24 stundir - 07.10.2008, Blaðsíða 17
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 17
„Ég er farin að sofa aðeins leng-
ur, vakna núna á þriggja til fjög-
urra tíma fresti,“ segir Ísfold
Kristjánsdóttir sem gekk fimm
hvolpum í móðurstað og 24
stundir sögðu frá fyrir nokkru.
Hún viðurkennir að það sé lýj-
andi að gefa þeim svona ört en
segir það fyllilega þess virði.
„Það náttúrlega kom á óvart að
þurfa að fara að sjá um hvolpana.
En ég er búin að vera að gúgla og
lesa mér til á netinu um uppeld-
ið,“ segir hún. Auk þess að gefa
þeim að drekka þarf Ísfold að sjá
um að þeir hafi hægðir. Það gerir
hún með því að strjúka blautum
pappír um rassinn á þeim og kyn-
færin, öðruvísi hafa þeir ekki
hægðir.
Hún segir fullmikið að segja að
þeir líti á hana sem mömmu. „En
það er fyndið hvað þeir þekkja
mig frá öðrum. Þeir koma til mín
ef ég rétti höndina til þeirra eða
kalla á þá. Ég er alla vega í uppá-
haldi,“ segir hún.
fifa@24stundir.is
Les sér til um uppeldið á netinu
Hvolparnir halda
upp á fóstru sína
a
Það er fyndið hvað
þeir þekkja mig frá
öðrum. Þeir koma til mín
ef ég rétti höndina til
þeirra eða kalla á þá. Ég
er alla vega í uppáhaldi.
Í GEGNUM LINSUNA
● Samviskufangi Málþing Am-
nesty International í Norræna
húsinu til heiðurs rússneska
blaðamanninum og umhverf-
issinnanum Grigory Pasko og
til minningar um samstarfs-
konu Paskos í blaðamennsku,
Önnu Politkovskaju, en hún
var myrt þann 7. október fyrir
tveimur árum. Málþingið er
öllum opið og hefst klukkan
8:30 og lýkur klukkan 10:30.
● Trúarbrögð og mannrétt-
indi Októberhitt Femínista-
félags Íslands verður haldið
klukkan 20 á annarri hæð á
Sólon. Framsögu halda Hildur
Björg Hörpudóttir guðfræði-
nemi sem spyr: Eru áhrif trúar-
bragða á líf og aðstæður kvenna
vanmetin? Og Guðrún D. Guð-
mundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Mannréttindaskrifstofu
Íslands, verður með erindið:
Trú, konur og mannréttindi.
● Goya Kvikmyndasafnið sýnir
myndina Goya en Burdeos í
leikstjórn Carlos Saura kl. 20 í
Bæjarbíói. Hafnarfirði, miða-
verð 500.
● MFÍK Opinn fé-
lagsfundur MFÍK kl.
19 í Friðarhúsinu á
horni Njálsgötu og
Snorrabrautar.
Þar munu Anna Sig-
ríður Hróðmarsdóttir
og Guðríður Sigur-
björnsdóttir segja frá
European Social Forum
sem haldið var í Málm-
ey dagana 17.–21.
september
2008. Í upphafi fundar verður
seldur léttur matur sem kostar
kr. 1000. Fundurinn er öllum
opinn.
● Fornleifafræði Vala Björg
Garðarsdóttir, doktorsnemi í
fornleifafræði við Háskóla Ís-
lands, flytur fyrirlestur um
rannsóknarverkefni sitt: Stein-
setningar á Íslandi og hlutverk
þeirra. Fyrirlesturinn verður
haldinn í Þjóðminjasafninu og
hefst hann klukkan 16.
● Handfrjáls brjóstagjöf
Kynning á brjóstagjöf í burð-
arpoka klukkan 18 í húsi Björg-
unarsveitarinnar Ársæls að
Suðurströnd 7, Seltjarnarnesi.
Hægt verður að prófa ýmsa
burðarpoka og burðarsjöl og
leiðsögn í boði.
● Fornt og nýtt Hádegisleið-
sögn um sýninguna Ekvador að
fornu og nýju í Gerðarsafni í
Kópavogi kl. 12. Yfirlitssýning
listmuna og málverka frá 4000
f. Kr. til okkar daga.
● Löggjöf og
gegnsæi Fyrir-
lestur Ágústs Þórs
Árnasonar um
atburði und-
anfarinnar viku í
fjármálaheim-
inum og Transp-
arency Inter-
national, samtök
sem berjast gegn
spillingu. Kl. 12 L
201 Sólborg v/
Norðurslóð á Ak-
ureyri.
FRAMUNDAN
07.10
HREYFILAND ER 5 ÁRA!
Við höldum upp á afmælið föstudaginn
10.október. Hjá okkur gefur afmælisbarnið
gjafirnar: Í tilefni dagsins gefum við 5+15%
afslátt af 8 vikna námskeiðum í
• Mæðrafimi®
• Fit-Kid®
• Salsa-leikfimi
Með námskeiðunum fylgir
gjöf frá dr. Fischer.
Nánari upplýsingar á vefsíðu okkar www.HREYFILAND.is | 577 2555
Þessi ungi drengur, nýklipptur og fínn, beið þolinmóður eftir móður sinni meðan hún fékk hársnyrtingu í
gær. Sem betur fer gerði sá stutti sér ekki grein fyrir bankakreppunni í heiminum, enda engin ástæða til að
ungviðið taki þátt í slíkum hörmungum. Í börnunum felst framtíðin og allir þurfa að taka sig saman um
að hlífa þeim við þeim ósköpum sem nú gengur yfir. Góð heilsa er öllu öðru mikilvægari og öll verðmæti
heimsins eru smámál miðað við það að eiga heilbrigð börn. Skemmum ekki geðheilsuna með neikvæðni
og óábyrgu tali.
Áhyggjur heimsins víðs fjarri
Beðið eftir mömmu í hárgreiðslu
24stundir/Frikki