Eintak - 20.01.1994, Side 19
með það í greiðslustöðvun og
semja um greiðslur án þess að ég
þekki nægilega vel til. Flokkurinn
hefur staðið við allar þær skuld-
bindingar sem á hann hafa fallið út
af blaðaútgáfu í gegnum tíðina.
Staða Sambandsins kemur út af
fyrir sig Framsóknarflokknum ekki
beint við. Það eru náttúrlega marg-
ar orsakir að baki hruni þess en að
að halda því fram að það verði allt
gjaldþrota sem Framsóknarflokk-
urinn kemur nálægt er út í hött.
Það er fullt af framsóknarmönnum
um allt land sem standa í atvinnu-
rekstri og hafa staðið sig vel. Ég veit
ekki betur en framsóknarmönnum
gangi alveg jafn vel og öðrum, ef
ekki betur, að halda utan um sín
Ijármál. Ég hef að minnsta kosti
aldrei talið menn álykta svo að það
fari eftir pólitískum skoðunum
hvernig mönnum gangi í fjármál-
um. Þannig að þetta er kenning
sem andstæðingar okkar eru að
reyna að henda á lofti í málefna-
fátækt sinni.“
Hvað segirðu um það að Jónas
Kristjánsson sé farinn að gefa út
Tímann?
„Jónas Kristjánsson? Jónas
Kristjánsson er að sjálfsögðu ekki
að gefa út Tímann heldur þeir aðil-
ar sem eiga Frjálsa fjölmiðlun, þeir
Sveinn Eyjólfsson og Hörður Éin-
arsson. Jónas Kristjánsson kemur
þar hvergi nálægt.“
En samt sem áður eru yfirlýstir
sjálfstæðismenn að stjórna fram-
sóknarblaðinu.
„Ég skal ekkert segja um þeirra
pólitísku skoðanir en ég hef talað
heilmikið við þessa menn undan-
farna daga og mér hefur líkað það
vel. Mér finnst þeir vera traustvekj-
andi, það stendur það sem þeir
segja og þeir ætla sér að standa í
þessari útgáfu með myndarlegum
hætti. Ég er mjög ánægður með öll
samskipti við þá og hef fullt traust á
þeim í framhaldinu. Að öðru leyti
þekki ég ekki til þeirra."
Hver verður þáttur Framsókn-
arflokksins í þessum „DV Tíma“?
„Þáttur Framsóknarflokksins er
sá að Tíminn kemur áfram út og
rödd hans mun áfram heyrast.
Hann hefur komið út í sjötíu ár og
það er það sem skiptir okkur máli.“
Heldurðu að blaðið haldi eðli
sínu og verði áfram hliðhollt
Framsóknarflokknum?
„Já, ég geng út frá því. Það liggur
alveg ljóst fyrir að Morgunblaðið er
hliðhollt Sjálfstæðisflokknum og
það verður ekkert reynt að fela það
að Tíminn verður hliðhollur Fram-
sóknarflokknum í pólitískum skrif-
um, en það verður hins vegar opið
öllum skoðunum og það verður
með hlutlægar fréttir. Ég held að
það sé af hinu góða að til séu blöð á
markaðnum sem takast á við blað
eins og Morgunblaðið og þær pólit-
ísku skoðanir sem það stendur fyr-
ir.“
Óttastu samt ekki að blaðið
þróist í eitthvað annað en að vera
framsóknarblað?
„Ég hef engar áhyggjur af því.
Auðvitað er það svo að Framsókn-
arflokkurinn er ekkert heilagur og
hann verður að þola gagnrýni eins
og aðrir. Það má vel vera að flokk-
urinn muni fá einhverja gagnrýni á
sig frá þessu blaði, það verður bara
að koma í ljós. Við höfum gert
samning við þessa aðila um það að
ritstjóri blaðsins verði ráðinn með
samkomulagi Tímamóta hf. sem er
dótturfyrirtæki Frjálsrar fjölmiðl-
unar, og formanns Framsóknar-
flokksins á hverjum tíma. Það er al-
veg nægilegt af okkar hálfu.“
Er mikil sátt um þessa lendingu
Tímans í þingflokki Framsóknar-
flokksins?
„Já, það er alger samstaða um
þetta mál í þingflokknum og ég hef
ekki orðið var við annað en ánægju
með þessa niðurstöðu meðal al-
mennra flokksmanna."
Nú kom upp vandamál hjá Tím-
anum í lok janúar, en um það leyti
var Steingrímur í Rússlandi.
Málið var ekki leyst fyrr en þú
komst að þvi. Má segja að þetta
hafi verið skilaboð til formanns-
ins, að hann væri ekki ómissandi?
„Menn eru alltof mikið að velta
því fyrir sér hver geri hvað í stjórn-
málum. Það er ekkert hægt að gera
nema í samvinnu við marga menn
og það er eins með þetta Tímamál
eins og öll önnur mál að það hafa
mjög margir komið að því og lagt
þar fram sinn skerf. Aðalatriðið er
niðurstaðan, en hvernig þetta
gerðist er að mínu mati algert
aukaatriði og engin ástæða til þess
að vera í raun að fjalla um það.“
Hverju eru sjómenn að
mótmæla?
I dag stendur yfir allsherjar-
verkfall sjómanna og þeir
mótmæla kvótakerfinu sem þú ert
helsti höfundur að. Kanntu ein-
hver ráð til að leysa þetta mál?
„Hverju er verið að mótmæla? Ég
er ekki viss um að sjómenn viti það
sjálfir. Sjómennirnir eru mótfallnir
framsali aflaheimilda sem er þó
undirstaða fyrir hagræðingu í
greininni. Ég skal taka dæmi: 1
haust veiddi einn bátur átta þúsund
og fimm hundruð tonn af síld fyrir
Hornafjörð en viðkomandi bátur
mátti sjálfur veiða eitt þúsund
tonn. Hann var aðallega að veiða
aflaheimildir annarra báta. Ef þetta
hefði ekki verið hægt þá hefði verið
mikið atvinnuleysi á Höfn í Horna-
firði í allt haust og erfitt ástand.
Þannig hefur þetta framsal líka sín-
ar björtu hliðar en það hefur í sum-
um tilvikum verið misnotað eins og
alltaf vill verða. Eins hefúr kvóta-
kerfið valdið togstreitu milli sjó-
manna og útvegsmanna vegna
skiptingu kvótans. Ég er þeirrar
skoðunar að hægt sé að ná bærilegu
samkomulagi um það, en vegna
þess hve þetta hefur tekið langan
tíma þá er málið komið í slæman
farveg. Það er jafnvel svo að þeir
sem í þessum deilum standa í dag
eru ekki alveg klárir á því um hvað
er verið að deila. Vestfirðingar
neita að vera með en hafa þó sýnt
þessu kerfi mestu andstöðuna ...“
Vegna þess að þeir hafa ekki
efni á því að fara í verkfall.
„Það er ekkert öðruvísi en með
aðra, það er ekkert betra ástand á
Austurlandi eða í Vestmannaeyj-
um. Öll þessi fyrirtæki eru þannig
stödd að þau þola ekki stöðvun
framleiðslunnar. Það er engin
sérstaða með það á Vestfjörðum.
Það er mjög undarlegt að þeir sem
mest hafa verið á móti kvótakerfinu
og sá forystumaður sjómanna sem
hefur látið hæst í málinu, Guðjón
A. Kristjánsson og hans félagar á
Vestjörðum, skuli ekki standa með
sjómönnum annars staðar. Þetta er
hins vegar mjög mismunandi
meðal sjómanna, sumir vilja brjóta
niður kerfið, en líklega vilja flestir
þeirra fá vissar lagfæringar á kerf-
inu. Ég vona að þeir sem vilja brjóta
kerfið niður nái ekki yfirhöndinni,
en í þeim hópi er meðal annars
formaður Farmanna- og fiski-
mannasambandsins. Hans vilji má
ekki ná fram í þessu máli. Hér er
því um mjög alvarlega deilu að
ræða sem getur haft ófýrirsjáanleg-
ar afleiðingar.“
Þú viðurkennir að brestir séu á
þessu kerfi, hvernig viltu leysa
málið?
„Ja, ég spyr þessa ágætu menn,
allt í lagi, þið viljið brjóta niður
kerfið, hvað ætlið þið að gera á
morgun? Svarið við því er yfirleitt
ekki neitt annað en að það byrjar
einhver að ræða um auðlindaskatt
sem eitthvert lausnarorð.
Auðlindaskattur er ekkert annað en
nýtt aðstöðugjald og það að leggja
aðstöðugjald á atvinnugrein sem er
að berjast í bökkum er hugmynda-
ffæði og hagfræði sem ég fæ engan
botn í. Þeir sein mæla með
auðlindaskatti eru kannski menn-
irnir sem halda því ffarn að ýmsir
hafi orðið gjaldþrota vegna rangrar
stefnu, en telja á sama tíma að hægt
sé að leggja auðlindaskatt á fyr-
irtæki sem er á barmi gjaldþrots.
Þetta er eitt mesta rugl sem komið
hefúr upp á yfirborðið í pólitík hér
lengi. Verkefnin í íslenskum sjáv-
arútvegi núna eru fyrst og ffemst
tvö; í fyrsta lagi að byggja upp fiski-
stofnana og í öðru lagi að borga
niður skuldir sjávarútvegsins. Þegar
það er komið langt á veg, þá geta
menn farið að röfla út af því að
sjávarútvegurinn hafi alltof mikinn
hagnað. Það verður mjög skemmti-
legt að taka á því vandamáli. Því
miður er langt í að við stöndum
frammi fyrir því.“
En hefur kvótakerfið ekki
brugðist kröfum um hagkvæmni,
að skipastóll sé aðlagaður afrakst-
ursgetu fiskistofnanna?
„Nei. Menn hafa leitað í annað.
Það hefúr verið sótt í rækjuna sem
ekki hefði verið ef kvótakerfið hefði
ekki verið tekið upp. Ég er
sannfærður um það. Menn hafa
sótt í úthafskarfann, í Smuguna,
það hefúr sem sagt verið reynt að
leita eftir nýjum verkefnum fyrir
skipin og síðan hefur afli verið
ffamseldur yfir á önnur skip. Það er
alveg rétt að minnkun fiskiskipa-
flotans hefur ekki gengið nægilega
vel, en það er líka vegna þess að
reglurnar um úreldingu eru búnar
að vera í óvissu í tvö, þrjú ár. Ég
veit um fjölmörg dæmi þess að
menn hafi ákveðið að úrelda ekki
fiskiskip vegna óvissunnar um
framtíð kerfisins. Er eðlilegt að
menn sem eiga skip í dag og verða
þess varir að margir eru að reyna að
brjóta kerfið niður, rjúki til og ú-
reldi þegar svona er staðið að mál-
um? Leikreglurnar eru ekki nógu
vissar og öruggar fyrir ffamtíðina,
þess vegna gengur þetta hægar.
Það er nú líka staðreynd að ís-
lenskur sjávarútvegur hefur alltaf
verið mjög sveigjanlegur. Menn
hafa getað farið úr þorskveiðum yf-
ir í loðnuveiðar, úr loðnuveiðum
yfir í rækjuveiðar og svo framvegis.
Sama gildir um vinnslufyrirtæki
okkar. Þessi sveigjanleiki býður
upp á að það verður að vera nokkur
umffam- afkastageta í sjávarútveg-
inum. Ef við ætlum hins vegar að
leggja niður þennan sveigjanleika
þá getum við stórlega minnkað af-
kastagetu. Ég held að þessi sveigj-
anleiki sé mikilvægur þáttur í gang-
verki sjávarútvegsins.“
BJÖRN
Bjarnason
Ohaukur
„HaJldór Asgrímsson vill vera
málefnalegur stjórnmálamaður.
Hann er um þessar mundir eins
konar akkeri innan Framsóknar-
flokksins þar sem allt virðist á
hverfanda hveii eins og dæmin
sanna og kemur meðal annars
fram í því að flokkurinn virðist
ekki treysta sér til að bjóða fram
í Reykjavík. Mér þótti Halldór að
vísu fipast dálítið í málflutningi á
síðustu dögum fyrir jólaleyfi
þingmanna, þegar hann lagði
meiri áherslu á kerfiskarlasjón-
armið við ákvarðanir í skattamál-
um en lausnir sem miðuðu að því
að tryggja vinnufrið á erfiðum
tímum.
Ég er sannfærður um það, að
það yrði meiri festa í Framsókn-
arflokknum undir forystu Hall-
dórs heldur en ríkir þar nú ...
Framsóknarflokkurinn er kominn
að tímamótum með yfiríýsingum
Steingríms varðandi framtíð hans
í stjórnmálum. Þegar menn fara
að leita eftir samstarfsaðila, þá
hljóta þeir að vilja gera það á
þeim grundvelli að festa sé í for-
ystunni. Festu virðist vanta núna
hjá forystu Framsóknarflokksins
eftir þessar yfirlýsingar Stein-
gríms.“
EINVARÐSSON
„Það lýsir kannski Halldórí
best það sem einn góður maður
á þinginu sagði þegar Halldór var
fjarverandi vegna veikinda. Menn
voru að gantast með það hvort
eitthvað alvariegt værí að hon-
um, þá sagði þessi ágæti maður:
„Nei, nei, það er ekkert alvaríegt,
það tók sig upp hjá honum gam-
alt bros.“ Halldór þykir kannski
fullalvarlegur og stundum heldur
þver. Hann er ekki galopinn fyrir
öllum.
í dag er hann almennt viður-
kenndur sem krónprinsinn.
Auðvitað er það alltaf matsatriði
á hverjum tíma hvort menn hafi
beðið of lengi eftir að þeirra tími
komi. Maður er orðinn leiður á
krónprinsunum í útlandinu
sumstaðar. Þetta er ekki sagt á
niðrandi hátt um Steingrím en
eins og staðan er í dag er Halldór
ótvíræður krónpríns. Hann hefur
hins vegar ekki nema ákveðinn
biðtíma."
00
FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1994 -jg