24 stundir - 07.10.2008, Page 32
24stundir
? Þegar orðið „kreppa“ kom inn í um-ræðuna fyrir nokkrum mánuðum bjóstég ekki við að ástandið yrði jafn hektísktog það er í dag. Matvörukeðjur hvetjafólk til að hamstra mat, olíufyrirtækinsegjast ekki geta séð fólki fyrir eldsneytimikið lengur, múgurinn hópast í bank-ana að taka út verðbólginn sparnaðinn
og svo er ógeðslegt veður í þokkabót.
Fjölmiðlar eru með á nótunum og
halda kreppuumræðunni á lofti. Þó það
sé ekkert fyndið við það sem er að gerast,
þá er hægt að hlæja að vandmálunum
sem eru yfirfærð á kreppuna. Henni er
kennt um allt sem misferst í þjóðfélag-
inu – eins og allt hafi verið í himnalagi á
þessu guðsvolaða skeri áður en krónan
féll og Glitnir var þjóðnýttur.
Fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá því á
sunnudag að 15 líkamsárásir hefðu verið
kærðar í Reykjavík um helgina (sem
þykir mikið) og ungir menn voru hand-
teknir fyrir að stela sófa og leikföngum.
Ógæfa þessara manna þótti gefa til
kynna að eitthvað lá í loftinu því ekki var
tunglið fullt.
Niðurstaða fréttarinnar var sú að
þjóðin væri haldin svokölluðu „kreppu-
æði“. Mannfræðingur sem rætt var við
staðfesti það og tókst að réttlæta gjörðir
ógæfufólksins með því að telja upp ýmsa
hegðunarbresti sem hrjá fólk þegar það
vantar peninga. Fréttin var fín, en Stöð 2
gleymdi að taka inn í jöfnuna þá stað-
reynd að hvort sem það er kreppa eða
ekki, þá verða alltaf til fávitar sem hætta
ekki að lumbra á fólki þó að krónan
jafni sig.
„Kreppuæði“
Atli Fannar Bjarkason
skrifar um vandamál.
YFIR STRIKIÐ
Er allt
kreppunni
að kenna?
24 LÍFIÐ
Gagnrýnandi segir Reykjavík-
Rotterdam vera vel heppnaða ís-
lenska glæpasögu. Gefur
þrjár og hálfa stjörnu.
Reykjavík-Rotter-
dam fær góða dóma
»26
Dr. Gunni og Jónsi eru á meðal
þekktra andlita er koma fram í
hughreystandi skila-
boðum til þjóðarinnar.
Skjár 1 gerir jákvæð-
ar auglýsingar
»30
Vinir Amy Winehouse óttast um
að söngkonan fremji sjálfsvíg en
hún virðist staðráðin í
að deyja ung.
Amy Winehouse
vill deyja ung
»27
● Ekkert bensín
„Vonda veðrið er
aðallega fyrir utan
gluggann,“ segir
Sesselja Trausta-
dóttir, varafor-
maður Lands-
samtaka
hjólreiðamanna.
Íslenski fjallahjólaklúbburinn býð-
ur upp á leiðsögn um hjólreiðar á
veturna frá og með næsta fimmtu-
degi. „Hjólin þurfa ekkert bensín
og maður hefur gott af því að fá
smávegis roða í kinnarnar á vet-
urna. Maður finnur líka lítið fyrir
kulda þegar maður hjólar,“ segir
Sesselja. Nánari upplýsingar eru á
ifhk.is og skráning á sessy@alfto.is.
● Elskumst í
efnahagsrúst-
unum „Það er
orðið erfitt að fá
styrki fyrir inn-
lendum tónleika-
ferðum en við
fengum styrk frá
Kraum áður en allt
fór til fjandans,“ segir Benedikt
Reynisson úr Skátum er leggur af
stað í tónleikaferðina Elskumst í
efnahagsrústunum ásamt Blo-
odgroup á morgun. Ferðin er hluti
af Innrás, verkefni Kraums, styrkt-
arsjóðs, er býður nú landsbyggðinni
upp á íslenska tóna úr höfuðborg-
inni í kreppunni. Stoppað verður á
Egilsstöðum, Borgarfirði, Ísafirði,
Akureyri, Hafnarfirði og Keflavík.
● Smáhvíld „Síð-
ast hafði ég
áhyggjur af því
að enginn myndi
koma því þetta
var sama kvöld
og stefnuræða
forsætisráðherra.
En þá sögðu
margir: Það var nú einmitt þess
vegna sem ég kom. Fólkið vildi
bara fá smáhvíld frá áhyggj-
unum,“ segir sr. Þórhallur
Heimisson, sem stendur fyrir
ókeypis fræðslukvöldum í Hafn-
arfjarðarkirkju. „Hér mættu 100
manns á fimmtudaginn var.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við