24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
www.ellingsen.is
TB
W
A\
RE
YK
JA
V
ÍK
\
SÍ
A
Mikið úrval af ýmiskonar skófatnaði.
Þú finnur það sem vantar hjá okkur.
Fundað var í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu alla helgina. Þangað komu
fulltrúar vinnumarkaðarins og verkalýðsins
auk ýmissa lykilmanna í fjármálalífinu.
Á sunnudagskvöld sagði Geir H. Haarde
forsætisráðherra ekki þörf á sérstakri björg-
un en aðgerðirnar fælust í því að bankarnir
færðu eignir sínar hingað til lands og yfir í
ríkisskuldabréf.
Þetta breyttist hins vegar skyndilega.
Seinnipartinn í gær ávarpaði Geir þjóðina og
sagði að ástandið hefði skyndilega snarversn-
að. Að því loknu lagði hann fram á Alþingi
nýtt frumvarp þar sem ríkið fær víðtækar
heimildir til að taka yfir banka og sparisjóði.
Í því er meðal annars kveðið á um að Íbúða-
lánasjóður fær heimild til að taka yfir öll
íbúðalán íslenskra banka. Þá eru bankainni-
stæður fólks tryggðar. fifa@24stundir.is
Álit: Hvað finnst þér um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum?
Peningar skipta ekki öllu máli í lífinu
Ég vil nú bara halda
mér hlutlausri. Ég hef
enga skoðun á þessu
og held mér utan við
þetta. Þetta fer allt til
andskotans en það
reddast.
Peningar skipta ekki öllu máli í líf-
inu. Fjölskyldan skiptir meira máli
og að njóta þess að lifa.
Eydís Björnsdóttir þjóðfræðingur
Held mér hlutlausri
Þetta reddast
Maður veltir því fyrir
sér hvort maður fær
útborgað. En ég held
nú samt að við ættum
að reyna að halda still-
ingu okkar. Þetta er
náttúrlega afleiðing af
græðginni undanfarið. Ekki bara hjá
útrásarköllunum heldur líka þeim sem
hafa keypt sér jeppa á lánum. Ég skulda
ekki krónu og er kannski einn af þeim
fáu sem þurfa ekki að hafa áhyggjur.
Þorvarður Helgason tæknimaður
Afleiðing af græðginni
Hef ekki áhyggjur
HRINGIÐA
lfrettir@24stundir.is a
Makar geta verið heilmiklir stuðningsaðilar
fyrir konur með börn á brjósti með því að
létta af þeim álagi á öðrum málum
Eftir Auði Alfífu Ketilsdóttur
fifa@24stundir.is
Alþjóðlega brjóstagjafarvikan er
nú haldin hátíðleg hér á landi en
hún hefur verið haldin víða um
heim síðastliðin 17 ár.
„Markmiðið með vikunni er að
vekja athygli á mikilvægi brjósta-
gjafar og auka fræðslu almenn-
ings um brjóstagjöf,“ segir Soffía
Bæringsdóttir kennari og móðir
einnar stúlku. Hún er ein þriggja
kvenna sem standa fyrir vikunni.
Hvetja og styðja
Þær Soffía, Aðalheiður Atla-
dóttir arkitekt og móðir tveggja
stúlkna og Dagný Ósk Ásgeirs-
dóttir, vefverslunareigandi og
tveggja barna móðir hittust á
fundi um brjóstagjöf síðastliðið
vor. Þar kom til tals að halda al-
þjóðlegu brjóstagjafarvikuna há-
tíðlega á Íslandi og áður en hendi
var veifað voru þær komnar á
fullt við að undirbúa vikuna.
Í brjóstagjafarvikunni í ár er
athyglinni beint að stuðningi við
konur sem eru með börn á
brjósti og líta skipuleggjendur til
stuðnings við íþróttafólk í því
samhengi.
„Það átta sig allir á að það þarf
að styðja íþróttafólk. Það getur
verið heilmikið mál að gefa brjóst
og það bætist ofan á umönnun
barnsins hjá konum. Makar geta
verið heilmiklir stuðningsaðilar
fyrir konur með börn á brjósti
með því að létta af þeim álagi á
öðrum málum,“ segir Soffía. Hún
segir að stuðningur við konur
með barn á brjósti þurfi ekki að
fela í sér mikla vinnu, stundum
sé nóg að færa þeim vatnsglas eða
elda kvöldmat.
„Svo er líka bara að hrósa kon-
um sem eru með barn á brjósti,“
segir hún.
Brjóstagjöf eldri barna
Dagskrá vikunnar er mjög fjöl-
breytt og meðal dagskrárliða eru
ljósmyndasýning, burðarpoka-
kynning, fyrirlestur, málþing,
fjöldagjöf og kaffisamsæti.
Soffía segir andrúmsloft hér-
lendis að mörgu leyti jákvætt.
Konur geti víða sest niður og gef-
ið brjóst og sums staðar séu kom-
in sérstök gjafaherbergi. Þó segir
hún suma finna fyrir fordómum
þegar börnin eru orðin eldri, þá
færist gjöfin oft inn á heimilin og
verður meira feimnismál.
„Brjóstagjafarvikan er til þess
að fagna brjóstagjöf og styðja
konur.“
Oft heilmikið
mál að gefa brjóst
Brjóstagjafarvika í fyrsta sinn hérlendis Þarf að styðja mæður,
eins og íþróttafólk Brjóstagjöf eldri barna oft feimnismál
➤ Alþjóða heilbrigðisstofnunin,WHO, mælir með því að ung-
börn séu höfð eingöngu á
brjósti til 6 mánaða aldurs.
➤ Stofnunin mælir síðan meðbrjóstagjöf með annarri fæðu
til tveggja ára aldurs eða
lengur.
BRJÓSTAGJÖF
Hrós Það þarf að
hvetja konur og
hrósa þeim sem eru
með barn á brjósti.
Vopnabúr í Höfn
Lögreglan í Kaupmannahöfn fann vopnabúr með
17 skotvopnum í íbúð í september. Þar á meðal
var ein hríðskotabyssa en lögreglan telur að
vopnin hafi átt að nota í uppgjöri milli mót-
orhjólagengja og hópa innflytjenda. mbl.is
Í ljósi atburða seinustu daga á Ís-
landi hefur hljómsveitin sívinsæla
Ghostigital ákveðið að gefa þjóðinni
remix af laginu „Hvar eru peningarnir
mínir?“
Hvar?
Lagið er hægt að nálgast ókeypis í
gegnum myspacesíðu sveitarinnar.
Hvað er í boði?
Í fréttatilkynningu frá sveitinni kem-
ur fram að lagið sé líklega það eina
sem fæst ókeypis í einhvern tíma. Lag-
ið Hvar eru peningarnir mínir er endurhljóðblöndun sem Money-
Master, endurskoðandi GusGus, gerði af laginu Bank sem við gáf-
um út á fyrstu plötu sveitarinnar árið 2003. Lagið er um mann
sem man ekki hvar peningarnir hans eru. En hann var viss um að
þeir væru í umslaginu. Athugið að hann á enga skó,“ segir Curver.
Ghostigital leggur nú lokahönd á plötu sem kemur út fyrir jól hjá
Smekkleysu.
Þjóðargjöf frá Ghostdigital
Hvar eru peningarnir mínir?
Ævilangt fangelsi
Dómstóll í Svíþjóð dæmdi í dag Anders Eklund,
42 ára vörubílstjóra, í ævilangt fangelsi fyrir að
myrða 10 ára stúlku, Englu Höglund, fyrr á þessu
ári, og 31 árs konu, Pernillu Hellgren, fyrir átta
árum. mbl.is