Eintak

Issue

Eintak - 27.01.1994, Page 29

Eintak - 27.01.1994, Page 29
Það eru ekki mörg gæludýr sem útheimta það að eigandinn þurfi að rækta matinn ofan í þau með ærinni fyrirhöfn. Þetta þarf þó Smári, níu ára strákur í Reykjavík að gera, en eðlurnar hans eru heldur ekki algengustu gæludýr á íslandi. Smári á sjö eðlur sem borða helst ekki annað en það sem er borið lifandi fyrir þær. Á sumrin týnir Smári maðka, pöddur og köngulær ofan í eðlurnar en á veturna ræktar hann mjölorma fyrir þær í matinn. En Smári er undantekningin frá reglunni. Flestir eru hefðbundnari í gæludýravali sínu en hann og fá sér annað hvort hund eða Ött. Það eiga þó fáir eins marga ketti og Sigríður Heiðberg. Hún er formaður Kattavinafélagsins og segir hér frá köttunum sínum þrjátíu. Gæludýraeigendur eru yfirleitt óendanlega stoltir af dýrunum sínum, svipað og foreldrar eru hreyknir af börnunum sínum. Þeirra dýr eru öðruvísi en önnur og geta eitthvað sem gerir þau sé- rstök. Og þetta er líka rétt. Allir sem hafa átt gæludýr vita að eins og mennirnir, búa dýrin yfir mismunandi skapgerð og hæfileik- um. Tómas Guðjónsson á til dæmis páfagaukinn Kíkí sem fer eins og hundur eða köttur út að viðra sig vetur jafnt sem sum- ur, Skuggi, hundurinn hans ívars Haukssonar, er einstaklega snjall í að leysa ýmsar þrautir án þess að vera í taum og Eva Kristín Albertsdóttir, kínverski puginn hennar Kristínar Stefánsdótt- ur, lætur ekkert trufla sig ffá eiganda sínum, ekki einu sinni þegar þær ganga saman um stórar hundasýningar. Og fólk er tilbúið að leggja ýmislegt á sig fyrir dýrin sín. Friðrik Þór Halldórsson á til dæmis köttinn Prins sem er búinn að setja klærnar í flest húsgögn á heimilinu með þeim afleiðingum að í valnum liggja tveir stólar og einn sófi. Þannig fylgir gæludýrum iðulega nokkuð umstang af ýmsum toga og þau þurfa athygli og umhirðu engu síður en mannskepnan. En af hverju skyldi fólk fá sér dýr? Erna Braga- dóttir sem á enska ilSUltÍÉ Daníel svarar því þannig: „Að hafa gæludýr kostar vissulega ákveðna vinnu en maður fær það líka borgað margfalt til baka. Ég held að þetta sé eitt af því mest gefandi sem til er.“ > I I I I * Sigríður S. Heiðberg formaður Katta- vinafélagsins og kettimir henn- arþijátíu „Ég byrjaði með einn kött og hann lifði þangað til hann var fimmtán ára. Þá fékk ég mér læðu og hún eignaðist kettlinga. Þeir fóru hingað og þangað, og þar af nokkrir á heimili sem stóðu ekki undir ábyrgð svo ég sótti þá aftur. Þannig fjölgaði köttunum hjá mér í byrjun. Þar sem ég er formaður þessa félags hef ég fengið margar upphringingar héðan og þaðan um ketti sem vantar heimili og ég tók þá að mér til að byrja með. Ég er aðallega með íslenska húsköttinn sem er af þessari evrópsku ætt en svo er ég líka með tvo síamsketti. Ég hefnú aldrei viljað skrifa undir að þeir væru eitthvað greindari eða merki- legri en íslensku kettirnir. Það skemmtilegasta við að vera með marga ketti er að þeir eru allir svo ólíkir persónuleikar. Þeireru alveg eins og mennirnir að því leyti." Friðrik Þór Halldórsson og Prins, kötturinn hans „Við hjónin eignuðumst nýverið litla stelpu og það fer ekkert alltof vel í Þrins. Hann er voðalega afbrýðisamur og á dálítið erfitt núna. Hann er mjög manngóður og kelinn. Hann tekur öllum vel en vill þó sitja i sinum stól þegar gestir koma. Ef ein- hver kemur í heimsókn og sest í stólinn hans þá sest hann bara ofan á gestinn. Við vorum nýflutt og Prins fór út í fyrsta skipti. Þegar hann var ekki kominn eftir tvo tíma fórum við að hafa áhyggjur vegna þess að hann er yfirleitt ekkert áfjáður í að fara út, hann er hálfgerður inniköttur. Svo við fórum út að svipast um eftir honum. Við gengum um allt hverfið mjálmandi og kallandi nafnið hans og vorum komin með heila skrúðgöngu af köttum á eftir okkur en ekkert bólaði á Prins. Það var ekki fyrr en klukkan sex um morguninn sem við vöknum upp við mjálm út á svölum sem var skrýtið því við búum upp á annarri hæð. Þar var hann þá kominn eftir mikið klifur eftir grindverkum og rennum. Hann er búinn að tæta í sundur fínu stólana mína úr Casa, einn lélegan sófa úr Casa og núna er hann að byrja á stóra Chesterfield sófanum, svona aðeins farinn að setja klærnar i hann.“ ívar Hauksson og Skuggi Scháferinn hans „Skuggi er sérstaklega geðgóður hundur og mikill vinur allra, ekki sist barna. Síðasta sumar tók ég hann til dæmis oft með að sækja aðra dóttur mina á leikskólann og þar lék hann sér i ró- legheitum innan um barnahópinn og leyfði öllum að klappa sér. Ég hefsinnt Skugga vel og fyrir vikið er hann hlýðinn og góður. Hann er mjög snjall i að gera alls kyns æfingar án þess að vera i taum og ég hef sýnt hann á hlýðninámskeiðum. En það er mjög stutt á milli villidýrs og vel þjálfaðs hunds. Hund- ar geta lært heilmikið en hvað þeir læra fer eftir því hve eigendurnir eru duglegir að sinna þeim. Maður sér alltaf eigandann í hundinum. Ef hundurinn er grimmur eða bældur við ókunnuga, veistu hvernig eigandinn hefur komið fram við hann. Hundar koma eins fram við fólk og fólk kemur fram við þá, þetta er ekki flóknara FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1994 29

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.