Eintak

Tölublað

Eintak - 20.01.1994, Blaðsíða 4

Eintak - 20.01.1994, Blaðsíða 4
ÉQ VEIT PAÐ EKKI Eftir Hallgrím Helgason Innanhússvandi Ég veit ekki alveg hverjum það er að þakka en því verður ekki neitað. Ríkissjónvarpið tók fjörkipp í haust. RÚVfór á stúfana. Hundrað nýir innlendir þættir birtust á skjánum. Og ný andlit. Nýjar þulur og þáttagerðarmenn, spyrjendur og stjórnendur hreinlega flæddu framan í þjóðina. Allskonar fólk. Blaðamenn og útvarpsmenn. Glæ- nýjar framtennur og gamlir jaxlar, allt var dregið á flot, og inn á milli Mattar Völur til að fleyta fleiri kerlingum út á ólgusjó þjóðfélag- sumræðunnar. Jafnvel Ingó Marg- eirsson var vakinn upp í beina útsendingu, þótt hann hafí nú reyndar næstum sofnað í stólnum í þriðja þætti. En þriðjudagsdrengirnir voru þó bestir. Allir voru löngu búnir að hneykslast á þessum litlu Hrafns- ungum með rauðu slaufurnar sem stjórna „þriðjudagsumræðunni", þáttur sem aldrei verður nein umræða, heldur meira eins og viðræða; fjögur viðtöl samtímis. En ég er hér með smá skammt í viðbót. Þriðjudagsdrengirnir eru allir, þrátt fyrir fákunnáttu í þáttagerð, eins og þeir hafi aldrei komið út úr Sjónvarpshúsinu, svo algjörlega sótthreinsaðir af hversdagslegu amstri, svo algjörlega lausir við að þekkja málin „af eigin raun“. Sminkhvít húð og sjálfstæðisblámi í augum. Manni finnst eins og Geir Hallgrímsson eða Jóhann Haf- stein hljóti að hafa getið þá með einhverri sminkdömunni í förðun- arherberginu rétt áður en þeir fóru í einhvern umræðuþáttinn í sjón- varpssal árið 1973. Og síðan hafi þessi sveinbörn verið falin og alin upp á leikmunadeildinni, á göng- unum og kaffistofunni í Sjón- varpshúsinu, allt þar til þau voru orðin nógu gömul til að fá að stjórna þáttum. Þeirra æska leið ekki framan við skjáinn, heldur bak við hann. Hjá þeim var „Stundin okkar“ alla vikuna, á kvöldin duttu drengirnir út af og kúrðu hjá Glámi og Skrámi, eftir að raddirnar úr þeim voru farnar heim. Þeirra barnaskóli var kvöldfréttatíminn og Kastljós, auk allra bresku náttúrulífsmyndanna. Þeir gera sér því enga grein fýrir raunveruleikanum utan veggja Sjónvarpsins og fyrir þeim er í raun enginn munur á því hvort þeir eru uppi á kaffistofu eða niðri í stúdíói í beinni útsendingu að stjórna þætti, þetta er allt einn veruleiki fyrir þeim. Þess vegna segja þeir í upphafi þáttar „en svo við tökum upp þráðinn frá því sem við vorum að ræða áðan, fram á gangi ...“ í lok þáttar segja þeir hins vegar „það væri kannski gaman ef við mynd- um koma að þessu á eftir ...“ eftir þáttinn. Þetta eru allt saman vel gefnir og gáfum gæddir drengir, en þeir ættu bara frekar að stjórna Fimbulfambi í kaffitíma tæknimanna heldur en að reyna að láta líta út fyrir að þeir hafi ein- hverja hugmynd um lífeyr- ismál sjómanna eða annað álíka, jafnvel þó sjáist glitta í sjóinn af efstu hæðunum í Sjónvarpshúsinu. I fjöl- skylduleiknum nyti stjórn- unartækni þeirra sín mun betur. Þeim myndi nægja að segja „Jón, þú átt að gera“ í staðinn fýrir „Jón, hvað segir þú um þetta?“ En kannsld væri það ekld nóg, eitthvað þyrftu þeir að fást við. Eins og aðrir inn- anhússmenn þyrftu þeir að fá „sinn stað í dagskránni". Hér er tillaga til lausnar á þessum innahússvanda. Þeir yrðu látnir standa fýrir aftan þulurnar, bara rétt á bak við þær, en þó við hlið þeirra og kannski með aðra hönd á öxl þeirra. Þetta hti út eins og huggulegt par þar sem herrann stendur með sinni, á meðan hún kynnir dagskrána. Til ör- yggis gæti hann líka haft augun á textanum og gripið þannig inn í ef henni fipaðist. Bæði myndi þetta auka á öryggi þulanna sem margar hverjar virðast eiga í brös- um með leikaranöfn í lengri kant- inum, og auk þess leiðrétta lcynja- misrétti í þulastarfinu. Þriðjudags- drengirnir fengju þá starfsheitið „aðstoðarmaður þulu“. Hins vegar er vafasöm hlið á þessari hugmynd. Hugsanlega gætu þulupörin orðið alvöru pör og þá væri innahússvandinn fyrst orðinn verulegur hjá þeim upp í Sjónvarpi, þannig... Ég veit það ekki. ÚHhildur Dagsdóttirverðandi doktor í erótík og hryllingi í bókmenntum Það er eyra í „Erótík gæti verið ber karlmaður með hring í kóngnum en hryllingur væri þá að krækja litlafmgri í hring- inn og rífa hann út úr“ en svo hljómar skilgreining Úlfhildar Dagsdóttur á erótík og hryllingi. Limlestingar og vampírur eru hennar ær og kýr. Hún er í doktors- námi í bókmenntum í Trinity Coll- ege í Dublin þar sem hún leggur sérstaka áherslu á hrylling og er- ótík. „Það sem heillar mig mest við þessi umfjöllunarefni í bókmennt- um er að þar finnast ýktustu dæmin um að hugmyndir sem að líkamanum lúta séu beinlínis framkvæmdar. Geldingaróttinn er þá til dæmis ekki aðeins látinn koma fram, heldur er fólk einfald- lega gelt. Slíkar árásir á líkamann er það sem nefnt hefur verið „splatt- er“. Ég notast við feminískar kenn- ingar og geng út frá því að karlmaðurinn standi fyrir andann en konan sé aftur á móti hin Iíkam- lega freisting. Vampíran var til dæmis alltaf kvenkyns í goðafræðinni. Það var eldd fýrr en rómantíkin kom til sögunnar að hún var færð yfir á karlmanninn. Flestar bækur sem skrifaðar eru um erótík og hrylling eru óttalegt rusl en vissulega eru góð verk inn á milli. Hryllingsbókmenntir eru reyndar í uppsveiflu í heiminum nú vegna vinsælda Stephen King. Mér finnst hann aftur á móti of hefðbundinn til að geta talist áhugaverður. „Áhugi minn á hryllingi og erótík hefur óneitanlega orðið að eins konar lífsstíl og hvorki fataskápurinn né eyrna- lokkavalið fer varhluta afþví." Uppáhaldshöfundurinn minn er Clive Barker sem samdi söguna sem kvikmyndin „Candyman“ var gerð eftir. Hann hélt fyrirlestur í skólanum mínum síðasta vetur og heillaði mig, enda pælir hann mikið í líkamstungumálinu. Marg- ir kvenhöfundar eru líka að gera góða hluti. Fremstar meðal jafn- ingja tel ég vera Lisu Tuttle sem fjallar mikið um húð og hamskipti, _ Nancy A. Collins sem er hefð- ^ bundnari innan formúlunnar og g vinnur mikið með vampírur og úlfa O og Kathe Koja sem eru sjálfspynt- ingar, sársauki og erótík afar hug- leikin. f bókinni „Skin“ eftir þá síðastnefndu keppist aðal söguper- sónan við að gera listaverk á líkama sinn. Hún sker í hann alls kyns mynstur, hengir í hann hringa og þræðir keðjur á milli þeirra. Þaðan fékk ég þá hugmynd að láta setja hring í augabrúnina á mér. Nú er ég að hugsa um að fá mér húðflúr af fornaldarskrímsli. Áhugi minn á hryllingi og erótík hefur óneitan- lega orðið að eins konar lífsstíl og hvorki fataskápurinn né eyrna- lokkavalið fer varhluta af því. Hvað íslenskar bókmenntir varðar hefur hryllingur frá fýrstu tíð verið þar mjög greinilegur og þá helst í íslendinga- og þjóðsögun- um. Erótíkinni hefur affur á móti vérið gerð fremur slæm skil en nú á að gera bót á því. Forlagið er að fara að gefa út smásagnasafn með sög- um þar sem erótíkin verður í aðal- hlutverki. Mér var sýndur sá heiður að vera beðin um sögu í safnið. Sagan mín er að sjálfsögðu um lík- amann. Meðal annarra höfunda sem eiga sögu í bókinni eru Berg- lind Gunnarsdóttir, Ámi Berg- mann, Kristín Ómars, Sjón, Súsanna Svavarsdóttir og Hall- grimur Helgason. Ég hef aldrei fengið martraðir vegna þess hryllings sem ég hef lesið eða séð í kvikmyndum þótt hann hafi eflaust gefið næg tilefni til þess. I einni bók sem ég las var til dæmis skrímsli af tröllakyni sem beit höfuð af manni. Tók höfundur það sérstaklega fram að heyrst hefði eins og þegar bitið er í epli! Ég hefði viljað eiga þá hugmynd sjálf. Hvað hryllingsmyndir varðar sá ég eitt sinn konu sem var að breytast í zombí þar sem hún sat að snæð- ingi. Við það datt eyra af henni of- an í búðinginn hennar. Hún virtist ekkert verða vör við það og át það bara. í sömu mynd gekk maður noldcur berserksgang og óð í gegn- um hóp af zombíum með sláttuvél á lofti og bókstaflega „sló“ hann. Það var líka mjög flott! Annars komast hryllingsmyndirnar ekki í hálfkvisti við bækurnar og það er fátt eins hressandi og að lesa góða hryllingsbók." NAFNSPJALD VIKUNNAR Kemur alla leið frá vest- urströnd Bandaríkj- anna, nánar tiltekið Los Angeles. Eig- andi þess er Þorsteinn Ragnarsson, betur þekktur sem Steini töffari eða Steini Rambó. Steini var áberandi í skemmtanalífi Reykjavíkur áður en hann hélt af landi brott fyrir fjórum árum. Af honum fara margar sögur og hann er orðinn hálfgerð goðsögn í lifanda lífi í vissum kreðsum. Steini lifir frjálslegu lífi í Englaborginni eins og nafnspjald hans ber vitni um. Stundum vinnur hann við að gera upp gömul hús og mála, stundum leikur hann í stuttmyndum eða auglýsingum og stund- um gerir hann ekki neitt annað en að aka um á stóra Harieyinu sínu með langa gaflinum sem er einkennismerki hans. 4 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.