24 stundir - 07.10.2008, Side 27
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 27
BÆJARLIND
S: 544-5514
PLAYERS
BOLTINN
Í BEINNI
FJÖLBREYTT
HÁDEGIS-
TILBOÐ
HÁDEGIS-
MATUR
ALLA VIRKA
DAGA
Bermúda
Föstudags-
kvöld
Zonet
Laugardags-
kvöld
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Ef útsendingar frá ensku knatt-
spyrnunni væru máltíð er það
bókað mál að FIFA-fótboltaleik-
irnir myndu flokkast sem eft-
irrétturinn. Nú er hægt að skella
á sig smekknum því FIFA 09 er
kominn í verslanir og veislan get-
ur hafist.
Grafík leiksins hefur fengið
ágætis yfirhalningu frá síðustu út-
gáfu og hafa allar hreyfingar leik-
manna verið bættar. Leikmenn
detta nú býsna raunverulega ef
þeir eru tæklaðir og ef þeir eru
ítalskir er allt eins líklegt að þeir
liggi á vellinum dágóða stund.
Hvað fótboltaleiki varðar þýða
breytingar á grafík afskaplega lít-
ið. Það sem skiptir meginmáli er
hvort að knattspyrnan sem boðið
er upp á sé raunveruleg og hvað
það varðar veldur FIFA 09 ekki
vonbrigðum. Flæði leiksins er
mun betra heldur en í fyrri út-
gáfum og öll spilun leiksins er
mun raunverulegri.
Ein af skemmtilegri nýjungum
FIFA 09 er Be A Pro spil-
unarmöguleikinn. Þar geta leik-
menn búið til sína eigin knatt-
spyrnuhetja, komið henni síðan
fyrir í sínu uppáhaldsfélagsliði og
spilað í fjögur keppnistímabil.
Þetta er fín viðbót en það er synd
og skömm að einungis einn leik-
maður geti spilað í gegnum öll
tímabilin ólíkt UEFA Euro 2008
þar sem fjórir félagar gátu spilað
saman.
FIFA leikirnir hafa þróast með
hverju árinu. FIFA 09 er stórt
stökk fram á við frá síðasta leik
seríunnar og ætti ekki að valda
neinni boltabullu vonbrigðum.
Með aðra hönd á bikarnum
Býsna góður
Helstu stjörnur
fótboltans fá
að skína á vell-
inum í nýjustu
útgáfu FIFA.
Michael Lohan, faðir Lindsay
Lohan, hefur ákveðið að leggja
góðu málefni lið með því að láta
berja sig í hnefaleikahringnum.
Lohan hafði áður skorað á slúð-
urbloggarann Perez Hilton en
þegar lítið varð úr þeim bardaga
ákvað Lohan að finna andstæðing
sinn með uppboði. Hæstbjóðandi
mun vinna sér inn réttinn á að
berjast þrjár lotur við stjörnu-
pabbann á hinu árlega Long Is-
land Fight For Charity kvöldi, en
allur ágóði þess kvölds rennur
beint til góðgerðarmála.
Það mun þó ekki hver sem er fá
að hjóla í Lohan því sett hafa ver-
ið ákveðin hæðar- og þyngd-
artakmörk fyrir andstæðingana.
Þar að auki munu barsmíðarnar
ekki verða ókeypis en lágmarks-
boð er 5.000 dollarar. vij
Barinn í góð-
gerðarskyni
Erlenda slúðurpressan var hissa
að sjá í hversu góðu formi leik-
konan Angelina Jolie var þegar
hún mætti á frumsýningu mynd-
ar sinnar The Changeling er Clint
Eastwood leikstýrir.
Spurð hvernig hún hefði náð
gamla forminu sínu aðeins þrem-
ur mánuðum eftir að hún eign-
aðist tvíburanna Knox og Vivi-
enne með Brad Pitt sagði hún að
ástæðurnar væru tvær. Að hún
væri að gefa brjóst og að hún væri
frá náttúrunnar hendi með mjög
hraða brennslu.
Angelina viðurkenndi að hún
væri örmagna en hún er í dag sex
barna móðir og fær ekki mikinn
svefn. Á vinstri hönd sína hefur
hún látið húðflúra hnit fyrir fæð-
ingarstað allra barna sinna. bös
Angelina komin
aftur í form
Glöggur lesandi og aðdáandi
Stjörnustríðsbálksins sendi tölvu-
póst á blaðið og benti á hliðstæðu
Geirs H. Haarde forsætisráðherra í
Star Wars-myndunum. Það er eng-
inn annar en Boss Nass, yfirmaður
Gunganna í Episode 1: Phantom
Menace. Það er ekki bara svipað
kæruleysislegt bros er þeir bera á
andlitinu þegar illa stendur á,
heldur eru þeir báðir þekktir fyrir
aðgerðaleysi þegar mikil ógn steðj-
ar að ríki þeirra. Boss Nass neitaði
í fyrstu að ástandið á Naboo væri
orðið það slæmt að hann þyrfti
eitthvað að aðhafast í því en til
allrar lukku varð hann hluti af
lausninni í lokin. Vonandi verður
eins með Geir. Sendið tvífaraá-
bendingar á 24@24stundir.is.
Ekki vera meyr, Geir en …
„Hún er uppfull af þessum Sid
Vicious-hugsunarhætti um að
deyja ung. Hún óttast það ekkert
og telur það vera örlög sín,“ sagði
ónefndur heimildarmaður breska
blaðsins Daily Star um söngkon-
una Amy Winehouse en nánustu
vinir hennar skiptast nú á að fylgj-
ast með söngkonunni en þeir ótt-
ast að hún muni fremja sjálfsmorð.
Á dögunum mun söngkonan
hafa gripið hníf og hótað því að
reka hann á kaf í brjóst sitt en ekk-
ert varð úr þeirri hótun. „Vinir
hennar náðu hnífnum frá henni en
standa nú sólarhringsvaktir yfir
henni af ótta við að hún fremji
sjálfsmorð,“ hélt heimildarmað-
urinn áfram. „Amy er með dauða-
ósk. Tilfinningar hennar eru svo
ýktar. Hún er annaðhvort í vímu
allan daginn eða, þegar hún heyrir
eitthvað sem henni líkar ekki, í
sjálfsmorðshugleiðingum.“
Winehouse, sem er 25 ára, hefur
undanfarið ár hreinlega rotnað
fyrir augum heimsbyggðarinnar en
mikil fíkniefnaneysla hefur svo
gott sem eyðilagt líf og feril þess-
arar efnilegu söngkonu.
Til að bæta gráu ofan á svart þá
hefur eiginmaður hennar, Blake
Fielder-Civil, sent föður Amy,
Mitch Winehouse, býsna grimmi-
leg bréf þar sem hann hótar
tengdaföður sínum lífláti. „Blake
lýsti grófum atriðum úr hryllings-
mynd, þar sem Mitch var fórn-
arlambið,“ sagði heimildarmaður
dagblaðsins Sun. Heimildir herma
að þetta bréf hafi sett enn meira
álag á hina hrjáðu söngkonu. vij
Söngkona sett á sjálfsvígsvakt
Amy er ákveðin
í að deyja ung
Drekkur ekki kóla-
drykk Winehouse
þykir býsna stórtæk í
drykkjunni.
Söngkonan efnilega Amy
Winehouse er nú undir
ströngu eftirliti vina
sinna eftir að hún hótaði
að fremja sjálfsmorð.
Hún mun vera viss um að
hún deyi ung.
TVÍFARINN
Grafík: 89% Ending: 83%
Spilun: 91% Hljóð: 79%
FIFA 09 PS3, XBOX 360 o.fl. | 3+
NIÐURSTAÐA: 86%