24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
Frambjóðendur í bandarísku forsetakosningunum
saka hverjir aðra um að hafa undanfarna daga brugðið
fyrir sig harðari baráttuaðferðum en áður. Hófst orra-
hríðin um helgina, þegar varaforsetaefni repúblikana,
Sarah Palin, sagði Barack Obama hafa umgengist
hryðjuverkamenn á sínum yngri árum.
Var Palin þar að vísa til vinskapar Obama og Willi-
ams Ayers, sem mótmælti Víetnamstríðinu harðlega
fyrir fjórum áratugum. Síðan hefur Ayers gerst gildur
og gegn þjóðfélagsþegn, þar sem hann er prófessor í
kennslufræði við Illinoisháskóla í Chicago.
Palin segir af og frá að of langt sé liðið til að sam-
band Ayers og Obama skipti máli. Ayers hafi skipulagt
fjáröflunarkvöldverð fyrir Obama árið 1995. „Ég held
að megi með góðu móti segja að stjórnmálaferill Bar-
acks Obama hafi farið af stað í stofu þessa manns,“
segir Palin.
Viðbrögð herbúðar Obama voru að líta ögn lengra
til fortíðar. Í auglýsingu sem birtist á netinu er rifjað
upp fjármálahneyksli sem forsetaframbjóðandi repú-
blikana, John McCain, blandaðist í við byrjun níunda
áratugarins. Siðanefnd Bandaríkjaþings úrskurðaði ár-
ið 1991 að hlutur McCains í málinu hafi verið afar lítill
og hann helst sekur um dómgreindarskort. aij
Forsetakosningar nálgast óðfluga í Bandaríkjunum
Höggin þyngjast vestanhafs
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Ríkisstjórn Skotlands gengur treg-
lega að skera upp herör gegn of-
drykkju, sem Alex Salmond, for-
sætisráðherra og leiðtogi Skoska
þjóðarflokksins hefur einsett sér að
gera. Hugmyndir Salmonds hafa
mætt andstöðu á þingi, auk þess
sem líkur eru til að nýjar reglur geti
opnað fyrir málaferli á hendur
stjórnvöldum.
Hærri aldri hafnað á þingi
Eitt helsta atriði áætlunar Sal-
monds var breyting á lágmarks-
aldri til áfengiskaupa. Sem stendur
getur 18 ára fólk keypt áfengi í
verslunum, en Salmond telur að
vænlegra sé að miða við 21 ár.
Salmond bendir á, máli sínu til
stuðnings, að óspektir á almanna-
færi hefðu minnkað um 40% á
hálfu ári í Stenhousemuir, þar sem
21 árs aldurstakmarkið hefur verið
innleitt til prufu. Þar hefur líkams-
árásum fækkað um 30% á sama
tíma.
Verkamannaflokkurinn lagðist
gegn þessari breytingu við at-
kvæðagreiðslu á Skotlandsþingi og
hafði betur. Iain Gray, leiðtogi
Verkamannaflokksins, benti meðal
annars á að undarlegt væri að 18
ára fólk mætti starfa í vínbúðum,
en ekki kaupa vöruna sem það
seldi.
„Ungu fólki þykir hugmyndin
ósanngjörn, óframkvæmanleg,
óskilvirk og hreint út sagt bjána-
leg,“ sagði Gray. Telur Gray að
betra væri að herða eftirlit með
gildandi lögum, þannig að tryggt sé
að börn undir 18 ára aldri geti ekki
orðið sér úti um áfengi.
Lagaflækjur við lágmarksverð
Skoski þjóðarflokkurinn hefur
horn í síðu lágs verðs á áfengi, sem
Salmond segir að hafi sérstaklega
áhrif á neyslu þeirra sem yngri eru.
Til að draga úr ofneyslu ungmenna
hljóða tillögurnar upp á að sett
verði lágmarksútsöluverð á áfengi.
Lagt er til að óheimilt verði að
selja drykki ódýrar en fyrir 35 pens
á hverja áfengiseiningu – sem jafn-
gildir um 200 krónum fyrir hvern
hálfs lítra bjór.
Óttast lögfræðingar að hug-
myndir um lágmarksverð geti
stangast á við fjölda laga sem gilda
á Skotlandi. Þannig geti reglur um
lágmarksverð stangast á við sam-
keppnisreglur Evrópusambands-
ins, þar sem erlendum framleið-
endum verður gert erfiðara um vik
á Skotlandsmarkaði.
Salmond reynir að
vinna gegn sprútti
Skoski þjóðarflokkurinn vill sporna við ofdrykkju, sérstaklega meðal yngra fólks
Hefur mætt mótstöðu á þingi og gæti flækt stjórnvöldum í málaferli
Salmond Vill
ekki að sopinn
þyki of góður.➤ Lágmarksaldur til áfeng-iskaupa verði hækkaður úr 18
árum í 21 ár.
➤ Lágmarksverð verði sett ááfengi.
➤ Aðskilin áfengissvæði í versl-unum.
➤ Verslunum meinað að seljaáfengistegundir með tapi til
að laða að viðskiptavini.
➤ „Samfélagslegt ábyrgð-argjald“ lagt á til að greiða
fyrir afleiðingar áfengis-
misnotkunar.
➤ Áfengisauglýsingum í búð-argluggum settar þröngar
skorður.
HUGMYNDIR SALMONDS
Nærri einni af hverjum fjórum
spendýrategundum jarðar er hætt
við útrýmingu, samkvæmt nýrri
ársskýrslu Alþjóðanáttúruverndar-
samtakanna IUCN. Telja samtökin
að 1.141 af þeim 5.487 spendýra-
tegundum sem þekktar eru í heim-
inum standi höllum fæti um þessar
mundir. Af þeim telja samtökin að
188 tegundir séu í bráðri útrým-
ingarhættu.
Jan Schipper, sem ritstýrði
skýrslunni, hvetur þjóðir heims til
að bregðast við og vernda dýrateg-
undir innan landamæra sinna.
„Sem manneskjur ættum við að
tryggja að við völdum ekki útdauða
annarra tegunda,“ segir hann.
Mark Wright, vísindastjóri al-
þjóðlega dýraverndunarsjóðsins
WWF, tekur í sama streng.
„Við erum að verða allt of vön
því að sjá skýrslur þar sem örlög
plánetunnar og hlutskipti dýra eru
hörmuð. Ég óttast að við séum
orðin dofin fyrir svona upplýsing-
um og hunsum þær sjálfkrafa, án
þess að velta virkilega fyrir okkur
afleiðingunum,“ segir Wright.
„Skýrsla IUCN sýnir að með óvar-
legri umgengni um jörðina og auð-
lindir hennar stefnum við villtu
dýralífi og náttúru í voða, þannig
að börn okkar munu ekki hafa
tækifæri til að upplifa það sem við
höfum upplifað.“
andresingi@24stundir.is
Alþjóðanáttúruverndarsamtökin telja útlitið svart hjá spendýrum
Fjórðungi hætt við útrýmingu
Sögur af dauða Kim Jong-il,
leiðtoga Norður-Kóreu, eru
orðum auknar, ef marka má
frásögn ríkisfréttastofu lands-
ins. Segir fréttastofan að Kim
hafi um helgina fylgst með
fótboltaleik sem haldinn var
til að fagna afmæli stærsta há-
skóla Norður-Kóreu.
Að leik loknum „óskaði hann
leikmönnum til hamingju
með góðan árangur,“ segir
fréttstofan. „Hann fagnaði því
að listir og íþróttir lægju fyrir
byltingarsinnuðum stúd-
entum landsins, um leið og
þeir leggja kapp við að nema
vísindi, þjóðinni til hagsbóta.“
aij
Tórir leiðtogi N-Kóreu?
Kim Jong-il á
almannafæri
Það eru ekki aðeins tilheyr-
endur sem gleðjast við fagran
fuglasöng,
heldur líka
söngfugl-
arnir sjálf-
ir. Þessu
hafa vís-
indamenn
við RI-
KEN-
heilarannsóknarstofnunina í
Japan komist að. Þegar karl-
fuglar söngluðu til að stíga í
vænginn við kvenfugla reynd-
ust ánægjustöðvar heila þeirra
örvast. aij
Fuglarannsóknir
Söngelskir
gleðja sig
Evrópusambandið hyggst opna
miðstöð í Afríkuríkinu Malí, þar
sem hægt verður að sækja sér upp-
lýsingar um löglegar leiðir til að
flytjast til sambandsins. Er mið-
stöðinni ætlað að stemma stigu við
ólöglegum innflutningi Afríkubúa
til Evrópu, en fjöldi manna deyr á
leiðinni ár hvert. Segir fram-
kvæmdastjórn ESB að skrifstof-
unni sé meðal annars ætlað að
upplýsa fólk um hætturnar sem fel-
ast í ferðinni til Evrópu.
Malí er eitt fátækasta ríki heims.
Sökum staðsetningar sinnar í vest-
urhluta Afríku fer fjöldi manna frá
ríkjum á borð við Gana og Nígeríu
um landið á leið til strandríkjanna
Senegal og Máritaníu. Þaðan reyna
þeir að sigla til Kanaríeyjanna, sem
heyra undir Spán. aij
ESB gegn ólöglegum innflytjendum
Opna vinnumála-
skrifstofu í Malí