Eintak

Tölublað

Eintak - 27.01.1994, Blaðsíða 15

Eintak - 27.01.1994, Blaðsíða 15
f sem er annað og æsilegra en okkar líf, sem náum alltaf að klára ölglasið og stökkvum í símann. Við erum látin vita með þessu að hér sé ekki um fólk að ræða heldur ímyndir. Bíómyndagerð samtímans er samræmd stjórn á girndum almennings, lostastýring — kynórum okkar er beint frá okkur sjálf- um, að ílöktandi skuggum á þili, frá lífinu að draugagangi tjaldsins, frá iifandi fólki að fylgjum lifandi fólks. Að ímyndum. Símanum er ekki ansað, bjórinn er ekki drukkinn, raksturinn er ekki kláraður: klipp-klipp-klipp og ekkert er klárað — hvaða kenndir vekur þetta? Óþol. Og það eru ekki bara kvikmyndirnar sem vekja okkur óþol. Frá morgni til kvölds er sam- fellt áreiti. Vestræn menning er menning lystaukans, hún er samfelldur apperatíf á undan réttum sem við finnum bara reykinn af; frá morgni til kvölds er spanskflugu hvolft í gin okkar og við skilin eftir með kláðann. Auglýsingar og rokkvídeó næra hungur okkar og ófullnægju,vekja okkur óseðjandi losta með hröðum klippingum sem eru eins og undirleikur djasspíanista, off-beat eins og það heitir á músíkslangri, alltaf rétt á undan slaginu, rétt áður en þú átt von á því. I rokkvídeói bregður fallegu fólki fyrir en það er alltaf horfið áður en við sjáum það til fulls, danshreyfing er alltaf horfin áður en hún er útfærð, bros hverfúr áður en það myndast. Kvikmyndin er sýn en ekki reynd, en rokkvídeóið gengur skref- inu lengra, þar er aðeins eftir grunur um sýn, grunur um fyrirheit, og þess vegna er rokkvídeóið skáldlegra en kvikmyndin, þróaðra listaverk því áreitið er bragðvísara og fleira skilið eftir handa heilabúinu, hin meðvitaða brenglun skynfæranna sem franska skáldið Arthur Rimbaud boðaði í ljóðlist fyrir hundrað árum hefur loks í rokkvídeóinu fengið hagnýti, og nýjung Rimbaud loks gagnast atvinnulífinu. Því allt miðar þetta að því að fá okkur út í búð til þess að við kaupum og kaupum og kaupum, bara eitthvað, því annað hægir á hagvextinum og við missum vinnuna við að framleiða drauma handa hvert öðru. Við lifum á því að kitla hvert annað. SAMFELLDUR AÐDRA GANDI FULLNÆGINGAR Það er sagt að við lifum nú tíma þegar kynlíf sé dýrkað. Ætli hitt sé ekki sönnu nær að táknmyndir kynlífsins séu dýrkaðar en táknmiðið sniðgengið, birtingarmyndir af aðdraganda kynlífs fremur en það sjálft, grunurinn fremur en reyndin; öll hjál- partækin kringum það sem við getum keypt fremur en hin einkalega reynsla. Þegar Einar Benediktsson orti í Einræðum Starkaðar: Mig dreymir um eina alveldissál/ um anda sem gjörir steina að brauði — skyldi hann hafa vitað að hann var að yrkja um markaðinn sem gefur stein- um brauðímynd, og er líka þríeinn eins og sá Guð kristninnar sem trúað var á langt fram eftir 19. öld: faðirinn sonurinn og heil- agur andi — markaðurinn, hagvöxturinn og hagræðingin? Og auglýsingar og rokk- vídeó er sú list sem lofsyngur þennan þrí- eina guðdóm. Þessi list samtímans veitir stöðug fyrirheit urn unað með inntaksleysi — kynngimagnaða átreynslu án saðningar, samfelldan aðdraganda fullnægingar. Því að hagkerfið sem byggir á hinum vaxandi vexti vaxtarins — þetta er hagkerfi sem í vissum skilningi má aldrei fá það, heldur skal það vera alveg við það að fá það, rétt eins og bíómyndastjarnan má aldrei ljúka við að raka sig. Það er sennilega ekki tilvilj- un að sá þáttur kynlífsins sem ímynd- arfræðin beina helst spjótum sínum gegn á seinni árum, og er æ meira litið á sem vandamál í sjálfu sér, er fullnæging karl- mannsins, því þar stöðvast vélin, þar fær hann lausn, það er afskaplega hætt við að hann velti út af og sé jafnvel farinn að hrjóta fyrr en varir, í stað þess að hlaupa um hress og ólmast og kaupa eitthvað. Nú á dögum er aðeins syndsamlegt að leggja stund á eina tegund kynlífs og það er ejacul- atio præcox, ótímabært sáðlát, og þess er skammt að bíða að litið verði á allt sáðlát sem ótímabært. Það er ekki tilviljun að sá maður sem hlaut á föstudaginn þá vegtyllu á rás tvö að vera kynþokkafyllsti maður landsins, er þolfimimeistari. Karlmennskuímynd nútímans er sá maður sem með dugmiklu og þindarlausu en þó umfram allt glaðværu hoppi sínu er hin fullkomna táknmynd hagvaxtarins. Við sem ólumst upp við Halldór Snorrason sem hetju, eigum margt ólært. Guðmundur Andrl Thorsnon er reyk- vískur karlmaður á fertugsaldri. Hantt hefur skrifað bœkur og blaðagreinar. Þú færb sendiferðabílinn Kjá okkur GREIÐABÍLAR - LITLIR BÍLAR - MEÐALSTÓRIR BÍLAR - STÓRIR BÍLAR Fast gjald, mælir, tímavii.na, samningar og tilboð. Aukin þjónusta án aukakostnaðar. Sölu- og þjónustuaðilar fyrir: Innanlandsfrakt ^^■■■■^/örumóttakaA/öruafgreiðsla Knarrarvogi 2 ^■■■■■^fgreiðslutími frá kl. 9.00- ^HH^^^18.00 alla virka daga. FLUGLEIDIR A HVERS NUNA VEGNA VEGNA NÚNA? ÞESS.. Þegar vinur okkar Björgólfur Guðmundsson ákvað að gefa kost á sér í prófkjörinu spurði eitt okkar svolítið hissa: Hvers vegna núna? Rök hans fyrir framboði eru afar sannfærandi og við ákváðum strax að leggja því allt okkar lið. Þó að við þekkjum Björgólf vel, og þótt hann sé þekklur af mörgum, þá þekkja hann ekki allir. Því er okkur bæði ljúft og skylt að tíunda hvers vegna við teljum hann hiklaust eiga erindi í borgarstjórn Reykjavíkur: Björgólfur er 53 ára gamall. Hann er nógu gamall til þess að hafa mikla og víðtæka reynslu og nógu ungur til þess að hafa óskert þrek. Hann er reiðubúinn að verja orku sinni og tíma til að láta gott af sér leiða. Við vitum að hann er sjálfstæðismaður í besta skilningi þess orðs. Hann hefur verið virkur liðsmaður flokksins í áratugi, m.a. í Heimdalli - Verði og fulltrúaráðinu. Hann var atorkumaður á þeint vettvangi sem annarsstaðar. Við erum sannfærð um að víðtæk reynsla hans af félagsstörfum m.a. fyrir fþróttahreyfinguna og sem eins af frumherjum í SAA muni nýtast vel í borgarstjóm Reykjavíkur. Þá emm við einnig sannfærð um að margþætt reynsla hans úr viðskiptalífinu, bæði hér á landi - og erlendis, eigi einmitt núna erindi inn í borgarstjórn. Björgólfur Guðmundsson hefur varið stærstum hluta starfsæfi sinnar við að brjóta ný lönd - bæði í viðskiptum og fclagsmálum. Hann er hertur í hörðum heimi viðskiptalífsins þar sem hann hefur mátt þola bæði sigra og ósigra. Við treystum Björgólft Guðmundssyni allra frambjóðenda best til þess að flytja með sér inn í borgarstjóm Reykjavíkur, ekki aðeins hressandi andblæ athafnalífsins heldur einnig þá hugmyndaauðgi og það áræði sem hann er þekktur fyrir í öllum sínum störfum. Góðir kjósendur! Við styðjum Björgólf Guðmundsson einarðlega í 5-7 sæti listans og fölumst eftir stuðningi ykkar. ... að aldrei sem fyrr er þörf fyrir raunverulega nýjar hugmyndir, nýjar lausnir og raunhæf ný vinnubrögð á nanast öllum sviðum. ... að þrátt fyrir gott starf hef ég rúman tíma aflögu. Eg hef oft átt eina af þessum fjölmörgu pólitísku óánægjuröddum en núna finnst mér lag að láta af nöldri, bretta sjálfur upp ermarnar og láta verkin tala. ... að það er áskomn að standa við öll stóm orðin sem ntaður hefur látið falla á alþingi götunnar. 1 prófkjörinu sækist ég eftir 5.-7. sæti - ömggu borgarstjómarsæti. Þannig fengi ég afdráttarlaust tækifæri til þess að sanna það að cg geti haft raunveruleg áhrif til góðs við stjómun borgarinnar. ... að um leið og heimurinn minnkar stækkar ísland. Um leið og þjóðin tengist umheiminum, og sérstaklega Evrópu, æ sterkari böndum opnast Reykjavík stöðugt ný tækifæri. Upp er runninn tími fyrir alþjóðlega hugsun, alþjóðlega þekkingu og raunvemlega reynslu í vinnu á alþjóðlegum gmnni við stjómun borgarinnar. Þar hef ég mikið til málanna að leggja. ... að stærstu vandamál Reykvíkinga felast í atvinnuleysi, fátækt og vonleysi hjá þúsundum fólks. A okkur brennur einnig stórkostlegur vandi vegna vímuefna sem oft leiðir fólk til ólánsverka. Stærstu vandamálin eru því þau sömu og annars staðar í heiminum. Stærstu tækifærin til lausna gefast með auknum tengslum við umheiminn. Eg hef í langan tíma unnið að vandamálum áfengis og vímu- efna og hef ákveðnar hugmyndir um framhald á því sviði. Þó er það á sviði atvinnumála sem mér svellur mestur móðurinn. Með gjörbreyttri hugsun, viðskiptalegri útsjónarsemi og stórauknu samstarfi á erlendum vettvangi, eigum við fjölmörg tækifæri til þess að taka þar hressilega á. ... að ég er sannfærður um að fái ég nægan stuðning í prófkjörinu þá er það reynsla mín og þekking frá liðnum áratugum, sem nýst getur betur en nokkru sinni fyrr. Þess vegna gef ég kost á mér núna - og þess vegna saekist ég eftir stuðningi þínum í borgarstjórn FIMIVIJUDAGUR 27. JANÚAR 199.4 15

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.