24 stundir - 07.10.2008, Page 13
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 13
Bláir baugar, náföl andlit ogþreytudrættir kringummunn og
augu voru samræmt
útlit forystumanna
íslensku þjóð-
arinnar eftir gíf-
urleg fundahöld
helgarinnar. Geir H.
Haarde forsætisráðherra færði
þjóðinni enga pakkalausn á
kreppunni, en engir aðrir gátu
bent á hana heldur. Meðan svipur
ráðherranna lýsti þreytu og von-
leysi, lýsti svipur stjórnarand-
stæðinga vonleysi og smámóðgun
yfir því að hafa ekki fengið að
vera með í ráðum um helgina.
Guðjóni Arnari Kristjánssyni
fannst makalaust að ríkisstjórnin
skyldi ekki ráðfæra sig við stjórn-
arandstöðu og Frjálslynda.
Hálfgert hernaðarástandvar á Alþingi fyrir há-degi í gær, þar sem fjöl-
miðlar margra þjóða höfðu knúið
dyra í von um að ná
tali af Geir H.
Haarde forsætis-
ráðherra og öðrum
leiðtogum þjóðar-
innar. Í þinghúsinu
var brugðið á það
ráð að takmarka aðgengi frétta-
manna innanhúss í þinginu og
bláir kaðlar heftu för alls staðar
nema um anddyrið í skála þings-
ins. Erlenda pressan vildi ræða
við „The Prime Minister “ en sáu
helst staka þingmenn og Einar
Má Sigurðarsson og Bjarna
Harðarson o.fl. skjótast hjá tal-
andi í gsm-síma. Erlendu fjöl-
miðlamennirnir sögðu íslenska
ástandið krísudæmi sem hefði
sterka skírskotun til umheimsins.
Spjallþættir og ekki fréttirhafa farið með himin-skautum alla helgina. Þjóð-
in beið nötrandi eftir niðurstöðu
stjórnvalda, en fékk
í staðinn fróðleik
um kengúruhopp
Björgúlfs Thors
Björgólfssonar upp
tröppur og hugsan-
lega blöðrubólgu
fréttamanna sem biðu úti. Magn-
að tómahljóð var í Silfri Egils, þar
sem jakkaklæddir sérfræðingar
reykspóluðu í ruglinu. Helsta
innlegg Egils sjálfs var að hrósa
Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur
sjónvarpskonu fyrir hvað hún
væri dugleg. En hún norpaði fyrir
utan Ráðherrabústaðinn eða
tappaði innihaldsleysinu af ráða-
mönnum sem nú hafa upplýst
þjóðina um stöðuna.
beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Efnahagsmál eru mál málanna í
dag. Nú ríður á að horfa fram á
veg og vinna sig út úr vandanum
til langs tíma litið. Hlúa þarf að
undirstöðuatvinnugreinunum s.s.
sjávarútvegi, stóriðju og ferða-
þjónustu á sama tíma og skapa
þarf ný tækifæri. Tryggja þarf að
við Íslendingar getum selt fisk-
afurðir okkar á sem bestu verði og
að markaðsaðgengi okkar verði
gott. Nokkrar blikur eru á lofti
hvað markaðsaðgengið varðar. Er
það sökum þess að æ fleiri neyt-
endur gera kröfu um að matvaran
sem þeir leggja sér til munns
standist umhverfiskröfur, þ.e. að
hennar sé aflað, eða hún unnin í
sem mestri sátt við umhverfið og
beri merki því til staðfestingar.
Mikilvægir söluaðilar íslenskra
sjávarafurða hafa fyrir löngu orð-
ið varir við þessar nýju og breyttu
kröfur og óskað eftir því að fisk-
afurðir frá Íslandi verði umhverf-
isvottaðar.
Enn langt í land
Í leiðara dagblaðs síðla sumars
sem bar yfirskriftina „Kemur vott-
un of seint?“ er þeirri spurningu
velt upp hvort við Íslendingar er-
um of sein á okkur í þessum efn-
um. Þar kemur fram að íslenskur
þorskur hafi horfið úr hillum
svissneskra stórmarkaða, nánast
eins og hendi væri veifað, eftir
áralangt markaðsstarf. Ástæðan sé
sú að fiskurinn hafi enga vottun
um að hann sé veiddur með sjálf-
bærum hætti. Íslenska sölufyrir-
tækið hafði reynt að þrýsta á ís-
lensk stjórnvöld og
hagsmunaaðila um árabil að fá
vottun á vöruna, án árangurs. Af
þessum ástæðum tapaðist dýr-
mætur markaður í hendur ann-
arra sem bjóða upp á umhverf-
ismerktar vörur því svissneski
markaðurinn borgar vel fyrir ís-
lenskan þorsk. En hvaða stefnu
höfum við Íslendingar tekið í
þessum efnum? Jú, við getum val-
ið um tvær leiðir. Þær eru að taka
upp umhverfisvottun sem er nú
þegar til staðar s.s. vottun MSC
(Marine Stewartship Council) og
Friend of the sea eða byggja upp
okkar eigið vottunarmerki. Hags-
munaaðilar í íslenskum sjávarút-
vegi hafa nokkurn fyrirvara á
MSC-merkinu og álíta að það hafi
óskýra staðla, sé of nátengt vott-
unarfyrirtækjunum sínum og að
umhverfisverndarsamtök hafi of
sterk ítök í merkinu. Hér á landi
hefur því seinni leiðin verið álitin
vænleg. Hefur hópur á vegum
Fiskifélagsins verið að undirbúa
séríslenskt merki. Starf það hefur
dregist talsvert því Einar K. Guð-
finnsson, landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðherra, sagði á sínum
tíma að vottunin gæti komist af
stað fyrir árslok 2007. Sá tími er
löngu liðinn og enn er langt í
land.
Nágrannar velja aðra leið
Síðasta föstudag afhjúpaði ráð-
herrann útlit íslenska umhverfis-
merkisins á kynningarfundi á
sjávarútvegssýningunni. Merkið
er snoturt og stílhreint. Hins veg-
ar fylgdi með í kynningunni að
ekkert er enn á bak við merkið,
þ.e. innihald þess er ekkert því
enginn vottunaraðili stendur á
bak við það. Til að skapa íslenska
umhverfismerkinu trúverðugleika
er grundvallaratriði að tryggja að
þriðji aðili, þ.e. vottunaraðili á
borð við Moody Marine eða Bu-
reau Veritas, votti merkið. Er nú
unnið að því að fá slíka vottun
þ.a. merkið megi nota síðla á
næsta ári. Skynsamlegra hefði ver-
ið að vera komin lengra með vott-
un þriðja aðila áður en merkið er
kynnt því markaður hefur lítið að
gera með merki án vottunar. Á
sama tíma og við Íslendingar er-
um að undirbúa okkar eigið um-
hverfismerki og huga að því
hvernig við kynnum það á erlend-
um vettvangi í framhaldinu fara
nágrannaþjóðir okkar allt aðra
leið. Fyrirtæki á Norðurlöndun-
um ákváðu að bæta samkeppn-
isstöðu sína með því að byggja
ekki upp eigin merki á umhverf-
isvottaðar sjávarafurðir heldur
velja nú þegar þekkta vottun.
Völdu þeir vottun MSC. Á hnatt-
ræna vísu velja æ fleiri fyrirtæki
sömu leið. Hlýtur þessi staða að
vekja okkur til umhugsunar.
Höfundur er alþingismaður
Umhverfisvottun í sókn
VIÐHORF aSiv Friðleifsdóttir
„Fyrirtæki á
Norðurlönd-
unum
ákváðu að
bæta sam-
keppn-
isstöðu sína
með því að byggja ekki
upp eigin merki á um-
hverfisvottaðar sjávaraf-
urðir heldur velja nú þeg-
ar þekkta vottun“ eða
„Sá tími er löngu liðinn
og enn er langt í land.“
Tilboð
á myndatökum
til 18. október.
Mynd - Ljósmyndastofa í 25 ár
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2008
Skilafrestur vegna kynninga og
auglýsinga í Bókatíðindum 2008 er til
20. október næstkomandi.
Bókatíðindum verður sem fyrr dreift
á öll heimili á Íslandi.
ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN
Frestur til að leggja fram bækur vegna
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2008 er til 20. október næstkomandi.
Allar upplýsingar á skrifstofu félagsins,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
Netfang: baekur@simnet.is
————————————— —————————————
FÉLAG ÍSLENSKRABÓKAÚTGEFENDA
BT hugsar
um budduna
!
Herjólfsstígur 16
Grímsnes
Frábær staðsetning
Stærð: 91,5 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 2006
Brunabótamat: 0
Bílskúr: Nei
Verð: ca. 13.
Fallegur 91,5 fm sumarbústaður á 8.927 fm eignarlóð í Grímsnes- og Grafningshreppi með flottu útsýni. Húsið er
innflutt frá Lettlandi. Húsið er fullbúið að utan, að innan er búið að einangra, milliveggir komnir, panill kominn á
veggi, panill til að klæða loftin fylgir með ásamt innihurðum frá Parka. Gert er ráð fyrir hita í plötunni sem er steypt.
Innri flötur glugga er tré en ytri flötur er plast. Hita- og rafmagnsinntök vantar. Húsið selst í núverandi ástandi.
Leiðarlýsing: Farið er framhjá Þrastarlundi síðan er beygt til vinstri inn á Þingvallaveg. Þegar komið er að
Búrfellsvegi nr. 351 þar sem hitaveituhúsið er þá skal keyra áfram að næsta afleggjara og beygja þar upp til hægri
þá er Freyjustígur á vinstri hönd en Herjólfstígur til hægri. Allar frekari upplýsingar veitir Vernharð í síma 699 7372
og/eða tölvupósti venni@remax.is
S
Kristján Ólafsson
Lögg. fasteignasali
Vernharð
Sölufulltrúi
senter@remax.is
venni@remax.is
Fæst gegn yfirtöku lána og söluþókn.
RE/MAX Senter - Skútuvogur 11a - 104 Reykjavík - Sími: 4144700 - www.remax.is
414 4700
699 7372