24 stundir - 07.10.2008, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Þrátt fyrir að ástand efnahagsmála
á Íslandi sé svart er ljós í myrkrinu.
Fyrirtækið Preggioni er um þessar
mundir að landa samningi við
stóra dreifingaraðila í Bretlandi og
Írlandi á nýrri vöru sem kallast
Magneat. Um er að ræða mjög ein-
falda lausn á vandamáli sem plagar
marga þá sem nota heyrnartól til
að hlusta á tónlist eða tala í síma –
vandamálið með snúrur sem þvæl-
ast fyrir fólki.
Einföld lausn á vandamáli
Ísak Winther, einn af eigendum
fyrirtækisins, segir að hugmyndin
hafi komið til sín eftir að hann
hafði verið að ergja sig árum saman
á snúrum. „Ég hef verið að hlusta á
músík með heyrnartólum síðan
„walk-men“ kom til. Þetta hefur
alltaf pirrað mig. Ég var búinn að
leita mikið að lausn sem hentaði
mér en fann ekkert. Svo laust þess-
ari hugmynd niður hjá mér og við
höfum unnið að henni síðan.“
Lausnin sem Ísak talar um er lít-
ill hlutur sem upp er byggður úr
tveimur einingum og með sterkum
segli. Segullinn er til þess fallinn að
hægt sé að smella hlutnum, sem
heitir Magneat, á föt og vinda síðan
upp á hann snúrur sem fólk notar
með tónlistarspilurum eða símum.
Semja við stórfyrirtæki
Preggioni er nú með á borðinu
tilboð frá tveimur stórum fyrir-
tækjum í Bretlandi og Írlandi sem
bítast um að fá að selja vöruna.
„Við göngum frá samningum við
annan hvorn þennan aðila innan
tveggja vikna“ segir Daði Agnars-
son en hann á fyrirtækið ásamt
þeim Ísak og Pétri Guðmundssyni.
Aðspurður segist hann ekki geta
gefið upp hversu háar upphæðir sé
um að ræða í samningnum en þær
séu stórar. „Þessi markaður er svo
bara byrjunin. Við erum komnir
langt á veg með samninga við
dreifingaraðila í Danmörku og í
Þýskalandi og það eru þau mark-
aðssvæði sem við horfum á næst.
Til að gefa dæmi um stærðargráð-
urnar sem við erum að tala um
núna seldust á síðasta ári 700 millj-
ónir af tónlistarspilurum. Við ætl-
um okkur að vera búnir að ná í
markaðshlutdeild upp á hálft til
eitt prósent af þeim markaði fyrir
lok næsta árs.“
Komnir á kortið
Gríðarleg vinna og fjármunir
hafa farið í þróun á Magneat hjá
fyrirtækinu. Þeir félagar segja að
þróunarvinnan hafi tekið um eitt
og hálft ár og skjóta á að þeir séu
búnir að eyða um tvö hundruð
milljónum í vinnuna. En verða þeir
ríkir á uppfinningu sinni. „Nei,
kannski ekki ríkir en þessi vara
skýtur styrkum stoðum undir
framtíð fyrirtækisins, bæði fjár-
hagslega og líka bara sem horn-
steinn fyrir framtíðarvinnu hjá
okkur. Við erum komnir á kortið“
segir Daði.
Hönnunarfyrirtækið
Preggioni í útrás
Hönnuðu lausn á snúruflækjum sem fylgja heyrnartólum Landa stórsamningi í Bretlandi og Írlandi
Preggioni Þeir Ísak, Daði
og Pétur urðu leiðir á snúru-
flækjum og eru nú að selja
hugmynd sína úr landi.
➤ Magneat er farinn í sölu á Ís-landi og er Hátækni umboðs-
aðili fyrir vöruna. Einnig er
varan seld á netinu á síðunni
magneat.com
➤ Þeir félagar kalla Magneat„lágtæknilausn á há-
tæknivandamáli“. Magneat
má fá fyrir 1.590 krónur.
MAGNEAT
Magneat
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
barst tilkynning laust upp úr há-
degi í gær frá fiskibátnum Dagnýju
SU 129 um að báturinn væri vél-
arvana með einn mann um borð
fyrir utan Hólmanes í Reyðarfirði.
Björgunarbátar Slysavarnafélagsins
Landsbjargar frá Eskifirði og Reyð-
arfirði ásamt hafsögubátnum Vetti
frá Reyðarfirði voru kallaðir út,
þyrla Landhelgisgæslunnar sett í
viðbragðsstöðu og haft var sam-
band við aðra báta á svæðinu og
héldu þeir á staðinn.
Dagný SU 129 er 9 metra langur
fiskibátur frá Reyðarfirði. Hafn-
sögubáturinn Vöttur dró bátinn til
hafnar á Reyðarfirði. mbl.is
Vélarvana bátur í Reyðarfirði
Dreginn í land
Ekki mun koma til þess að eignir
lífeyrissjóðanna verði nýttar til þess
að bjarga fjármálakerfinu. Fulltrú-
ar lífeyrissjóðanna áttu fund með
fulltrúum ríkisstjórnarinnar,
Seðlabankans og Fjármálaeftirlits-
ins í fjármálaráðueytinu klukkan
11 í gærmorgun til þess halda
áfram að ræða möguleikann á því
að lífeyrissjóðirnir flyttu stóran
hluta erlendra eigna sinna til lands-
ins.
Arnar Sigmundsson, formaður
Landssamtaka sparisjóðanna, segir
að þrátt fyrir að það hafi ekki kom-
ið skýrt fram á fundinum hafi verið
ljóst að eitthvað alvarlegt hafi legið
í loftinu á fundinum.
„Við fundum að það var ekkert
að gerast, menn virtust vita í hvað
stefndi,“ segir Arnar sem telur að
menn hafa áttað sig á því hvað
þetta var umfangsmikið og að að-
koma þeirr hefði þá engu máli
skipt. „Þetta voru bara viðræður
sem fóru í gang og við settum fram
aðgerðaráætlun að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Við sögð-
umst vera tilbúin að skoða þetta ef
aðrir kæmu með. Svörin voru ekki
nema fyrir hluta af þeim aðgerðum
sem við töluðum um,“ segir Arnar
og bætir við: „Við fundum að þetta
var bara búið. Þannig að þá var
þeim viðræðum bara lokið. Þegar
við fórum út af fundinum þá viss-
um við að það var eitthvað allt
annað að gerast sem við visum ekk-
ert um.“
Gunnar Páll Pálsson, stjórnar-
formaður Lífeyrissjóðs verslunar-
manna, tekur undir með Arnari að
allur þungi hafi verið farinn úr
málinu á fundinum. „Við vissum
að eitthvað annað var að gerast.“
elias@24stundir.is
Lífeyrissjóðirnir verða óhreyfðir
Viðræðum lokið
Lífeyrissjóðir óhreyfðir
Arnar Sigmundsson.
Hótel Saga (Ársalur)
Miðvikud. 8. okt. kl. 8. Fundarstjóri: Bendedikt Jóhannesson
Boðið verður upp á morgunverð