24 stundir - 07.10.2008, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 24stundir
minna í utanlandsferðir til þess að
versla en við njótum góðs af því að
fólk er farið að leita hagkvæmari
leiða til að fljúga. Það er einhver
aukning á því að fólk hætti við þær
ferðir sem pantaðar hafa verið en
ekki í miklum mæli. Auðvitað er
hræðsla varðandi framhaldið.“
Þorsteinn Guðjónsson forstjóri
hjá Úrvali-Útsýn tekur undir að
hann finni fyrir minni eftirspurn
eftir verslunarferðum og „þessar
helgarferðir séu erfiðari í sölu en
áður“.
„Það er ekkert mikið um að fólk
hætti við þær ferðir sem það hefur
pantað. Síðasta vika reyndist svolít-
ið erfið því fólk var bara í hálfgerðu
losti. Það sem við hins vegar verð-
um að treysta á er að þetta ástand
sé ekki komið til að vera,“ segir
hann.
Aukning á sölu erlendis
„Síðustu daga hefur að sjálf-
sögðu eftirspurnin snardregist
saman hér á Íslandi,“ segir Sigfús
Ólafsson, framkvæmdastjóri Ice-
landair. „Fólk vill skiljanlega bíða
og sjá til hvað gerist. Það er reyndar
lítið sem ekkert um afpantanir hjá
okkur. Icelandair selur um þriðj-
ung farseðlanna hér á landi – tveir
þriðju eru seldir erlendis, og þar
sjáum við reyndar aukningu í bók-
unum – þar hefur gengisfallið
þveröfug áhrif.“
Matthías hjá Iceland Express
segir einnig að það sé fjölgun á er-
lendum ferðamönnum hér á landi.
„Ég er farinn að heyra það út und-
an mér að fólk komi í verslunar-
ferðir og sé hvatt til að koma hing-
að til að versla fyrir jólin,“ segir
hann.
„Við erum farin að auglýsa
næsta sumar og ég get ekki séð að
það fari hægar af stað en á síðasta
ári. Reyndar seljum við mikið af
sætunum fyrirfram og þá eru það
kaup erlendis frá.“
Finna fyrir hræðslu almennings
Aðalbjörg Óladóttir, fram-
leiðslustjóri hjá Vita, segir að þau
hafi fundið fyrir minni eftirspurn
en áður. „Það sem við finnum mest
fyrir er hræðsla fólks um hækkanir.
Hingað hringir fólk og spyr hvort
að ferðir þeirra muni hækka og
hvað gerist vilji það panta ferðir í
dag. Það er ljóst að það er ekki
leyfilegt að hækka ferðir sem fólk
er búið að greiða til fulls. Upp úr
mánudegi í síðstu viku fóru pant-
anir að minnka,“ segir hún.
Sævar Skaptason, framkvæmd-
arstjóri Ferðaþjónustu bænda, seg-
ir að ef gengið heldur svona áfram
verður umtalsverð hækkun á utan-
landsferðum á næsta ári. „Nú er
bara spurningin hvernig framhald-
ið verður. Við erum ekkert farin að
auglýsa næsta sumar hjá okkur og
bíðum bara átekta og sjáum hvern-
ig næstu tvær þrjár vikur verða.
Það segir sig sjálft að þurfi að
hækka verðið mikið fari fólk í mun
minna mæli í ferðir erlendis.“
Sólarströnd Ströndin
á Algarve í Portúgal.
Dregið hefur úr eftirspurn hjá flugfélögum og ferðaskrifstofum eftir utanferðum
Dregur úr framboði ferða
Fátt hefur verið í um-
ræðunni annað en efna-
hagsástandið á Íslandi.
Ferðaskrifstofur og flug-
félög hræðast framhaldið
haldi ástandið svona
áfram. Minni ásókn er
núna en áður og fór eft-
irspurn að dragast mikið
saman síðasta mánudag.
➤ Borið hefur á því að Íslend-ingar sækist minna eftir borg-
arferðum en áður.
➤ Ferðaskrifstofur bíða átektaog vona að ástandið lagist
sem fyrst.
➤ Erlendir ferðamenn sýnalandinu áhuga og sækjast eft-
ir að koma hingað í versl-
unarferðir.
➤ Helgarferðir seljast minna.Fólk leitar frekar í sólina.
➤ Borið hefur á hræðslu al-mennings varðandi hækkanir.
UTANLANDSFERÐIR
Til þess að fá góða yfirsýn yfir fjár-
málin sín er gott að halda utan um
hlutina með því að hafa gott heim-
ilisbókhald. Sé bókhaldið gott er
mun auðveldara að sjá hvar hægt
er að skera niður og spara. Inni á
vefnum fjölskylda.is/fjarmal er
hægt að finna excel-skjal sem að-
stoðar fólk við að setja upp sitt eig-
ið bókhald á einfaldan hátt. kyg
Heimilisbókhald
Yfirsýn
Norræna umhverfismerkið Svan-
urinn er opinbert umhverfis-
merki Norðurlandanna. Svan-
urinn auðveldar neytendum að
velja gæðavörur sem eru vist-
vænni en flestar sambærilegar
vörur á markaðnum. Svanurinn
er settur á þær vörur sem upp-
fylla ströngustu umhverfis- og
gæðaskilyrði. Æ fleiri neytendur
velja svansmerkt og æ fleiri fyr-
irtæki svansmerkja vörur sína og
þjónustu.
Opinbert
umhverfismerki
Á síðu Neytendasamtakanna,
ns.is, fagna Neytendasamtökin
ummælum Jóhönnu Sigurð-
ardóttur félags- og trygginga-
málaráðherra í umræðum um
stefnuræðu forsætisráðherra. Þar
sagði Jóhanna að það kunni að
vera nauðsynlegt að breyta
reglum Íbúðalánasjóðs þannig að
þeir sem nú skulda íbúðalán í
bönkum geti leitað til Íbúðalána-
sjóðs um endurfjármögnun.
kyg
Breyta á reglum
Íbúðalánasjóðs
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Það er einhver aukning á því að fólk
hætti við þær ferðir sem pantaðar
hafa verið en ekki sérlega mikil.
neytendur
Samkvæmt könn-
un sem Capacent
gerði fyrir Úr-
vinnslusjóð
flokka tæplega
91% Íslendinga
sorp til endur-
vinnslu. Nær
19% segjast gera
það alltaf og um 37% oft. Um
35% segjast flokka sorp stundum
eða sjaldan.
kyg
91 prósent
flokka sorpið
Eftir Kristínu Ýr Gunnarsd.
kristing@24stundir.is
„Það sem við gerðum var að draga
úr framboði. Náðum að bregðast
nógu snemma við um leið og fór
að halla á,“ segir Matthías Imsland,
forstjóri hjá Iceland Express.
Gengi krónunar hefur verulega
komið í bakið á Íslendingum síð-
ustu misseri og þá ekki síst flug-
félögunum og ferðaskrifstofum.
Pundið er rúmlega tvö hundruð
krónur og danska krónan komin
yfir tuttugu krónur.
Minna um verslunarferðir
„Við hjá Iceland Express finnum
klárlega fyrir því að fólk fer mun