Eintak - 10.03.1994, Blaðsíða 23
„Á Evrópureisu minni var
ekkertjafn dásamlegt og
sú reynsla að vera ífyrsta
skipti á cevinni nakinn á
meðal nakinna. “
Heimsstyrjöldin fyrri varð
aldrei ævintýri heldur skot-
grafahernaður og viður-
styggileg slátrun sem stóð í
íjögur ár. Keisarinn varð að segja af
sér, borgarastéttin var í sjokki en
verkalýðurinn hafði lært af biturri
reynslu að sætta sig ekki við hvað
sem var og hlýða ekki öllu í blindni.
Hann öðlaðist meiri sjálfsvirðingu
og að sama skapi óx sósíaldemók-
rötum og kommúnistum ásmegin.
Hvað nektarhreyfmguna viðvíkur
þá liföi hún styrjöldina af og rúm-
lega það. Það var fyrst núna sem
hin eiginlega FKK-hreyfmg varð til:
Freie Körper Kultur. En áherslurn-
ar breyttust. Einstaklingshyggjan
vék fyrir samstöðumættinum og
meinlætið fyrir lífsgleðinni. Hin
borgaralega nekt haföi verið metin,
vegin og léttvæg fundin. Frjálsi
kroppakúltúrinn varð lang sterk-
astur í Berlín enda hefur sú borg
alla tíð verið höfuðborg frjálslyndra
afla í Þýskalandi og eina stórborgin
í þessu landi. Engu að síður tókst
gulu pressunni að gera skandal úr
kennsluaðferðum ungs kennara í
Berlín, nánar tiltekið í verka-
mannahverfinu Moabit. Þetta var
árið 1924 og kennarinn ungi hét
Adolf Koch. Hann haföi staðið fyr-
ir og skipulagt svokallaða nektar-
leikfimi með börnunum, í fullu
samráði við foreldra og skólayfir-
völd. Ástæðan fyrir hneykslinu var
þó ekki nekt barnanna, heldur hug-
myndafræði kennarans. Adolf
Koch var hugsjónamaður og sósíal-
demókrat og hann var sannfærður
um að ein forsendan fýrir því að
geta orðið pólitískt meðvitaður og
sjálfráður einstaklingur væri sú að
uppgötva sinn eigin líkama. Eftir að
áðurnefnd pressa haföi fjallað um
málið á sinn hátt varð Koch að
segja af sér. En þetta vakti mikla at-
hygli og Koch sá sér þann leik á
borði að stofna skóla sem hann
nefndi „Körperkulturschule Adolf
Koch“. Það er skemmst frá því að
segja að skólinn sló í gegn og ekki
leið á löngu áður en tólf slíkir skól-
ar höföu verið stofnaðir víðs vegar
um Þýskaland.
Þessir skólar buðu upp á kvöld-
kúrsa en vildu vera eitthvað annað
og meira en hreinræktaðir tóm-
stundaskólar. Þátttakendurnir
komu nær undantekningarlaust úr
„Honum var aftur á móti
illa við feita karla með
myndavél framan á
bumbunni. Til að losa sig
við þá bjó hann til
íþróttaprógramm sem var
slíkum körlum ofviða. “
verkalýðsstétt og þeim var til að
mynda boðið upp á „málfundi,
heilsufræði, foreldrafundi, kyn-
fræðslu, skemmtiferðir, sumarbúð-
ir, einstaklingshjálp og ráðgjöf á
öllum sviðum lífsins". Og það vill
svo vel til að Berlín er umkringd
vatnasvæðum á alla vegu. Það var
sumsé auðvelt að finna ákjósanlega
staði fyrir nektarnýlendur. Á sumr-
in þyrptust þangað hundruðir
áhangenda Adolfs Koch, klæddu
sig úr hverri spjör, léku sér í gras-
inu, syntu í vatninu, sungu og
kveiktu varðelda á kvöldin. Pró-
gramminu verður kannski best lýst
með titlinum á bæklingi sem Koch
gaf út „Wir sind nackt und nennen
uns Du“ (við erum nakin og þú-
umst). Þetta var félagsskapur sem
þekkti ekki stéttaskiptingu heldur
aðeins jafningja á meðal jafningja. 1
bæklingnum lætur Koch „amerísk-
an gest“ hafa orðið: Á Evrópureisu
minni var ekkert jafn dásamlegt og
sú reynsla að vera í fyrsta skipti á
ævinni nakinn á meðal nakinna.
Það sést á ljósmyndum sem
teknar voru af núdistum á árunum
á milli 1920-1930 að þeir eru ekki
eins klemmdir og stífir á svipinn og
núdistarnir fýrir stríð. Það er mikið
glens og grín og stundum ekki laust
við smá léttúð. Á einni myndinni
ríða tvær yngismeyjar klofvega á
bakinu á vöðvastæltum ungum
manni og skemmta sér konunglega.
Það voru til margir nektarklúbbar
og -hópar á þessum tíma en enginn
jafn fjölmennur og hópurinn í
kringum Adolf Koch. Koch var
umburðarlyndur í kynferðismálum
eins og við er að búast af slíkum
manni. Hómósexúalistar voru vel-
komnir í hópinn enda skrifar Koch
í áðurnefndum bæklingi að þessi
blanda af kvenlegum og karlmann-
legum eiginleikum nýtist vel í fjöl-
mörgum störfum í þjóðfélaginu.
Honum var aftur á móti illa við
feita karla með myndavél framan á
bumbunni. Til að losa sig við þá bjó
hann til íþróttaprógramm sem var
slíkum körlum ofviða. Auðvitað
var nasistum meinilla við náunga
eins og Koch. Þegar þeir komust til
valda 1932 lokuðu þeir ekki bara
öllum Adolf Koch skólunum held-
ur létu þeir iíka brenna opinberlega
allt sem Adolf Koch haföi skrifað.
Og árið eftir lét Göring það boð út
ganga að nektarhreyfingar væru
bannaðar í þúsund ára ríkinu.
Banninu var svo aflétt tíu árum síð-
ar eftir þráláta umleitan þess anga
nektarhreyfmgarinnar sem alltaf
haföi verið hægrisinnaður og þjóð-
ernissinnaður. En þá var það líka
gert að skilyrði að núdistarnir trufl-
uðu engan og héldu sig á afgirtum
svæðum. Einmitt þessi regla átti
síðan eftir að gilda í báðum þýsku
ríkjunum eftir stríð.
Nektarhreyfmgin náði sér ekki
aftur á strik fyrr en nasism-
inn haföi verið sigraður. Og
hún hefur aldrei orðið jafn
fjölmenn og á sjöunda og áttunda
áratugnum. Um 1970 töldust tæpir
tvöhundruð þúsund meðlimir í
nektarklúbbum og þá aðeins í Vest-
ur- Þýskalandi. En það er engin til-
viljun að nektarbylgjan skyldi byrja
að rísa þegar sextíuogáttakynslóðin
var upp á sitt besta. Þessi kynslóð
átti svo margt sameiginlegt með
jafhöldrunum frá öðrum og þriðja
áratug aldarinnar. Já, sömu þrána
eftir frelsi og fersku lofti og þörfma
að ná harmoníu við eigin líkama.
Nektin varð svo að hörðum
ferðaskrifstofubisness á áttunda
áratugnum þegar vesturþýskir núd-
istar komu sér upp afgirtum nekt-
arnýlendum og nektarströndum út
um alla Evrópu. En upp úr 1980 fór
áhuginn á slíkum afgirtum svæðum
að dvína og ungt fólk fór bara að
leggjast allsbert í sólbað hvar sem
því sýndist, til dæmis út í næsta
parki. Þegar maður gengur um
garðana í Berlín á heitum sumar-
degi, ber að vísu mest á kappklædd-
um tyrkneskum stórfjölskyldum;
með afa og ömmu, pabba og
mömmu, barnaskara og rjúkandi
grilli en þýsku núdistarnir liggja
bleikir á stangli og yfirleitt einir á
báti. - Nekt, hvað er nekt? O
„Á sumrin þyrptust þang-
að hundruðir áhangenda
Adolfs Koch, klæddu sig
úr hverri spjör, léku sér í
grasinu, syntu í vatninu,
sungu og kveiktu varð-
elda á kvöldin. “
FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994
23