Eintak

Tölublað

Eintak - 20.01.1994, Blaðsíða 12

Eintak - 20.01.1994, Blaðsíða 12
Ríkið stofnar tveggja milQarða fiskmarkað En enginn veit hverá að annast reksturinn Fyrir fyrsta febrúar eiga að liggja fyrir tillögur nefndar um stofnun kaupþings með kvóta. Um er að ræða útfærslu á hugmyndum um að allur skammtímakvóti sem seld- ur er milli útgerða í eigu ólíkra aðila fari í gegnum kaupþing. Á síðasta ári námu þessar sölur sam- tals um 70.000 þorskígildis tonnum og var meðalverðið um 35 krónur á kílóið þannig að miðað við þessar forsendur mun veltan á þessu kaupþingi, eða fiskmarkaði, nema rúmlega tveimur milljörðum króna. Þar með mun ríkið reka einn stærsta fiskmarkað landsins en til samanburðar má nefna að veltan á Fiskmarkaði Suðurnesja á síðasta ári nam 1,5 milljarði króna. Meðal þeirra hugmynda um útfærslu sem eru til skoðunar er að kvótinn verði seldur eins og hluta- bréf á verðbréfamarkaði þar sem framboð og eftirspurn ræður verðmynduninni. Hugmynd frá Halldórí Það var Halldór Ásgrímsson varaformaður Framsóknarflokks- ins sem fyrstur kom hugmyndinni um kaupþing með kvóta á framfæri, en hún konr síðan til umræðu í samningaviðræðum sjó- manna og útgerðarmanna fyrr í mánuðinum. I bráðabirgðalögum þeim sem ríkisstjórnin setti á verk- fall sjómanna var að finna ákvæði um stofnun kaupþings með kvóta. Þriggja manna nefnd var sett á laggirnar til að semja frumvarp um málið, kölluð þríhöfðanefndin, en í henni eiga sæti Ólafur Davíðsson fyrir hönd forsætisráðherra, Árni Kolbeinsson fyrir hönd sjávarút- vegsráðherra og Þorkell Helgason fyrir hönd viðskiptaráðherra. Meðal þeirra sem þessir menn hafa leitað ráða hjá má nefna Verðbréfa- sjóð íslandsbanka og Fiskistofu en Fiskistofa mun eiga aðild að kaup- þinginu með einhverjum hætti þar sem allar kvótafærslur eru skráðar þar lögum samkvæmt og leita verð- ur samþykkis Fiskistofu fyrir þeim. Málið skammt á veg komið Árni Kolbeinsson, einn nefndar- manna, segir að málið sé skammt á veg komið þar sem vinna við það hófst á mánudaginn var. „Við í nefndinni höfum aðallega verið að afla okkur upplýsinga nú fyrstu dagana og erum ekki farnir að út- færa neinar hugmyndir ennþá,“ segir Árni í samtali við EINTAK. Aðspurður um hvort kaupþing þetta verði í eigu opinberra aðila eða einkaaðila segir Árni að hann geti ekki sagt til um slíkt að svo komnu máli. „Við munum skoða alla möguleika á því hvernig kerfi verður sett upp en að öllum líkind- um verður um eitt opinbert þing að ræða á svipuðum nótum og Verð- bréfaþing Islands er rekið nú.“ Hvað varðar þátt Fiskistofu í fyrrgreindu kaupþingi segir Árni að vissulega skrái Fiskistofa allar upp- lýsingar um kvótafærslur og haldi utan um kvótakerfið og slíkt muni ekki breytast. „En það er alveg opið enn hvort Fiskistofa verði aðili að kaupþinginu og þá með hvaða hætti," segir Árni. Aðspurður um hvort flutt verði sérfrumvarp um kaupþingið eða að það verði hluti af stærra frumvarpi í tengslum við bráðabirgðalögin segir Árni að ekkert sé farið að huga að slíku enn og væntanlega muni ráðherrar taka endanlega af skarið um með hvaða hætti málið verður lagt fyrir Alþingi. Næst besti kosturinn Sjómenn telja að stofnun kaup- þings með kvóta sé næstbesti kost- urinn fýrir þá til að koma í veg fyrir svokallað kvótabrask. Besta kostinn töldu þeir vera að allur fiskur færi á markað. Hólmgeír Jónsson fram- kvæmdastjóri Sjómannasambands- ins segir að afstaða þeirra til hug- myndarinnar sé jákvæð þótt hug- myndin sem slík sé ekki gallalaus og í henni að finna smugur sem útgerðarmenn gætu nýtt sér. Hólmgeir nefnir sem dæmi í þessu sambandi að fiskverkun og útgerð gætu samið sín á milli fyrirfram að útgerðin setti kvóta á kaupþing sem fiskverkunin svo keypti og skaffaði útgerðinni aftur til að veiða fyrir sig á lægra verði en almennt gilti þá stundina. „Við gerum okkur grein fyrir að það verður erfitt að búa til kerfi sem kemur í veg fýrir mis- notkun en ef til staðar verða sekt- arákvæði sem miða að því að setja hömlur við misnotkun, ef kemst upp um slíkt, teljum við að þetta geti komið vel til álita,“ segir Hólmgeir. © Sjö Alþýðuflokksmenn hafa gefið kost á sér í kjöri um þau sæti sem flokkurinn mun skipa í, á sameiginlegan fram- boðslista til borgarstjórnarkosning- anna. Þeir eru Þorlákur Helgason, Bolli Runólfur Valgarðsson, Gunnar Ingi Gunnarsson, Gylfi Þ. Gíslason, Skjöldur Þorgrímsson og Rúnar Geirmundsson... Haraldur Haraldsson í Andra og Sigurður G. Guðjónsson hafa stefnt sjávarútvegsráðherra fyrir söluna á Síldarverksmiðju ríkisins til Benedikts Sveinssonar og annarra kolkrabbamanna. Haraldur hafði gert hærra tilboð en var hafnað án þess að kannað væri hvort han'n gæti staðið við það. Vitað er að forysta Alþýðuflokksins stendur með Haraldi í þessu máli og einhverjir ráðherrar flokksins ætla að taka það upp á þinginu fljótlega eftir að það kemur saman eftir jólafríið... EINTAK er nýr, ferskur miðill, vikulegt fréttablað með menningarumfjöllun, fréttaskýringum, skoðanaskiptum og fréttum úr daglega lífinu. Fyrst og fremst fjallar EINTAK þó um fólk. Án fordóma eða annarlegrar hagsmunagæslu. EINTAK þjónar engum nema lesendum sínum. Ritstjórn, auglýsingasala og skrifstofur EINTAKS eru að Vatnsstíg4, iqi Reykjavík. Sími 16888 ogfax 16883. Verð aðeins 195 krónur! Áskriftarverð kr. yoo á mánuði. 12 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.