús. Engin sumarhús enn á spottprís  Lítil sala á sumarhúsum og -lóðum  Kaupendamarkaður en verð hefur lítið lækkað Litlar lækkanir Lítil eftirspurn er eftir sum- arhúsum og lóðum. ➤ Hátt í þúsund sumarhús oglóðir eru til sölu. ➤ Eignir hafa ekki hrúgastinn og lítið hefur selst á árinu ➤ Margir spáðu verðhruni enþað hefur ekki orðið. ➤ Eigendur hafa lítið svigrúm tillækkunar vegna fjárfesting- arkostnaðar ➤ Nú er kaupendamarkaður svolíkur á hagstæðum kaupum hafa aðeins aukist. SUMARHÚS MARKAÐURINN Í GÆR ● Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 2,14% í viðskiptum gærdagsins og var lokagildi vísitöl- unnar 3.059,66 stig. ● Lokað var fyrir viðskipti með bréf Exista, Glitnis, Kaupþings, Landsbanka, SPRON og Straums- Burðaráss í gær og hreyfðist gengi þeirra því ekki í gær. ● Atlantic Petroleum lækkaði um 22,13% í gær og þá lækkaði Bakka- vör um 13,22%, Atorka um 8,75% og Marel um 5,41%. Ekkert félag hækkaði í verði í gær. ● Velta í Kauphöll nam 41,6 milljörðum króna, en þar af nam velta með hlutabréf 1,2 millj- örðum. ● Gengi krónunnar veiktist um 11,65% og var lokagildi geng- isvísitölunnar 230 stig við lokun markaða.               !""#                      !   " #  $    % &'()* &   + ,- ./-  0        12    '    '3.   .4 2  *5 / 62 7  ,      8 2    8     ,/  !  "                                       7,   6 , 9   " & ;< ==< <>> == =?@ AB? AC< <@> A=? A== @=@ >CC A A>D C?C @D< =CC A< DC; B;A <C ?>= ;AD >< ><B @CC BAA D?B BAC ><C @CC <A @?C DCC BBA =@@ <B? <?< >>B A @=C =DB DDC A?; A? CBD @?> + + + << <@C CCC + + DEC? BED= A;E>C ;E=? BE@A BE?< ADEC= D;=ECC A@E>C <DE=C AE@= DE?D ?;EBC A?<ECC @>CECC A==ECC A=;ECC + + + >A==ECC + + DEA; BED; A=E>C ;E=? BE?C BE?< ADEB= D=BECC A@ECC <<E>C >EAC <EC? ?;E<C A@DECC ACACECC A<=ECC A=?ECC >AEBC + + >A?=ECC ACE=C ;E<= ./  ,  AA B= B@ > A > ? ; > B; A > =C A ? > >? + + + A> + + F  , , D AC >CC? D AC >CC? D AC >CC? B AC >CC? B AC >CC? D AC >CC? D AC >CC? B AC >CC? B AC >CC? D AC >CC? B AC >CC? B AC >CC? D AC >CC? D AC >CC? D AC >CC? D AC >CC? D AC >CC? AD < >CC? >; @ >CC? B D >CC? D AC >CC? >@ @ >CC? < B >CC? Seðlabanki Bandaríkjanna mun lána þarlendum fjármálastofn- unum allt að 900 milljarða doll- ara í neyðaráætlun sem tók gildi í gær. Á að reyna að hleypa lífi í út- lán bankanna sem eru ekki aðeins hættir að lána hver öðrum heldur einnig fyrirtækjum og ein- staklingum. Dow Jones vísitalan lækkaði samt um 500 stig í gær. þþ Lána 900 milljarða dollara Samtals má ætla að rúmlega 1.000 milljarðar króna sem inn- lendir aðilar áttu í innlánum hjá bönkum og sparisjóðum í ágúst séu að fullu tryggðir. Ríkisstjórnin lýsti því yfir í gær að allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi, sem Tryggingarsjóður nær til, séu tryggðar að fullu. gjg Sparifé í bönk- um er tryggt Danska hluta- bréfavísitalan C20 féll um 11% í gær og hefur aldrei fallið eins mikið á einum degi. Á vef business.dk er mánudagurinn sagður „sögulega blóðugur.“ Danska fallið var þó ekki eins- dæmi í N-Evrópu. Stærsta norska hlutabréfavísitalan féll um 10% og sú sænska um 7%. gca Fall C20 aldrei verið meira • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Margviðurkenndur stóll Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.